Dagblaðið Vísir - DV - 30.12.2016, Blaðsíða 6

Dagblaðið Vísir - DV - 30.12.2016, Blaðsíða 6
Áramótablað 30. desember 20166 Fréttir Þetta Þarftu að vita um útsölur n ekki láta blekkjast af gylliboðum n Gerðu verðsamanburð og þekktu rétt þinn Lækkað verð? Ekki er allt sem sýnist þegar kemur að útsölum. Um þær gilda strangar reglur. 1 sex vikna hámark Þegar vara eða þjónusta hefur verið auglýst á lækkuðu verði í sex vikur skal það kallast venjulegt verð. Um það kveða reglur Neytendastofu um útsölur. Þar stendur líka að skýrt skuli í auglýsingum taka fram hvaða vörur eða þjónusta er seld á lækkuðu verði. 2 ekki kaupa óþarfa Kauptu eitthvað sem þú hefðir keypt þótt það væri ekki á útsölu. Þetta er eitt af þeim atriðum sem finna má um útsölur á vef Fjármálaskólans. Að öðrum kosti gætir þú látið frá þér peninga í hluti sem þig vantar ekki. Ekki fara bara til að skoða eitthvað. 3 verða að geta sannað lækkun Það er beinlínis óheimilt að auglýsa vöru á útsölu nema um raunverulega verðlækkun sé að ræða. Verðmerkingin þarf að sýna skýrt hvert upprunalegt verð vörunnar var. Verslunin þarf að geta sýnt Neytendastofu fram á að hún hafi selt vöruna á því verði áður. 4 mættu snemma Vænlegast til árangurs er að mæta snemma á útsölu, samkvæmt Fjármálaskólanum. Þá er líklegast að finna það sem mann vantar, áður en það klárast. Algengustu stærðirnar, þegar kemur að fatnaði eða skóm, seljast fyrst. 5 Gerðu verðsamanburð Flestar alvöru verslanir sýna verð á vörum á vefsíðum sínum. Aðrar gefa líka út auglýsingabæk- linga sem rata inn um bréfalúgur fólks. Eitt mikilvægasta ráðið, til að átta sig á því hvort varan er á góðu verði, er að bera saman verð. Á netinu er það afar auðvelt. Gott er að gera verðsamanburð innanlands en ekki síður er gott að bera saman verð við útlönd. Pricerunner.co.uk, pricerunner.dk, og prisjakt.no eru dæmi um síður þar sem bera má saman verð með auðveldum hætti. Ekki láta glepjast af hárri hlutfalls- tölu þegar afsláttur er auglýstur. 6 Gerðu innkaupalista Gott ráð áður en á útsölur er haldið er að gera innkaupalista og ræða við maka sinn eða vin, hvað þú ert tilbúinn til að greiða fyrir vöruna. Ef þú finnur vöruna ekki innan þeirra marka sem þú hefur sett þér hvað verð varðar, skaltu kaupa hana við annað tækifæri – ef þörf krefur. 7 leitaðu í Bretlandi Þannig háttar til að gengi íslensku krónunnar er afar sterkt um þessar mundir, ekki síst gagnvart pund- inu. Í Bretlandi er því hægt að gera sérstaklega góð kaup. Verslana- keðjur eins og Tesco og Argos selja alls kyns varning á hagstæðu verði. Mundu að janúarútsölur eru ekki séríslenskt fyrirbrigði því um allan heim er hægt að gera frábær kaup á þessum árstíma. Pricerunner.co.uk er frábært verkfæri til að einfalda þér leitina – ef þig bráðvantar ekki vöruna strax. 8 „takmarkað magn“ Í regl-um Neytendastofu um útsölur kemur fram að verslanir mega ekki auglýsa „takmarkað magn“ vöru nema tilgreina hversu mikið magn stendur til boða. Þá mega verslanir ekki segja að eitthvað fylgi ókeyp- is með – eða sé gjöf – þegar um kaupauka með vöru sem þú greiðir fyrir er að ræða. 9 14 daga skilaréttur Neyt-endasamtökin hafa gagnrýnt það harðlega að útsölur hefjist svo skömmu eftir jól – svo neytendum gefst ekki tími til að skila vöru og fá fullt verð endurgreitt. Í verk- lagsreglum viðskiptaráðuneytisins um skilarétt kemur fram að réttur til að skila ógallaðri vöru skuli að minnsta kosti vera 14 dagar frá afhendingu. Ekki þarf að framvísa kvittun þegar gjafamerki er á vör- unni. Inneignarnótur skuli miðast við upprunalegt verð. Þá segir í reglunum að inneignarnótur og gjafabréf skuli gilda í allt að fjögur ár frá útgáfudegi. 10 rýmingarsölur Algengt er að sjá auglýsingar um rým- ingarsölur. Í reglum Neytendastofu kemur fram að aðeins skuli auglýsa rýmingarsölu þegar verslun hættir eða hættir sölu tiltekins vöruflokks. „Rýmingarsala skal ekki standa yfir í lengri tíma og eigi hún einungis við um takmarkað vöruúrval skal það tekið skýrt fram í auglýsingum og varan höfð aðgreind frá öðrum vörum. Vara sem seld hefur verið í rýmingarsölu skal ekki selja síðar á fullu verði.“
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96
Blaðsíða 97
Blaðsíða 98
Blaðsíða 99
Blaðsíða 100
Blaðsíða 101
Blaðsíða 102
Blaðsíða 103
Blaðsíða 104
Blaðsíða 105
Blaðsíða 106
Blaðsíða 107
Blaðsíða 108
Blaðsíða 109
Blaðsíða 110
Blaðsíða 111
Blaðsíða 112

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.