Dagblaðið Vísir - DV - 30.12.2016, Blaðsíða 27
Áramótablað 30. desember 201628 Fréttir Innlendur fréttaannáll
Október
2. október
Sigurður Ingi formaður
Sigurður Ingi Jóhannsson forsætis-
ráðherra er kjörinn formaður Fram-
sóknarflokksins á flokksþingi Fram-
sóknarmanna í Háskólabíói. Hann
hlaut 370 atkvæði en Sigmundur
Davíð Gunnlaugsson 329 og þurfti
því að láta í minni pokann. Mik-
ill titringur var innan flokksins í að-
draganda formannskjörsins. Niður-
staðan kemur nokkuð á óvart í ljósi
þess að skoðanakannanir meðal
þeirra sem studdu Framsóknarflokk-
inn síðustu daga bentu til þess að
Sigmundur Davíð myndi hafa betur.
5. október
Geir fékk tvöfalt
Geir Þorsteinsson, formaður KSÍ,
fær tveggja mánaða laun í bón-
us vegna vinnu sinnar vegna EM í
knattspyrnu sem fram fór í Frakk-
landi í sumar. Annað starfsfólk KSÍ
fékk eins mánaðar laun í bónus.
„Greiðslur starfsmanna, leikmanna
og mín eru trúnaðarmál. Ég get ekki
staðfest eitt né neitt og sérstaklega
ekki mín laun,“ sagði Geir.
5. október
Stakk lögreglumann
Ung kona, sem grunur leikur á að
sé smituð af lifrarbólgu C, veitist að
lögreglumanni í miðbæ Akureyrar
og stingur hann með sprautunál.
Ekki er vitað hvort lögreglumaður-
inn hafi smitast af sjúkdómnum.
Konan er sögð hafa verið í annar-
legu ástandi og mun hún hafa slegið
í hönd lögreglumannsins með nál-
inni. Var hún handtekin í kjölfarið
en hún hefur áður komið við sögu
lögreglu.
6. október
Ofsóttir af ofsatrúarpari
Íslenskir unglingar fá sig fullsadda
af erlendu ofsatrúarpari sem ofsæk-
ir þá. Nemendur í MH voru á leið
niður á Klambratún að hitta nem-
endur úr Kvennaskólanum til að
fara í ýmsa leiki þegar ofsatrúarpar,
Simon og Angela Cummings, hóf að
predika fyrir framan hópinn. Varaði
parið við samkynhneigð og kynlífi
fyrir hjónaband.
7. október
Kaupa Emmessís
Hópur fjárfesta undir forystu Einars
Arnar Jónssonar, sem oft er kennd-
ur við Nóatún, eignast 90% hlut í
Emmessís. Samkvæmt heimildum
DV fóru fjárfestarnir inn í hluthafa-
hópinn í ágúst þegar þeir lögðu ís-
gerðinni til nýtt hlutafé upp á 50
milljónir króna en fyrirtækið var
áður í eigu Sparisjóðabankans
(SPB) og Eignarhaldsfélagsins Arev.
10. október
Edda
jarðsungin
Edda Heiðrún
Backman leik-
kona, söngkona,
leikstjóri og mynd-
listarmaður er jarð-
sungin frá Hallgríms-
kirkju. Fjölmargir vinir
Eddu úr leiklistarheim-
inum rituðu til hennar falleg orð á
minningarsíðum Morgunblaðsins
auk þess sem margir tjáðu sig á sam-
félagsmiðlum um kynni sín af lista-
konunni ástsælu.
13. október
Píratar og Lækjar-
brekka
Píratar lýsa sig reiðubúna til að
hefja stjórnarmyndunarviðræð-
ur fyrir alþingiskosningar og senda
forsvarsmönnum Bjartrar framtíðar,
Samfylkingarinnar, Vinstri hreyf-
ingarinnar -græns framboðs og Við-
reisnar bréf þess efnis. Í kjölfarið
funduðu formenn allra flokkanna
nema Viðreisnar á veitingastaðnum
Lækjarbrekku.
19. október
Nauðgari laus
Eiríkur Fannar Traustason, sem
hlaut fimm ára fangelsisdóm í
Hæstarétti í byrjun júní, fyrir nauð-
gun í Hrísey í fyrrasumar, gengur
laus. Eiríkur nauðgaði sautján ára
franskri stúlku, sem var einsöm-
ul á ferðalagi um landið á reiðhjóli.
Eiríkur var í nóvember úrskurðað-
ur í gæsluvarðhald á grundvelli al-
mannahagsmuna, sem hann sætti
þar til dómur féll í máli hans í Hér-
aðsdómi Norðurlands eystra.
30. október
Ríkisstjórnin fellur
Engir tveir flokkar geta myndað ríkis-
stjórn samkvæmt úrslitum Alþing-
iskosninganna 29. október. Ríkisstjórn
Sjálfstæðisflokks og Framsóknar fell-
ur og ekki er hægt að mynda Lækjar-
brekkustjórnina svokölluðu; rík-
isstjórn Pírata, Samfylkingar,
Bjartrar framtíðar og Vinstri
grænna. Útlit er fyrir flókn-
ar stjórnarmyndunarvið-
ræður.
31. október
Hækkar laun
Sama dag og Íslendingar kusu
til Alþingis ákveður Kjararáð á
fundi sínum að hækka þingfararkaup
alþingismanna og forseta Íslands
verulega. Breytingin tekur gildi frá og
með 1. nóvember 2016. Þá skulu laun
forseta Íslands vera 2.985.000 krón-
ur á mánuði. Áður voru laun forseta
um 2,3 milljónir og því hækkaðu laun
Guðna Th. Jóhannessonar um tæp-
ar 700 þúsund krónur á mánuði, um
30%. Þingfararkaup alþingismanna
verður 1.101.194 krónur á mánuði en
var áður 762.940 kr. Það er hækkun
um 338.254 kr. og er launahækkun
upp á 44%.K
ri
ng
la
n
Kr
in
gl
um
ýr
ar
br
au
t
Miklabraut
Miklabraut
Við
erum
hér!
Tilb
oð
17 10 bitar fyrir 4-5
5 Stórir bitar og 5 minni. Stórt hrásalat og kokteilsósa.
Stór af frönskum og 2l. Pepsi.
kjúklinga
vefjur og borgarar
Mynd Sigtryggur Ari