Dagblaðið Vísir - DV - 30.12.2016, Blaðsíða 64
Áramótablað 30. desember 2016 11Völvuspáin 2017
athygli í íþróttaheiminum, ekki bara
hérlendis heldur einnig erlend-
is. Bókin mun koma út í nokkrum
löndum og þar dregur kappinn ekk-
ert undan og opinberar áður ókunn
spillingarmál í knattspyrnuheim-
inum.
Vonbrigði í
EuroVison
Íslendingar munu komast í úrslita-
keppni Eurovision og miklar vonir
verða bundnar við góðan árang-
ur enda munu íslenski keppandinn
og liðsveit hans fá mikla umfjöll-
un í erlendum fjölmiðlum og þykja
með geðþekkari keppendum. Áhugi
landsmanna á keppninni er ekki
að dala og völvan segist sjá mik-
ið húllumhæ víða um land í tilefni
keppninnar. Úrslitin munu hins
vegar valda miklum vonbrigðum
en þjóðin verður fljót að jafna sig og
bindur vonir við frábæran árangur
árið 2018.
Milt
VEðurfar
Undir lokin spyr blaðamaður um
veðurfar og völvan kveður upp sinn
úrskurð. Veðurfar verður að mestu
milt á komandi ári. Um það eru all-
ar vættir sammála. Vorið mun þó
kvitta rækilega fyrir mildasta vetur
frá því mælingar hófust með hraust-
legu hreti í maí. Völvan sér dauða
andfugla á hreiðrum og harmleik
tengdan skjálfandi túristum í tjöld-
um.
Sumarið verður það besta í
manna minnum en um leið nöt-
urleg áminning um hraða hlýnun
jarðar. Gríðarlegir þurrkar á stórum
landsvæðum í Afríku og víðar munu
knýja fólksflutninga af áður óþekktri
stærðargráðu. Í ráðaleysi sínu mun
Evrópusambandið herða reglur um
útblástur ökutækja og Íslendingum
dettur ekki annað í hug en að banna
plastpoka. Vesturlönd hafa flotið
sofandi að feigðarósi og á því verður
ekki breyting á komandi ári.
Blaðamaður forvitnast um hugs-
anlegar jarðhræringar og eldgos.
Völvan telur að biðin eftir Kötlu eigi
enn eftir að lengjast. Jarðhræringar
koma þó úr óvæntri átt og völvan
sér að þessu sinni skjálfandi Norð-
lendinga – ekki bara vegna vor-
hretsins – þegar líða tekur á árið.
Mikil tíðindi eiga eftir að líta dags-
ins ljós hvað vatnasvæði Mývatns
áhrærir.
Einn af
toppunuM
k VEður
Völvan rís úr sæti sínu, greinilega
orðin nokkuð þreytt. Hún hafði
sagt blaðamanni í upphafi að hún
myndi ekki spá fyrir um erlenda
atburði. Blaðamaður getur samt
ekki stillt sig um að spyrja. Hún
hristir höfuðið og andvarpar, seg-
ist sjá voðaverk víða um heim,
„eins og endranær“, segir hún og
bætir við að það muni heldur ekki
verða til góðs að maður eins og
Donald Trump stýri einu vold-
ugasta ríki heims. Áður en hún
kveður blaðamann með faðmlagi
segist hún sjá dauðsfall í bresku
konungsfjölskyldunni, „einn af
toppunum“, svo vitnað sé í hana
orðrétt. n
Bláuhúsin v. Faxafen
s: 568 1800 s: 588 9988 s: 511 2500
Kringlunni Skólavördustíg 2
Bestir í sjónmælingum
Tímapantanir í síma
Laugavegur 24
Sími 555 7333
publichouse@publichouse.is
publichouse.is
BENTO BOX
11.30–14.00 virka daga / LUNCH
11.30–15.00 um helgar / BRUNCH
1.990 kr.