Dagblaðið Vísir - DV - 30.12.2016, Blaðsíða 47

Dagblaðið Vísir - DV - 30.12.2016, Blaðsíða 47
Áramótablað 30. desember 20162 Völvuspáin 2017 Leiðandi á leiksvæðum • Sími 565-1048 jh@johannhelgi.is • www.johannhelgi.is Rhino Ramps Jóhann Helgi & Co ehf, „Stofnað 1990“ Sími 565 1048 - 820 8096 jh@johannhelgi.is – www.johannhelgi.is Útileiktæki: Rólur, vegasölt, gormatæki, rennibrautir, leikkastalar ofl. Frá viðurkenndum framleiðendum eins og Lappset, Wicksteed, Stilum, Dynamo, Huck ofl. Járnrimlagirðingar fyrir skóla- og leikskólalóðir, íþróttavelli, fjölbýlishús og einkalóðir. Þýsk gæði frá Legi. Hjólabrettapallar frá Rhino Ramps í Belgíu, komnir upp víða um land við frábærar undirtektir notenda. Fallvarnarefni: Gúmmíhellur frá Þýskalandi og gúmmímottur á gras, þar sem grasið vex upp í gegn um motturnar og motturnar hlífa grasinu og virka sem fallvörn. Leikföng, húsgögn og búnaður fyrir leikskóla frá stærsta dreifingaraðila Danmörku, Lekolar (áður Rabo - Brio). Mörk og körfur, útiþrektæki og ýmsar gerðir af sparkvöllum frá viðurkenndum framleiðendum eins og t.d. Sure Shot, Lappset, Wicksteed og Saysu. Bekkir, ruslafötur, stubbahús, skýli, reiðhjólagrindur, trjágrindur, pollar, ljósastaurar, blómaker ofl. frá GH Form, Vekso, Nifo, Orsogril Vestre o.fl. Bændur og hestamenn: Nótuð plastborð, fjárhúsgólf, búgarðagirðingar (Dallas), gerði og girðingarstaurar. úr plasti, básamottur og fóðurgangamottur. BJóðuM HeiLdarLausnir á LeiksvæðuM. uppsetning, viðHaLd og þJónusta Leitið tiLBoða w w w .jo ha nn he lg i.i s Sumarhúsið og garðurinn 2. 2009 33 M yn di r f rá F er ða þj ón us tu nn i V at ns ho lti w w w .s ta yi ni ce la nd .is Tíðindamikið 2017 V ölvan býr fyrir utan bæinn, í litlu grænmáluðu húsi, og þar er hún ein eftir að hún varð ekkja fyrir þremur árum. Hún segist aðspurð sakna manns síns en viti af honum í öðrum heimi. Sársaukinn sé því ekki jafn mikill og hann ella væri, auk þess hafi hún séð lát hans fyrir og því verið vel undirbúin. Völvan er um sjötugt, myndarleg, lágvaxin kona með augu sem virðast sjá gegnum holt og hæð- ir. Hún talar lágt, hvíslar næstum því. Hún notast við kristalskúlu en segir hana aðeins vera aðstoðartæki, hún sjái myndir af því sem eigi eftir að gerast og ýmsu sé hvíslað að sér. Þetta er ekki í fyrsta sinn sem hún hefur spáð fyrir um komandi ár fyrir DV, en það eru mörg ár frá því það gerðist síðast. Hún segir að langar spár eins og þær sem birtist í DV taki á og kosti mikla orku. Þess vegna segist hún ætla að einbeita sér að at- burðum innanlands en ekki spá fyrir því sem gerast muni úti í hinum stóra heimi. Hún vísar blaðamanni til sætis í lítilli en hlýlegri stofu. Þar er jólatré, ekki mikið skreytt en smekklega. Nokkrar landslagsmyndir eru á veggjum, hún segir þær vera eftir mann sinn sálugan sem var frístunda- málari. Stofan er búin einföldum húsgögnum. Völv- an býr greinilega ekki við munað. Á stofuborðinu er kristalskúlan góða. Völvan býður blaðamanni sæti og sest andspænis honum. n Bjarni Ben forsæTis- ráðherra Völvan sér þriggja flokka stjórn sem mynduð verði í byrjun árs um fá og afmörkuð málefni. Þetta er stjórn þar sem Sjálfstæðisflokkurinn er burðarás með Viðreisn og Bjartri framtíð. Bjarni Benediktsson verð- ur forsætisráðherra og völvan segist sjá Svanhildi Hólm í ráðherraemb- ætti. Stjórnin mun njóta velvild- ar Framsóknarflokks en sitja undir gríðarlega harðri stjórnarand- stöðu bæði innan þings og úti í þjóðfélaginu. Muni þar margir málsmetandi menn leggja hönd á plóg. Völvan sér Illuga Jökul- sson og skoðanabræð- ur hans í miklum ham og margir stjórnarliðar munu kveinka sér undan hörkunni. Völvan segir að Óttarr Proppé, sem verði menntamála- ráðherra, muni standa keikur í mótlætinu og ávinna sér fyrir vikið virðingu fjölmargra stjórnarand- stæðinga. Stjórn- in mun tapa miklu fylgi í skoðana- könnun- um en völvan sér ekki að kosið verði að nýju til Alþingis á næsta ári. flórídafrí vekur aTh ygli Staða Bjarna Benediktssonar hef- ur aldrei verið sterkari innan Sjálf- stæðisflokksins. Hann mun reyndar hljóta bágt fyrir að vera í fríi á Flór- ída þar sem hann lætur ekki ná í sig á ögurstund vegna milliríkjadeilu sem Íslendingar verða aðilar að. Sú deila leysist þó farsællega áður en Bjarni kemur úr fríi. Engin sér- stök eftirmál verða önnur en þau að Bjarni liggur undir ámæli fyrir dáð- leysi í mál- inu. Völvan segist sjá ljóshærða konu taka við varafor- mennsku í Sjálfstæð- isflokkn- um. formanns- skip Ti í viðreisn Formannsskipti verða í Viðreisn á árinu. Völvan segir konu taka við formannsembætti. Þegar blaða- maður spyr hvort sú kona geti verið Þorgerður Katrín Gunnarsdótt- ir eða Hanna Katrín Friðriksson kemur hik á völvuna og hún segir að myndin sem birt- ist í kúlunni sé óljós, en þetta sé alveg örugglega ljóshærð kona. Mikil óánægja mun ríkja meðal stuðningsmanna Við- reisnar með lyktir í Evrópu- sambandsmálinu, en málið verður látið kyrrt liggja á ár- inu og hávær minnihluta- hópur mun telja það mikil svik. Meginþorra þjóðar- innar mun hins vegar standa á sama. BjörT framTíð í vandræðum Þátttaka Bjartrar fram- tíðar í ríkisstjórn til hægri mun valda flokknum mikl- um búsifjum þegar kemur að fylgi. Stuðnings- menn flokksins munu æða fram á ritvöll samfé- lagsmiðla af miklu offorsi og gagn ýna ákvörðunina og mun flokkurinn lengi þurfa að glíma við neikvæða ímynd. Páll Valur Björnsson mun yfirgefa flokkinn með látum og ganga til liðs við stjórnmálaafl á vinstri vængnum. Mun þar mestu ráða óánægja Páls með ríkisstjórnarsamstarfið. ekki ár sigmundar Blaðamaður spyr um Framsóknar- flokkinn. Völvan segir að Sigmund- ur Davíð Gunnlaugsson muni ekki ná vopnum sínum innan flokks- ins á árinu og sér hann skipta um vettvang. Hún segir að deilur Sig- mundar við flokksmenn sína muni verða æ greinilegri á ár- inu. Gunnar Bragi Sveinsson mun gera sitt besta til að fjarlægja sig frá Sigmundi en eiga erfiða daga framund- an innan Fram- sóknarflokksins. Hins vegar mun draga til góðra tíð- inda í einkalífi hans. Völvan segir að þótt Sigmundur Davíð hverfi úr stjórn- málum verði engin hlé á deilum hans við RÚV sem munu blossa upp reglulega á árinu. Hún sér útvarps- stjóra skrifa harðorða grein í Frétta- blaðið og bera blak af starfsmönn- um sínum. Það tiltæki mun hleypa illu blóði í Óla Björn Kárason sem skrifar nokkrar greinar á miðopnu Morgunblaðsins þar sem hann gagnrýnir RÚV harðlega. Völvan segir góða áru yfir Sigurði Inga Jó- hannssyni og honum muni í öllum aðalatrið- um takast að sameina flokkinn og afla honum trausts. Hann eigi þó eftir að víkja sem formaður fyrir Lilju Dögg Alfreðsdóttur. Völvan tekur fram að hún geti ekki tíma- sett formannsskiptin af nákvæmni en þau verði í allra nánustu fram- tíð. Völvan tekur sérstaklega fram að tímasetningar séu það s m erfiðast sé í sambandi við spádóma og ítrekar það reyndar nokkrum sinn m með- an á heimsókn blaðamanns stendur.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96
Blaðsíða 97
Blaðsíða 98
Blaðsíða 99
Blaðsíða 100
Blaðsíða 101
Blaðsíða 102
Blaðsíða 103
Blaðsíða 104
Blaðsíða 105
Blaðsíða 106
Blaðsíða 107
Blaðsíða 108
Blaðsíða 109
Blaðsíða 110
Blaðsíða 111
Blaðsíða 112

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.