Dagblaðið Vísir - DV - 30.12.2016, Blaðsíða 15
Áramótablað 30. desember 201616 Fréttir Innlendur fréttaannáll
Mars
2. mars
Umdeildar arðgreiðslur
Arðgreiðslur stóru tryggingafélag-
anna vekja mikla athygli en þau
ætluðu upphaflega að greiða hlut-
höfum sínum 9,6 milljarða króna í
arð. Fyrst um sinn lýsa stjórnend-
ur þeirra skoðunum sínum um að
greiðslurnar eigi fullan rétt á sér.
Stjórnir Sjóvár og VÍS leggja fram
breytingatillögur um að greiða út
lægri arð og fer heildarupphæðin þá
niður í 2,8 milljarða.
9. mars
Kata ekki í forsetann
Katrín Jakobsdóttir, formaður
Vinstri grænna, tilkynnir að hún
ætli ekki að bjóða sig fram í embætti
forseta Íslands. Þessa ákvörðun tók
hún þrátt fyrir að hafa fengið mikinn
stuðning og hvatningu
til framboðs. Skoð-
anakannanir sýna
að Katrín er afar
vinsæl sem hugs-
anlegur forseta-
frambjóðandi.
15. mars
Gróa á Leiti
Anna Sigurlaug Pálsdóttir,
eiginkona Sigmundar Davíðs Gunn-
laugssonar, sendir frá sér pistil um
að hún geymi fjölskylduarf sinn í
erlenda félaginu Wintris Inc. Upp-
ljóstrun Önnu er mjög óvænt og
óljóst af hverju hún greinir frá þessu
eignarhaldsfélagi sínu og af hverju
hún er yfirhöfuð að neita fyrir að
hún hafi eitthvað að fela. Ráðleggur
hún fólki að gefa Gróu á Leiti „smá
frí“ og að betra sé að „beina orkunni
í að tala um eitthvað sem skiptir
raunverulegu máli“. Síðar kemur í
ljós að Wintris var aflandsfé-
lag sem átti kröfur í þrota-
bú föllnu bankanna.
16. mars
Ætlar í mál
Landsbankinn tek-
ur ákvörðun um að far-
ið verði í mál vegna sölu
bankans á eignarhlut hans í
greiðslukortafyrirtækinu Borg-
un. Komið hefur fram að bankinn
fór þar á mis við milljarða króna
vegna þess að stjórnendur bankans
könnuðu ekki verðmæti eignarinn-
ar til hlítar. Ákvörðun um hverjum
verði stefnt vegna sölunnar hefur þó
ekki enn verið tekin níu mánuðum
síðar þegar árið er á enda.
17. mars
Halla í framboð
Halla Tómasdóttir staðfestir að hún
ætli í framboð til forseta Íslands og
verður nafn hennar því á kjörseðlin-
um í júní. Greinir hún frá ákvörðun-
inni á heimili sínu en hún hafði
lengi verið orðuð við framboð.
23. mars
Síbrotamenn sýknaðir
Héraðsdómur Suðurlands
sýknar þá Annþór
Kristján Karlsson
og Börk Birgisson
af ákæru um
hættulega lík-
amsárás sem
leiddi til dauða
Sigurðar Hólms
Sigurðssonar á
Litla-Hrauni árið
2012. Saksóknari
fór fram á að þeir
yrðu báðir dæmdir í tólf
ára fangelsi en málið var til með-
ferðar hjá lögreglu og í réttarkerfinu
í í fjögur ár. Ríkissaksóknari tekur
í kjölfarið ákvörðun um að áfrýja
málinu til Hæstaréttar.
29. mars
Bæði í Panama-
skjölunum
Bjarni Benediktsson, fjármála-
ráðherra og formaður Sjálfstæð-
isflokksins, og Ólöf Nordal,
innanríkisráðherra og vara-
formaður flokksins, eru
bæði í Panama-skjölunum
vegna tengsla sinna við
aflandsfélög. Bjarni segist
hafa talið að félagið Falson
& Co. hafi verið skráð í
Lúxemborg. Ólöf segir að fé-
lag sem Landsbankinn stofn-
aði fyrir eiginmann hennar,
Tómas Má Sigurðsson, hafi aldrei
verið notað.
Mynd Sigtryggur Ari