Dagblaðið Vísir - DV - 06.01.2017, Side 26

Dagblaðið Vísir - DV - 06.01.2017, Side 26
Helgarblað 6.–9. janúar 20172 Heilsa - Kynningarblað Framúrskarandi fæðu- bótarefni og íþróttavörur Líkami & Boost, hjá Sporthúsinu í Reykjanesbæ L íkami & Boost er verslun sem selur hágæða fæðubótarefni og ýmsar íþróttavörur. Versl- unin er staðsett í Sport- húsinu við Ásbrú í Reykjanesbæ, nánar til- tekið að Flugvallar- braut 701, og hefur auk þess rekið öfluga vefverslun frá því í sumar. Uppistaðan í vöruúrvalinu eru hin frægu fæðu- bótarefni SCI-MX sem njóta mikilla vinsælda hjá keppnis- fólki í fitness og skyldum greinum en henta líka vel almenningi, eða öllu fólki sem vill komast í gott form og viðhalda því. SCI-MX nýtur afar mikillar virðingar og vinsælda sem hágæða- fæðubótarefni en varan er fram- leidd í Bretlandi. Öll fæðubótarefni og drykkjar- og matvörur sem Lík- ami & Boost selur eru framleiddar í Evrópu, undir evrópskum lögum, sem tryggir bæði að varan sé skað- laus og jafnframt lögleg á Íslandi, en þar sem reglur um efnisinnihald og skammtastærðir eru aðrar í Banda- ríkjunum en í Evrópu hafa komið upp vandamál varðandi bandarískar vörur hér á landi. Fyrirtækið Líkami & Boost hefur verið starfandi í núverandi mynd frá árinu 2013 en var í mörg ár þar á undan hluti af fyrirtækinu Líkami & Lífsstíll. Fyrirtækið er með stóran og afar traustan hóp viðskiptavina sem kemur aftur og aftur: „Það er ástæð- an fyrir því að við gátum leyft okkur að starfa án vefverslunar svona lengi en við opnuðum vefverslunina fyrst síðasta sumar. Mest af okkar veltu kemur frá endurteknum viðskiptum við fastakúnnahóp hér á svæðinu en við erum með afar trygga viðskiptavini sem nota okkar vörur aftur og aftur,“ segir Ægir Þór Lárusson, ann- ar eigenda fyrirtæk- isins, en hann rekur það í samvinnu við eiginkonu sína, Ágústu Guðnýju Árna. Boost-bar er í versluninni í Sport- húsinu og vinsælt er að láta blanda fyrir sig drykki eftir æfingar, en svo eru vitanlega margir sem birgja sig upp af þessum hágæðaefnum og blanda drykkina sína heima. Ægir segir að ýmiss konar íþróttahópar sem tengjast starfsemi Sporthússins noti vörurnar einnig mikið: „Við erum í samstarfi við stóra íþróttahópa hér og má þar nefna Superform-hópinn sem tengist samnefndu námskeiði sem kennt er í Sporthúsinu. Superform heldur ár- lega áskorendakeppni í Sporthúsinu og síðast seldist þátttaka í keppn- ina upp á klukkutíma, alls 100 sæti. Þetta er allt fólk sem notar vörurnar frá okkur. Hin þekkta fitness-íþrótta- kona, Freyja Sigurðardóttir, sem var stærsta nafnið í fitness-heiminum upp úr aldamótum, kaupir einnig mikið af okkur og er líklega okkar stærsti einstaki kaupandi.“ Stór og glæsileg vefverslun með gjaldfrjálsri heimsendingu Það liggur í augum uppi að vörur sem njóta svona mikillar tryggðar notenda hljóta að eiga erindi til fleiri. Með opnun vefverslunar á heimasíðu Líkama & Boost, likami- ogboost.is, er að finna öfluga vef- verslun með fjölbreyttu og áhuga- verðu úrvali. Auk fæðubótarefnanna margrómuðu er þar að finna ýmsar gagnlegar og skemmtilegar íþrótta- vörur. Einfalt og þægilegt er að ganga frá viðskiptum á vefnum og varan er síðan send hvert á land sem er, án endurgjalds, gegn því að keypt sér fyrir 5.000 krónur eða meira. n Líkami & Boost Flugvallarbraut 701, Reykjanesbæ Sími: 571-7001, Heimasíða og vefverslun: likamiogboost.is Facebooksíða: www.face- book.com/likamiogboost

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.