Dagblaðið Vísir - DV - 06.01.2017, Qupperneq 26
Helgarblað 6.–9. janúar 20172 Heilsa - Kynningarblað
Framúrskarandi fæðu-
bótarefni og íþróttavörur
Líkami & Boost, hjá Sporthúsinu í Reykjanesbæ
L
íkami & Boost er verslun sem
selur hágæða fæðubótarefni
og ýmsar íþróttavörur. Versl-
unin er staðsett í Sport-
húsinu við Ásbrú í
Reykjanesbæ, nánar til-
tekið að Flugvallar-
braut 701, og hefur
auk þess rekið
öfluga vefverslun
frá því í sumar.
Uppistaðan í
vöruúrvalinu eru
hin frægu fæðu-
bótarefni SCI-MX
sem njóta mikilla
vinsælda hjá keppnis-
fólki í fitness og skyldum
greinum en henta líka vel
almenningi, eða öllu fólki sem vill
komast í gott form og viðhalda því.
SCI-MX nýtur afar mikillar
virðingar og vinsælda sem hágæða-
fæðubótarefni en varan er fram-
leidd í Bretlandi. Öll fæðubótarefni
og drykkjar- og matvörur sem Lík-
ami & Boost selur eru framleiddar
í Evrópu, undir evrópskum lögum,
sem tryggir bæði að varan sé skað-
laus og jafnframt lögleg á Íslandi, en
þar sem reglur um efnisinnihald og
skammtastærðir eru aðrar í Banda-
ríkjunum en í Evrópu hafa komið
upp vandamál varðandi bandarískar
vörur hér á landi.
Fyrirtækið Líkami & Boost hefur
verið starfandi í núverandi mynd
frá árinu 2013 en var í mörg ár þar á
undan hluti af fyrirtækinu Líkami &
Lífsstíll. Fyrirtækið er með stóran og
afar traustan hóp viðskiptavina sem
kemur aftur og aftur: „Það er ástæð-
an fyrir því að við gátum leyft okkur
að starfa án vefverslunar svona lengi
en við opnuðum vefverslunina
fyrst síðasta sumar. Mest
af okkar veltu kemur
frá endurteknum
viðskiptum við
fastakúnnahóp
hér á svæðinu
en við erum
með afar trygga
viðskiptavini
sem nota okkar
vörur aftur og
aftur,“ segir Ægir
Þór Lárusson, ann-
ar eigenda fyrirtæk-
isins, en hann rekur það
í samvinnu við eiginkonu sína,
Ágústu Guðnýju Árna.
Boost-bar er í versluninni í Sport-
húsinu og vinsælt er að láta blanda
fyrir sig drykki eftir æfingar, en svo
eru vitanlega margir sem birgja sig
upp af þessum hágæðaefnum og
blanda drykkina sína heima. Ægir
segir að ýmiss konar íþróttahópar
sem tengjast starfsemi Sporthússins
noti vörurnar einnig mikið:
„Við erum í samstarfi við stóra
íþróttahópa hér og má þar nefna
Superform-hópinn sem tengist
samnefndu námskeiði sem kennt er
í Sporthúsinu. Superform heldur ár-
lega áskorendakeppni í Sporthúsinu
og síðast seldist þátttaka í keppn-
ina upp á klukkutíma, alls 100 sæti.
Þetta er allt fólk sem notar vörurnar
frá okkur. Hin þekkta fitness-íþrótta-
kona, Freyja Sigurðardóttir, sem var
stærsta nafnið í fitness-heiminum
upp úr aldamótum, kaupir einnig
mikið af okkur og er líklega okkar
stærsti einstaki kaupandi.“
Stór og glæsileg vefverslun
með gjaldfrjálsri heimsendingu
Það liggur í augum uppi að vörur
sem njóta svona mikillar tryggðar
notenda hljóta að eiga erindi til
fleiri. Með opnun vefverslunar á
heimasíðu Líkama & Boost, likami-
ogboost.is, er að finna öfluga vef-
verslun með fjölbreyttu og áhuga-
verðu úrvali. Auk fæðubótarefnanna
margrómuðu er þar að finna ýmsar
gagnlegar og skemmtilegar íþrótta-
vörur.
Einfalt og þægilegt er að ganga
frá viðskiptum á vefnum og varan
er síðan send hvert á land sem er,
án endurgjalds, gegn því að
keypt sér fyrir 5.000 krónur
eða meira. n
Líkami & Boost
Flugvallarbraut 701,
Reykjanesbæ Sími: 571-7001,
Heimasíða og vefverslun:
likamiogboost.is
Facebooksíða: www.face-
book.com/likamiogboost