Dagblaðið Vísir - DV - 11.08.2017, Síða 11

Dagblaðið Vísir - DV - 11.08.2017, Síða 11
Helgarblað 11. ágúst 2017 fréttir 11 sem byggði húsið, flutti seinna í herbergi á neðri hæðinni á meðan börn hans og barnabörn bjuggu í aðalíbúðinni á efri hæðinni. „Slíkt sambýli getur haft marga kosti, dregur úr félagslegri ein­ angrun aldurshópa. Gamli maðurinn passaði húsið á meðan hinir voru í burtu og barnabörn­ in kynnast afa sínum betur en ef hann væri á einhverri stofnun. Þetta getur verið skemmtilegt þar sem vel tekst til, það getur falið í sér mikið hagræði fyrir alla en það er miður að ekki sé mikið af hús­ næði sem býður upp á þetta.“ Engin ein lausn á húsnæðisvandanum Pétur segir kynslóðahús ekki leysa húsnæðisvandann, en það sé dæmi um eina mögulega lausn á húsnæðisvanda fólks. Undir það tekur Eygló Harðardóttir. „Það er engin ein lausn sem hentar öllum og því er svo mikilvægt að fólk sé tilbúið að skoða allar mögulegar lausnir með opnum huga. Og kyn­ slóðahúsin, þar sem margar kyn­ slóðir geta búið saman, eða jafn­ vel hús sem fer á milli kynslóða, er ein slík lausn sem þarf að skoða,“ segir Eygló. Vandinn einskorðast ekki við höfuðborgarsvæðið og nefnir Eygló að þegar hún var ráðherra húsnæðismála þá hafi sveitar­ stjórnarmenn á landsbyggðinni nefnt vanda sem fælist í því að eldra fólk seldi ekki húsin sín þótt það væri orðið einstæðingar þar sem húsnæðisverðið væri svo lágt, það gerði það þá að verkum að yngra fólk gat ekki fengið hús­ næði. Í kjölfarið hafi komið til tals hvort sveitarfélögin gætu hjálpað fólki að breyta einbýlishúsi í tvær eða fleiri íbúðir. Sama fyrirkomu­ lag gæti jafnvel hentað á höfuð­ borgarsvæðinu. Annar möguleiki sé að byggja viðbótarhús með bað­ herbergi og eldhúskrók: „Mað­ ur getur ímyndað sér ef þú værir með fólk sem ætti húsnæði, lóð og pláss fyrir viðbótarhús, sem nú er komin heimild fyrir í byggingar­ reglugerðinni að sænskri fyrir­ mynd, þá yrði komið upp húsnæði fyrir börnin til að búa í á meðan þau eru í námi eða að safna fyr­ ir útborgun í íbúð. Svo í fram­ haldinu getur þá annað foreldrið sem væri búið að missa maka sinn en væri í fullu fjöri, búið sjálfstætt en nálægt fjölskyldunni.“ Man ekki eftir jafn miklum húsnæðisvanda og nú Kolbrún Baldursdóttir hefur starf­ að sem sálfræðingur hér á landi í 25 ár, hún segir margt hafa breyst í líðan landsmanna á þessum tíma en á síðustu misserum hafi mik­ ið borið á áhyggjum fólks af hús­ næði. „Líðan barna hefur verið sveiflukennd, það hafa komið erf­ iðir tímar, upp úr aldamótunum fór maður að sjá mikla erfiðleika. En ég man ekki eftir jafn miklum húsnæðisvanda og núna, sumt fólk á ekki sitt heimili, býr inni á öðrum eða býr við óviðunandi aðstæður jafnvel til lengri tíma. Ég man ekki eft­ ir svona miklu vandamáli.“ Það skipt­ ir miklu máli í tengslum við líðan að eiga tryggt þak yfir höfuðið. „Þá er ég ekki að tala um að eiga það endilega, bara hafa það. Það hent­ ar ekkert öllum að eiga húsnæði en þá þarf að vera hægt að leigja. Það fylgir því mikil vanlíðan að hafa ekki öruggan samastað enda um eina af okkar aðal grunnþörf­ um að ræða. Áhyggjur sem þessu tengjast hafa áhrif á alla í fjöl­ skyldunni og valda kvíða og von­ leysi. Það hefur svo mikil áhrif á sjálfsmynd barna sem þurfa að flytja mikið. Þau hafa e.t.v. varla aðlagast og myndað tengsl þegar þau þurfa að flytja aftur. Það set­ ur að mörgum börnum kvíða og áhyggjur þegar þau hugsa hvort þeim takist að eignast vini á enn einum nýjum stað,“ segir Kolbrún. Hún segir það vissulega jákvætt þegar foreldrar geti komið börn­ um sínum til aðstoðar í húsnæðis­ málum, til dæmis með því að breyta kjallara eða bílskúr í íbúð, en það þurfi að horfast í augu við það að ekki allir foreldrar hafa kost á því að hjálpa börnunum sínum. „Ég fæ oft til mín fólk sem er í mjög erfiðum húsnæðisvanda, má þar nefna fólk sem hefur ekki baðaðstöðu og fólk sem deilir sal­ erni með öðrum en fjölskyldunni. Hér er oft um fátækt fólk að ræða sem vegna fátæktar sinnar þarf að sætta sig við aðstæður sem þessar. Þetta á ekki að þurfa að vera svona í okkar litla samfélagi. Barn sem lifir við þessar aðstæður situr ekki við sama borð og börn sem eiga foreldra í betri efnahagsstöðu. Það ríkir því sannarlega mikill ójöfn­ uður í samfélagi sem ætti að geta séð vel um alla sína þegna.“ Vanmetum ekki hversu mikil- vægt það er að hjálpast að Eygló segir þróunina hafa verið í þá átt að nándin fari minnkandi, tengsl fólks séu minni og sífellt fleiri tali um einmanaleika. „Eitt sem við höfum haft miklar áhyggjur af hjá eldra fólki er einmanaleiki. Banda­ rískar rannsóknir sýna að á síðustu áratugum hafa Bandaríkjamenn týnt einum vini, þeir sem áttu að jafnaði þrjá nána vini eiga nú bara tvo. Þetta er eitthvað sem við sem samfélag þurfum að huga að. Við erum svo heppin að við erum lítið samfélag, náið samfélag, við leggj­ um mikið upp úr fjölskyldutengsl­ um og hluti af því er að geta búið nálægt fjölskyldunni,“ segir Eygló. Margir sem búa eða hafa búið er­ lendis kannast við að sakna fjöl­ skyldutengslanna á Íslandi og hvað þau hjálpa mikið. „Þegar við erum að hanna hverfi og húsnæði þá tel ég það vera mjög mikilvægt að hafa þetta í huga. Hvort sem við erum að tala um viðbótarhús sem sett sé í garðinn eða að breyta fyrirliggj­ andi húsnæði í tvær íbúðir, þá vær­ um við komin með tvær fjölskyld­ ur sem stæðu þá undir rekstrinum af þessu húsi. Þú getur verið með stórt einbýlishús, upp á tvö til fjögur hundruð fermetra, skipt því í tvennt og þú ert kominn með tvær íbúðir sem eru hundrað til tvö hundruð fermetrar, ég held að það sé enginn sem myndi halda því fram að þarna yrði þröngt um þessar tvær fjöl­ skyldur. Það væri svo jafnvel kom­ inn möguleiki á að þriðja kynslóðin kæmi þarna inn. Það er það sem mér finnst svo heillandi við þetta, það er að við tölum ekki niður eða vanmetum hversu mikilvægt það er að við hjálpumst að.“ Hægt að breyta skattaumhverfinu Unnið var gegn kynslóðahúsum í skipulagsskilmálum og í eldri byggingarreglugerðum, bæði hér á landi sem og víðar, þar sem talið var að fjölgun íbúða myndi gera hverfi of þétt og skapa bílastæða­ vandamál. Portland í Oregon­ríki í Bandaríkjunum er dæmi um borg þar sem viðbótarhúsum hef­ ur fjölgað til muna á undanförn­ um áratug og benda nýlegar rann­ sóknir til að íbúar borgarinnar séu almennt ánægðir með það fyrir­ komulag og má nefna að 75 pró­ sent allra nýrra einbýlishúsa sem byggð voru í borginni árið 2013 voru byggð með viðbótarhúsi á lóðinni, ýmist þá fyrir ættingja eða leigjendur. Að sama skapi hafa orðið til fyrirtæki sem sérhæfa sig í að byggja eða koma fyrir slíkum húsum sem geta ýmist verið falin í bakgarðinum eða jafnvel í sama byggingarstíl og einbýlishúsið. Eygló segir að hér á landi megi gera það auðveldara að breyta húsnæði en slíkt sé á valdi sveitarfélaganna sem fara með skipulagsvaldið. „Það er í höndum byggingarfulltrúanna og sveitar­ stjórnarmannanna að segja til um hvort þetta sé hægt að ekki.“ Þetta sé ein leið til að stuðla að séreign. Nefnir hún einnig að breyta mætti skattaumhverfinu til að hvetja þá sem eru að byggja til að vera með auka íbúð, ýmist fyrir einhvern tengdan eigandanum eða til að leigja út, sem myndi bæði hjálpa til að draga úr húsnæðisvandan­ um sem og að hjálpa eigandanum að greiða niður húsnæðið. Pétur segir húsnæðisvandann alfarið á ábyrgð stjórnmálanna, húsnæðisskortur sé eitthvað sem menn hafi getað leyst áður fyrr: „Það var gríðarlegt húsnæðis­ leysi í Reykjavík eftir stríðið og fólk neyddist til að búa í bröggum. Kannski var neyðin ennþá meiri þá en hún er í dag, þótt fólk búi þröngt í dag þá búa ekki margir í húsnæði sem er jafn lélegt og braggi. Á þessum tíma var verka­ mannabústaðakerfi, það hefði kannski mátt byggja það hraðar en gert var, svo þróaðist þetta lána­ kerfi og ég hef aldrei getað skilið hvers vegna þetta kerfi var eyði­ lagt. Það er kjarni málsins og þess vegna er þessi staða komin upp.“ Skiptir öllu máli að þetta sé val Eygló bendir á að það skipti öllu máli að fólk sé ekki neytt til að búa saman. Kolbrún tekur í sama streng. „Það fer mikið eftir því hvort þú ert að velja þetta af því að þig langar til að hafa þetta þannig og allir séu sammála eða hvort þetta sé vegna þess að fólk geti ekki fengið sér annað húsnæði, sé jafn­ vel á götunni og eigi ekki vonir um húsnæði á næstunni. Það skiptir öllu að kynslóðirnar sem eiga að búa undir sama þaki séu sáttar og sjái hag í sambúðinni. Þá er þetta sannarlega mjög jákvætt. En ef þú ert til dæmis á fertugsaldri með lítil börn og í húsnæðiskröggum og átt ekki í önnur hús að venda en hjá foreldrum, þá getur verið að því fylgi ekki góð líðan.“ Hér skipt­ ir einnig máli hvort um sé að ræða tímabundna veru í foreldrahúsum eða hvort óvíst sé hvenær rætist úr húsnæðismálunum. Ef allir eru hins vegar sátt­ ir við að búa saman í lengri eða styttri tíma í húsnæði þar sem einstaka fjölskylda hefur einnig sitt ákveðna rými þá segir Kol­ brún það geta verið mjög jákvætt. „Það eru gríðarlegir kostir við það þegar fólk velur að vera saman, bara eins og við þekkjum úr okkar sögu þegar börnin voru í pössun hjá ömmu og afa og lærðu af þeim. Það eru til fjölskyldur sem búa í sama húsinu kannski á þremur hæðum, það er frábært fyrir börn­ in að geta komið heim úr skólan­ um og alltaf einhver heima til að taka á móti þeim og tala við þau. Það er dásamlegt.“ n Eygló Harðardóttir Bjó í lítilli þriggja herbergja íbúð hjá afa og ömmu „Þegar ég fæðist er móðir mín bara sextán ára gömul í lítilli þriggja herbergja íbúð hjá afa og ömmu. Langamma var líka búsett þarna, bróðir ömmu og systur mömmu. Þetta var þröngt. En það gerði það að verkum að móðir mín gat klárað framhaldsskóla, það var byggt undir hana þannig að hún gat haldið áfram í háskólanám og það tryggði að hún gat séð fyrir okkur. Þegar maður hugsar til baka, hversu óendanlega þakklátur maður er að það kom ekki annað til greina en að fólk hjálpaðist að. Í minningunni þá var alltaf sól og ég man aldrei eftir því að það hafi verið plássleysi. Það hlýtur að hafa verið mjög þröngt, en það var eitthvað sem ég upplifði aldrei. Þessu fylgdu mjög náin tengsl við afa minn og ömmu sem entust alla ævi. Þetta er eitthvað sem við eigum að hafa í huga þegar við erum að skipuleggja húsnæði, að við séum ekki að einangra fólk og þá eiga kynslóðahús að vera uppi á borðinu.“ Kolbrún Baldursdóttir Vorum fimm í 40 fermetra íbúð „Ég ólst upp í Vesturbænum, við vorum fimm í 40 fermetra íbúð. Þröngt mega sáttir sitja og þetta gekk vel. Það er ekki fermetrafjöldinn sem skiptir máli. Það er ekkert línulegt samhengi milli fjölda fermetra og gleði og hamingju. Það er öryggið sem skiptir máli, að eiga fastan samastað. Þú veist þú getur verið þarna áfram, það er aðalatriðið. Þess vegna skiptir svo miklu máli að auka framboð lítilla íbúða, þá getur fólk valið, að búa hjá foreldrum eða leigt eða keypt litla íbúð eftir því sem hentar. Fyrir ungar fjölskyldur eru foreldrar, afar og ömmur, oft ómetanleg aðstoð hvað varðar svo margt. En það hafa ekki allir slíkt bakland. Stundum eru foreldrarnir sjálfir ekki í stakk búnir til að hjálpa, eiga nóg með sig. Í öðrum tilfellum eru foreldrar ekki til staðar, búa e.t.v. annars staðar á landinu eða erlendis.“ „Slíkt sam- býli getur haft marga kosti, dregur úr félags- legri einangrun aldurshópa. Viðbótarhús Í bandarískum borgum hefur við bótarhúsum fjölgað til muna þar sem það hefur verið le yft. Oft eru þau í bak- garðinum eða í sama byggingarstíl og einb ýlishúsið.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.