Dagblaðið Vísir - DV - 11.08.2017, Page 28
Ég lærði grafíska hönnun í Listaháskólanum og útskrifaðist þaðan 2002, það
eru 15 ár síðan. Þetta leið svona
hratt,“ segir Ólöf Erla og smellir
fingrum. „Ég hef haft mikinn
áhuga á að teikna og lita alveg frá
því ég var lítil.
Svo þegar ég var yngri vissi ég
ekkert hvað ég vildi gera í lífinu.
Ég var að vinna á leikskóla og
einn dag kom ný stelpa að vinna
sinn fyrsta dag og við enduðum í
kaffi saman. Þar var hún að skrifa
og fylla út umsókn um fornám
í Myndlista- og handíðaskólan-
um. Og ég var svona hissa á að
maður færi í inntökupróf, en var
áhugasöm og spurði hana mikið
um þetta og hún dró fram annað
blað og sagði: „Hérna, ég er með
auka umsóknarblað“.“
Nýja stelpan mætti aldrei aftur
til vinnu á leikskólanum, en Ólöf
Erla fyllti út umsóknina, skilaði
henni inn, fór í tveggja daga inn-
tökupróf og fékk inngöngu. „Ég
ætlaði alltaf að læra málun, af því
ég elska að mála. En í fornáminu,
sem er eitt ár, þá fórum við að
heimsækja hinar deildirnar. Árið
2000 var grafísk hönnun eitthvað
nýtt og ég hafði aldrei heyrt um
það áður. Og þarna var Guð-
mundur Oddur að predika eins
og honum einum er lagið. Og ég
fékk svona hugljómun, vá hvað
þetta er áhugavert.“
Ólöf Erla ákvað því að skipta
um nám, skráði sig í Grafíska
hönnun 1 og Málun til vara og
hugsaði að hentugt væri að læra
grafísku hönnunina og mála
síðan þegar hún kæmi heim á
kvöldin. Síðan flaug hún inn í
grafíska hönnun. En ekki vildi
betur til en svo að fyrsta daginn
í náminu braut hún á sér hægri
hendina og var í gifsi fyrstu átta
vikurnar. „Ég var með tvo fingur
lausa í átta vikur,“ segir Ólöf Erla
og hlær.
„Ég vissi ekkert um grafíska
hönnun, en lauk náminu 2002
og hef unnið við hana síðan í
fullri vinnu, 9–5. En ég hef alltaf
unnið sjálfstætt með fjölmörgum
skemmtilegum aukaverkefnum
og þá hef ég kallað mig Ólöf Erla
Design.“
Afleysing varð að 11 árum
Ólöf Erla var fyrst hjá RÚV í 11
ár. „Ég ætlaði bara að leysa af, en
endaði með að vera þar í 11 ár. Ég
var mikið í hreyfimyndagrafík og
leikmyndahönnun, auglýsinga-
hönnun og síðustu árin sá ég
mikið um markaðsefni þar. Í
fyrra bauð 365 mér síðan vinnu
sem „art director“ í markaðsdeild
og ég tók þá erfiðu ákvörðun,
einstæð tveggja barna móðir, að
fara úr örygginu á RÚV og í nýja
vinnu. En ég var ekki lengi þar,
þetta fór ekki alveg eins og til
stóð.“
Daginn sem Ólöf Erla ákvað
að segja upp á 365 fékk hún
símtal frá markaðsstjóra Nova
sem bauð henni vinnu. „Ég hafði
heyrt að Nova væri öflugt í mark-
aðsmálum og mig hefur alltaf
langað að vera sterk þar. Þannig
að ég fór og var eitt ár hjá Nova.
Það var frábær lærdómur, en
kannski út fyrir það sem ég hef
unnið við, þannig að mér fannst
ég aðeins „useless“ svona undir
það síðasta. Ég er vön að vera í
mikilli myndvinnslu, auglýsinga-
hönnun og myndatöku sjálf, en
það var ekki mikið um það hjá
Nova og mig var farið að vanta
það svolítið.“
Ólöfu Erlu hafði lengi langað
að gerast sjálfstæð og segir að
síðasta eitt og hálfa árið hafi
beint henni á þá braut að gera
hlutina sjálf.
„Ég er að fríka út, en er á sama
tíma gríðarlega spennt og nú
þegar er brjálað að gera. Ég held
að ég þurfi ekki að hafa miklar
áhyggjur,“ segir Ólöf Erla og
brosir.
Vann til verðlauna í Bretlandi
Ólöf Erla hefur ekki unnið mikið
að erlendum verkefnum og að-
allega einbeitt sér að verkefnum
hér heima. En fyrir sex árum var
hún tilnefnd til erlendra verð-
launa fyrir „art work“ sem hún
gerði á þrjár bókarkápur fyrir
ástralskan rithöfund. Harper
Collins gaf bækurnar út og var
Ólöf Erla tilnefnd til verðlauna
í Bretlandi í fantasíuverðlauna-
flokki og fór með sigur af hólmi.
„Ég fór á afhendinguna og bjóst
alls ekki við að vinna,“ segir Ólöf
Erla, sem fékk mjög flottan krist-
alsverðlaunagrip fyrir.
Sjálflærður ljósmyndari
Ólöf Erla er ekki lærður ljós-
myndari, en vann í mörg ár við
hugmyndavinnu og að stærri
verkefnum. „Ég var við mynda-
tökur og þurfti að segja til um
hvernig þær ættu að vera. Svo
fékk ég myndirnar og kláraði að
vinna þær. Ég fór að fylgjast með
og smátt og smátt að prófa og
svo á endanum tók ég myndirnar
sjálf. Ég veit hvað ég ætla að gera,
hvernig lýsingu ég vil hafa og
hvernig lokaútkoman á að vera.“
En af hverju SVART?
„Ég hugsaði mikið um nafnið,
ég er búin að vera með Ólöf Erla
Design í mörg ár og það mun
halda áfram, sem ljósmyndari,
myndvinnsla og myndlist. En mig
langaði að vera með hönnunar-
Ólöf Erla lét slag standa
og hóf að starfa sjálfstætt
Ólöf Erla Einarsdóttir hefur frá unga aldri haft
áhuga á að teikna og mála. Þegar hún var enn að
ákveða hvað hún ætti að gera í lífinu, sótti hún af
rælni um inngöngu í Myndlista- og handíðaskólann og
komst inn. Hún skipti síðan um nám og útskrifaðist sem
grafískur hönnuður. Nýlega breytti hún aftur um stefnu
og fór að vinna sjálfstætt með eigið fyrirtæki, SVART.
„SVART
var eina
sem kom
til greina“
Flest veljum við okkur starfsvett-
vang eða farveg snemma í lífinu,
sumir ákveða snemma hvað þeir
ætla að gera þegar þeir verða
„stórir“, fara í margra ára nám
og ljúka því og verða „stórir“ og
vinna síðan starfsævina á enda
við það sem þeir ákváðu og
menntuðu sig til. Sem er frábært
og besta mál ef viðkomandi er
sáttur í sínum farvegi, á sinni
hillu, finnst gaman og gefandi í
vinnunni og kemur heim sáttur
flesta daga að loknum vinnudegi.
Svo eru hinir sem finna sig
ekki í farveginum sem þeir völdu
sér, en ákveða engu að síður
að vera áfram þar, kvartandi
og kveinandi, sér og samferða-
mönnum og vinnufélögum til
ama. Sífellt kvart og kvein og
setningar eins og „Æ, það er
svo leiðinlegt hérna, ég ætti nú
að hætta og finna mér eitthvað
betra að gera“ eru nefnilega jafn-
smitandi og gleði, grín og gott
samstarf á vinnustaðnum.
Síðast en ekki síst eru þeir
sem finna sig ekki í farveginum
og ákveða að finna sér nýjan
farveg í lífinu, hætta í vinnunni
og finna sér aðra, jafnvel allt
öðruvísi, fara og mennta sig,
mennta sig meira eða mennta
sig í einhverju allt öðru en þeir
gerðu fyrst. Þeir sem færa sig
úr örygginu og rútínunni yfir í
óvissuna eins og við segjum svo
oft um þetta „skrýtna“ fólk sem
kúvendir í starfi, jafnvel á miðj-
um starfsaldri.
En yfirleitt er ekkert að óttast,
nema óttann við að breyta til.
Breytingar eru langoftast til
góðs, þær þroska mann, efla og
kenna manni eitthvað nýtt. Á
nýjum vinnustað, í nýju námi
kynnist maður líka fleira fólki
og hver hefur ekki gott af því að
kynnast góðu fólki, sem getur
kennt manni eitthvað? Ef þú ert
þessi sem er búinn að hjakka
lengi í sama fari, hræddur við
breytingar og síkvartandi, hættu
því. Kraflaðu þig upp og prófaðu
eitthvað nýtt, skiptu um vinnu
eða óskaðu eftir nýjum, fleiri
eða færri verkefnum í vinnunni,
lærðu eitthvað nýtt, ögraðu
sjálfum þér.
Ef þú ert alveg skíthrædd/ur
við breytingar, þá er gott að byrja
smátt og halda svo áfram þaðan.
Ég mæli með að byrja á að sofa
öfugt í rúminu með fæturna á
koddanum, líkt og Lína lang-
sokkur. Í kjölfarið má svo gera
stærri breytingar.
Kveðja Ragna – sem er enn að
ákveða hvað hún ætlar að vera
þegar hún verður stór
ragna@dv.is
„Það er
munaður að
nýta öll sín
tækifæri“
mynd mummi Lú