Dagblaðið Vísir - DV - 11.08.2017, Síða 28

Dagblaðið Vísir - DV - 11.08.2017, Síða 28
Ég lærði grafíska hönnun í Listaháskólanum og útskrifaðist þaðan 2002, það eru 15 ár síðan. Þetta leið svona hratt,“ segir Ólöf Erla og smellir fingrum. „Ég hef haft mikinn áhuga á að teikna og lita alveg frá því ég var lítil. Svo þegar ég var yngri vissi ég ekkert hvað ég vildi gera í lífinu. Ég var að vinna á leikskóla og einn dag kom ný stelpa að vinna sinn fyrsta dag og við enduðum í kaffi saman. Þar var hún að skrifa og fylla út umsókn um fornám í Myndlista- og handíðaskólan- um. Og ég var svona hissa á að maður færi í inntökupróf, en var áhugasöm og spurði hana mikið um þetta og hún dró fram annað blað og sagði: „Hérna, ég er með auka umsóknarblað“.“ Nýja stelpan mætti aldrei aftur til vinnu á leikskólanum, en Ólöf Erla fyllti út umsóknina, skilaði henni inn, fór í tveggja daga inn- tökupróf og fékk inngöngu. „Ég ætlaði alltaf að læra málun, af því ég elska að mála. En í fornáminu, sem er eitt ár, þá fórum við að heimsækja hinar deildirnar. Árið 2000 var grafísk hönnun eitthvað nýtt og ég hafði aldrei heyrt um það áður. Og þarna var Guð- mundur Oddur að predika eins og honum einum er lagið. Og ég fékk svona hugljómun, vá hvað þetta er áhugavert.“ Ólöf Erla ákvað því að skipta um nám, skráði sig í Grafíska hönnun 1 og Málun til vara og hugsaði að hentugt væri að læra grafísku hönnunina og mála síðan þegar hún kæmi heim á kvöldin. Síðan flaug hún inn í grafíska hönnun. En ekki vildi betur til en svo að fyrsta daginn í náminu braut hún á sér hægri hendina og var í gifsi fyrstu átta vikurnar. „Ég var með tvo fingur lausa í átta vikur,“ segir Ólöf Erla og hlær. „Ég vissi ekkert um grafíska hönnun, en lauk náminu 2002 og hef unnið við hana síðan í fullri vinnu, 9–5. En ég hef alltaf unnið sjálfstætt með fjölmörgum skemmtilegum aukaverkefnum og þá hef ég kallað mig Ólöf Erla Design.“ Afleysing varð að 11 árum Ólöf Erla var fyrst hjá RÚV í 11 ár. „Ég ætlaði bara að leysa af, en endaði með að vera þar í 11 ár. Ég var mikið í hreyfimyndagrafík og leikmyndahönnun, auglýsinga- hönnun og síðustu árin sá ég mikið um markaðsefni þar. Í fyrra bauð 365 mér síðan vinnu sem „art director“ í markaðsdeild og ég tók þá erfiðu ákvörðun, einstæð tveggja barna móðir, að fara úr örygginu á RÚV og í nýja vinnu. En ég var ekki lengi þar, þetta fór ekki alveg eins og til stóð.“ Daginn sem Ólöf Erla ákvað að segja upp á 365 fékk hún símtal frá markaðsstjóra Nova sem bauð henni vinnu. „Ég hafði heyrt að Nova væri öflugt í mark- aðsmálum og mig hefur alltaf langað að vera sterk þar. Þannig að ég fór og var eitt ár hjá Nova. Það var frábær lærdómur, en kannski út fyrir það sem ég hef unnið við, þannig að mér fannst ég aðeins „useless“ svona undir það síðasta. Ég er vön að vera í mikilli myndvinnslu, auglýsinga- hönnun og myndatöku sjálf, en það var ekki mikið um það hjá Nova og mig var farið að vanta það svolítið.“ Ólöfu Erlu hafði lengi langað að gerast sjálfstæð og segir að síðasta eitt og hálfa árið hafi beint henni á þá braut að gera hlutina sjálf. „Ég er að fríka út, en er á sama tíma gríðarlega spennt og nú þegar er brjálað að gera. Ég held að ég þurfi ekki að hafa miklar áhyggjur,“ segir Ólöf Erla og brosir. Vann til verðlauna í Bretlandi Ólöf Erla hefur ekki unnið mikið að erlendum verkefnum og að- allega einbeitt sér að verkefnum hér heima. En fyrir sex árum var hún tilnefnd til erlendra verð- launa fyrir „art work“ sem hún gerði á þrjár bókarkápur fyrir ástralskan rithöfund. Harper Collins gaf bækurnar út og var Ólöf Erla tilnefnd til verðlauna í Bretlandi í fantasíuverðlauna- flokki og fór með sigur af hólmi. „Ég fór á afhendinguna og bjóst alls ekki við að vinna,“ segir Ólöf Erla, sem fékk mjög flottan krist- alsverðlaunagrip fyrir. Sjálflærður ljósmyndari Ólöf Erla er ekki lærður ljós- myndari, en vann í mörg ár við hugmyndavinnu og að stærri verkefnum. „Ég var við mynda- tökur og þurfti að segja til um hvernig þær ættu að vera. Svo fékk ég myndirnar og kláraði að vinna þær. Ég fór að fylgjast með og smátt og smátt að prófa og svo á endanum tók ég myndirnar sjálf. Ég veit hvað ég ætla að gera, hvernig lýsingu ég vil hafa og hvernig lokaútkoman á að vera.“ En af hverju SVART? „Ég hugsaði mikið um nafnið, ég er búin að vera með Ólöf Erla Design í mörg ár og það mun halda áfram, sem ljósmyndari, myndvinnsla og myndlist. En mig langaði að vera með hönnunar- Ólöf Erla lét slag standa og hóf að starfa sjálfstætt Ólöf Erla Einarsdóttir hefur frá unga aldri haft áhuga á að teikna og mála. Þegar hún var enn að ákveða hvað hún ætti að gera í lífinu, sótti hún af rælni um inngöngu í Myndlista- og handíðaskólann og komst inn. Hún skipti síðan um nám og útskrifaðist sem grafískur hönnuður. Nýlega breytti hún aftur um stefnu og fór að vinna sjálfstætt með eigið fyrirtæki, SVART. „SVART var eina sem kom til greina“ Flest veljum við okkur starfsvett- vang eða farveg snemma í lífinu, sumir ákveða snemma hvað þeir ætla að gera þegar þeir verða „stórir“, fara í margra ára nám og ljúka því og verða „stórir“ og vinna síðan starfsævina á enda við það sem þeir ákváðu og menntuðu sig til. Sem er frábært og besta mál ef viðkomandi er sáttur í sínum farvegi, á sinni hillu, finnst gaman og gefandi í vinnunni og kemur heim sáttur flesta daga að loknum vinnudegi. Svo eru hinir sem finna sig ekki í farveginum sem þeir völdu sér, en ákveða engu að síður að vera áfram þar, kvartandi og kveinandi, sér og samferða- mönnum og vinnufélögum til ama. Sífellt kvart og kvein og setningar eins og „Æ, það er svo leiðinlegt hérna, ég ætti nú að hætta og finna mér eitthvað betra að gera“ eru nefnilega jafn- smitandi og gleði, grín og gott samstarf á vinnustaðnum. Síðast en ekki síst eru þeir sem finna sig ekki í farveginum og ákveða að finna sér nýjan farveg í lífinu, hætta í vinnunni og finna sér aðra, jafnvel allt öðruvísi, fara og mennta sig, mennta sig meira eða mennta sig í einhverju allt öðru en þeir gerðu fyrst. Þeir sem færa sig úr örygginu og rútínunni yfir í óvissuna eins og við segjum svo oft um þetta „skrýtna“ fólk sem kúvendir í starfi, jafnvel á miðj- um starfsaldri. En yfirleitt er ekkert að óttast, nema óttann við að breyta til. Breytingar eru langoftast til góðs, þær þroska mann, efla og kenna manni eitthvað nýtt. Á nýjum vinnustað, í nýju námi kynnist maður líka fleira fólki og hver hefur ekki gott af því að kynnast góðu fólki, sem getur kennt manni eitthvað? Ef þú ert þessi sem er búinn að hjakka lengi í sama fari, hræddur við breytingar og síkvartandi, hættu því. Kraflaðu þig upp og prófaðu eitthvað nýtt, skiptu um vinnu eða óskaðu eftir nýjum, fleiri eða færri verkefnum í vinnunni, lærðu eitthvað nýtt, ögraðu sjálfum þér. Ef þú ert alveg skíthrædd/ur við breytingar, þá er gott að byrja smátt og halda svo áfram þaðan. Ég mæli með að byrja á að sofa öfugt í rúminu með fæturna á koddanum, líkt og Lína lang- sokkur. Í kjölfarið má svo gera stærri breytingar. Kveðja Ragna – sem er enn að ákveða hvað hún ætlar að vera þegar hún verður stór ragna@dv.is „Það er munaður að nýta öll sín tækifæri“ mynd mummi Lú

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.