Dagblaðið Vísir - DV - 11.08.2017, Page 57

Dagblaðið Vísir - DV - 11.08.2017, Page 57
Helgarblað 11. ágúst 2017 KYNNING Kænan er staðsett alveg við höfnina í miðbæ Hafnarfjarðar og má að mörgu leyti líkja við Kaffi- vagninn í Reykjavík þó að báðir staðirnir séu einstakir á sinn hátt. Gestir Kænunnar kunna vel að meta þjóðlegan íslenskan heimilismat sem staðurinn sérhæfir sig í. Það er alltaf mikið að gera í hádeginu enda stór og fjölbreyttur hópur viðskiptavina. „Hingað koma iðnaðarmenn sem vinna úti um allan bæ, þeir gera sér ferð á Kænuna í góðan hádeg- ismat. Svo er stór hluti viðskiptavina okkar að vinna við höfnina og hér í kring. Góður hópur herramanna á sinn stað hér í morgunkaffi og spjalli,“ segir Oddsteinn Gíslason, veitingamað- ur á Kænunni, en hann tók við staðnum ásamt eiginkonu sinni, Helgu Ösp Jóhannsdóttur, snemma á þessu ári. Þau hjónin leggja mikla áherslu á ferskt og gott hráefni í mat- argerðina og til dæmis er ávallt glænýr fiskur á matseðlinum. Erlendum ferða- mönnum fer fjölgandi í gestahópi Kænunnar og er unnið að því að taka á móti ferðahópum í fiskihlaðborð á kvöldin með vorinu. Kænan er kjörinn staður fyrir alla þá sem vilja prófa að borða hefðbundinn ís- lenskan heimilismat og því óhætt að mæla með staðn- um fyrir erlenda ferðamenn sem vilja kynnast íslenskri matseld. Kænan er heppilegur hádegisverðarstaður fyrir vinnandi fólk á svæðinu, því hver vill ekki gæða sér á staðgóðum, íslenskum heim- ilismat í hádeginu? Matseðilinn má sjá á kaenan.is og Facebook-síðu Kænunnar. Kænan: Notalegur staður með frábært útsýni Útsýnið er ekki amalegt úr veitingasalnum

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.