Dagblaðið Vísir - DV - 11.08.2017, Page 62

Dagblaðið Vísir - DV - 11.08.2017, Page 62
38 menning Helgarblað 11. ágúst 2017 Í fallegu raðhúsi í Hvassaleiti þekja málverk og myndir alla veggi. Allt frá gólfi og upp í loft, í stofu, eldhúsi og stiga- gangi hanga fjölbreytt listaverk, klassísk landslagsmálverk og hafnarmyndir, abstraktverk jafnt sem súrrealískar fígúrur, allt frá Þórarni B. Þorlákssyni til Guð- mundu Andrésdóttur, frá Jó- hannesi Kjarval til Muggs og ungra listamanna á borð við Þor- vald Jónsson. Þetta er einstakur afrakstur um fjögurra áratuga söfnunar- áráttu og óþrjótandi myndlist- aráhuga Braga Guðlaugssonar, iðnaðarmanns og eins ástríðu- fyllsta listaverkasafnara landsins. Hugsar um lítið annað „Foreldrar mínir áttu eitthvað af myndum en það var helst eft- ir alþýðumálara. Það er ekki mik- ið af listamönnum í fjölskyldunni – þó einn frændi minn sé reynd- ar málari,“ segir Bragi þegar hann er spurður hvort myndlistar- áhuginn sé honum í blóð borinn. „Ég hef hins vegar haft áhuga á myndlist frá því að ég var ung- ur maður, tuttugu og eitthvað ára gamall. Þá fór ég að feta mig áfram í þessu. Ég byrjaði að kaupa nokkrar myndir eftir alþýðumál- ara, myndir sem voru ekki mjög dýrar en heldur ekki mjög góðar. Þetta eru myndir sem ég er ekki jafn hrifinn af í dag svo ég er bú- inn að losa mig við þær allar. En maður verður að byrja á botnin- um, svo byrjar maður að feta sig upp,“ útskýrir hann. „Fyrstu alvöru myndina keypti ég svona upp úr 1980. Það var Kjarvalsmynd sem ég á enn þann dag í dag og birtist reynd- ar í stóru Kjarvalsbókinni hérna um árið.“ Varð myndlistarsöfnunin strax að mikilli áráttu? „Já, hún varð það nú. Maður fór örlítið að spá í spilin og fljót- lega varð löngunin öllu yfirsterk- ari. Þá fór maður að setja pening í þetta. Ein ástæðan fyrir söfn- unarþörfinni getur verið að ég átti mjög lítið af leikföngum sem barn,“ segir Bragi og hlær. „Ég hætti líka að drekka á þessum tíma eins og hálf þjóðin neyðist til að gera.“ Það hlýtur að hafa farið gríðarlega mikill tími, vinna og ástríða í söfnunina. Er þetta það eina sem þú hefur hugsað um síð- ustu áratugina? „Já, það má eiginlega segja það, fyrir utan mína vinnu en ég er iðnaðarmaður og hef unnið sem verktaki í 40 ár. Þetta er það eina sem ég hugsa um þess á milli, eina óreglan.“ Og hvað finnst fjölskyldunni um það? „Konan er bara voða ánægð með þetta hjá mér og leyfir mér að ráða þessu nokkurn veginn.“ Skipt á vinnu og verkum „Ég veit ekki hvað ég á mikið af verkum í dag. Þetta skiptir ein- hverjum hundruðum – þetta er ekki meira en það, kannski svip- að og góður bóndi í Skagafirði á af hrossum – eða 200–300 verk,“ segir Bragi þegar hann er spurð- ur um fjölda listaverka í safninu. Þó að vissulega séu til íslenskir safnarar sem eigi enn fleiri verk eru þeir varla margir. Bragi er iðnmenntaður og hef- ur unnið sem sjálfstæður verktaki lengst af sinni starfsævi. Hann segir þó að honum hafi alltaf tek- ist að safna fyrir nýjum listaverk- um en annars hafi hann fundið aðrar leiðir til að sinna söfnun- inni. Hann hafi oft unnið fyrir myndlistarmenn í skiptum fyrir verk. Hann nefnir til að mynda að hann hafi eitt sinn unnið í þrjá mánuði við að ramma inn mynd- ir eftir ýmsa listamenn og aðeins fengið greitt í verkum. „Seinna vann ég fyrir Georg Iðnaðarmaður sem elskar myndlist n Myndlistarsafn Braga Guðlaugssonar er ómetanlegur fjársjóður n Hátt í þrjú hundruð listaverk í einstöku einkasafni„Fljótlega varð löngunin öllu yfir- sterkari. Mynd Brynja Uppáhaldsverkið Þessi teikning sem Jóhannes Kjarval gerði á Seyðisfirði í október 1927 er í sérstöku uppáhaldi hjá Braga. Eftirprent af teikningunni var gert árið 1928.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.