Dagblaðið Vísir - DV - 11.08.2017, Síða 62
38 menning Helgarblað 11. ágúst 2017
Í
fallegu raðhúsi í Hvassaleiti
þekja málverk og myndir alla
veggi. Allt frá gólfi og upp í
loft, í stofu, eldhúsi og stiga-
gangi hanga fjölbreytt listaverk,
klassísk landslagsmálverk og
hafnarmyndir, abstraktverk jafnt
sem súrrealískar fígúrur, allt frá
Þórarni B. Þorlákssyni til Guð-
mundu Andrésdóttur, frá Jó-
hannesi Kjarval til Muggs og
ungra listamanna á borð við Þor-
vald Jónsson.
Þetta er einstakur afrakstur
um fjögurra áratuga söfnunar-
áráttu og óþrjótandi myndlist-
aráhuga Braga Guðlaugssonar,
iðnaðarmanns og eins ástríðu-
fyllsta listaverkasafnara landsins.
Hugsar um lítið annað
„Foreldrar mínir áttu eitthvað
af myndum en það var helst eft-
ir alþýðumálara. Það er ekki mik-
ið af listamönnum í fjölskyldunni
– þó einn frændi minn sé reynd-
ar málari,“ segir Bragi þegar hann
er spurður hvort myndlistar-
áhuginn sé honum í blóð borinn.
„Ég hef hins vegar haft áhuga
á myndlist frá því að ég var ung-
ur maður, tuttugu og eitthvað
ára gamall. Þá fór ég að feta mig
áfram í þessu. Ég byrjaði að kaupa
nokkrar myndir eftir alþýðumál-
ara, myndir sem voru ekki mjög
dýrar en heldur ekki mjög góðar.
Þetta eru myndir sem ég er ekki
jafn hrifinn af í dag svo ég er bú-
inn að losa mig við þær allar. En
maður verður að byrja á botnin-
um, svo byrjar maður að feta sig
upp,“ útskýrir hann.
„Fyrstu alvöru myndina
keypti ég svona upp úr 1980. Það
var Kjarvalsmynd sem ég á enn
þann dag í dag og birtist reynd-
ar í stóru Kjarvalsbókinni hérna
um árið.“
Varð myndlistarsöfnunin strax
að mikilli áráttu?
„Já, hún varð það nú. Maður
fór örlítið að spá í spilin og fljót-
lega varð löngunin öllu yfirsterk-
ari. Þá fór maður að setja pening
í þetta. Ein ástæðan fyrir söfn-
unarþörfinni getur verið að ég
átti mjög lítið af leikföngum sem
barn,“ segir Bragi og hlær. „Ég
hætti líka að drekka á þessum
tíma eins og hálf þjóðin neyðist
til að gera.“
Það hlýtur að hafa farið
gríðarlega mikill tími, vinna og
ástríða í söfnunina. Er þetta það
eina sem þú hefur hugsað um síð-
ustu áratugina?
„Já, það má eiginlega segja
það, fyrir utan mína vinnu en ég
er iðnaðarmaður og hef unnið
sem verktaki í 40 ár. Þetta er það
eina sem ég hugsa um þess á
milli, eina óreglan.“
Og hvað finnst fjölskyldunni
um það?
„Konan er bara voða ánægð
með þetta hjá mér og leyfir mér
að ráða þessu nokkurn veginn.“
Skipt á vinnu og verkum
„Ég veit ekki hvað ég á mikið af
verkum í dag. Þetta skiptir ein-
hverjum hundruðum – þetta er
ekki meira en það, kannski svip-
að og góður bóndi í Skagafirði á
af hrossum – eða 200–300 verk,“
segir Bragi þegar hann er spurð-
ur um fjölda listaverka í safninu.
Þó að vissulega séu til íslenskir
safnarar sem eigi enn fleiri verk
eru þeir varla margir.
Bragi er iðnmenntaður og hef-
ur unnið sem sjálfstæður verktaki
lengst af sinni starfsævi. Hann
segir þó að honum hafi alltaf tek-
ist að safna fyrir nýjum listaverk-
um en annars hafi hann fundið
aðrar leiðir til að sinna söfnun-
inni. Hann hafi oft unnið fyrir
myndlistarmenn í skiptum fyrir
verk. Hann nefnir til að mynda
að hann hafi eitt sinn unnið í þrjá
mánuði við að ramma inn mynd-
ir eftir ýmsa listamenn og aðeins
fengið greitt í verkum.
„Seinna vann ég fyrir Georg
Iðnaðarmaður sem
elskar myndlist
n Myndlistarsafn Braga Guðlaugssonar er ómetanlegur fjársjóður
n Hátt í þrjú hundruð listaverk í einstöku einkasafni„Fljótlega varð
löngunin öllu yfir-
sterkari.
Mynd Brynja
Uppáhaldsverkið Þessi teikning sem Jóhannes Kjarval gerði á Seyðisfirði í október
1927 er í sérstöku uppáhaldi hjá Braga. Eftirprent af teikningunni var gert árið 1928.