Dagblaðið Vísir - DV - 01.09.2017, Blaðsíða 35
1. september 2017
KYNNINGARBLAÐ
Ábyrgðarmaður: Sigurvin Ólafsson / sigurvin@dv.is Umsjón: Ágúst Borgþór Sverrisson / agustb@dv.is
Hvíl í friði
Útfararþjónusta Rúnars Geirmundssonar er elsta starfandi útfarar
þjónustan á höfuðborgar
svæðinu. Rúnar hefur alla tíð
veitt fyrirtækinu forstöðu sem
framkvæmdastjóri þess og
útfararstjóri. Útfararþjónust
an er í eigu Rúnars og eigin
konu hans, Kristínar Sigurðar
dóttur, og starfa synir þeirra,
Elís og Sigurður, þar ásamt
föður sínum.
Orðsporið skiptir útfarar
þjónustu miklu. „Ef maður
sinnir sínu starfi vel er það
fljótt að spyrjast út,“ segir
Rúnar sem hefur þrjátíu ára
reynslu af útfararþjónustu.
„Fyrst og fremst þarf að
taka tillit til þess að fólk er í
sárum eftir ástvinamissi. Við
þurfum að gæta að því sem
við gerum og segjum og eins
að nálgast fólk með hlýju og
auðmýkt. Það getur verið
mjög erfitt að bjóða fólki
við þessar aðstæður þjón
ustu gegn greiðslu en þetta
hefur lærst í gegnum árin og
við tökum mikið tillit til þess
hvernig aðstæður eru hverju
sinni,“ segir hann.
Formaður Félags
íslenskra útfararstjóra
Ásamt daglegum störfum
við hefðbundna útfararþjón
ustu er Rúnar Geirmundsson
formaður Félags íslenskra
útfararstjóra. Félagið hefur
verið starfrækt í yfir áratug og
hefur Rúnar verið formaður
þess allt frá upphafi. Aðal
tilgangur félagsins er skapa
vettvang til að halda utan
um siðareglur útfararstjóra.
„Starf mitt sem formaður felst
aðallega í því að halda utan
um fundastarf og framfylgja
reglum og samþykktum
aðalfunda. Ég sæki einnig
fundi erlendis enda á félagið í
talsverðum erlendum sam
skiptum. Siðareglur evrópskra
útfararstjóra eru til að mynda
grunnur íslensku siðaregln
anna,“ segir Rúnar. Ekki er
lagaleg skylda að útfarar
stjóra séu í félaginu en nánast
allir starfandi útfararstjórar
eru þó félagsmenn og hafa
undirritað siðareglur félagsins.
Virðingin og alúð
Rúnar hefur unnið við
útfararþjónustu frá því 1983,
fyrst hjá Kirkjugörðunum og
síðan í eigin fyrirtæki. Að
spurður segist hann hafa
lært það á löngum ferli
að það skipti ekki höfuð
máli hvaða trú fólk aðhyllist
eða hvort það aðhyllist trú
yfirleitt, virðingin fyrir hinum
látna sé alltaf í forgrunni.
„Og það þurfum við alltaf að
hafa í huga, án þess að taka
afstöðu til trúmála. Hlýja,
auðmýkt og virðing er það
leiðarljós sem við fylgjum
alltaf.
Þegar andlát ber að garði
er mikilvægt að hafa sam
band við útfararþjónustu sem
fyrst,“ segir Rúnar. „Í fyrsta
lagi þarf að flytja hinn látna
af dánarstað og í líkhús og
síðan að byrja að undirbúa
kistulagninguna. Útfarar
stjórinn heimsækir yfirleitt
aðstandendur daginn eftir og
þeir leggja þá fram óskir sínar
varðandi framkvæmd kistu
lagningar og síðan jarðarfar
ar. Í því felst í flestum tilfellum
að velja prest eða athafnar
stjóra og síðan að tímasetja
allar athafnir og bóka grafar
töku eða bálför. Næsta skref
er svo að ákveða hvað kemur
í okkar hlut að sinna en við
sjáum um allt er lýtur að
undirbúningi og framkvæmd
útfara. Til að mynda höldum
við utan um öll samskipti við
aðstandendur, tónlistarfólk,
kirkjur, blómabúðir, kirkju
garða og alla þá sem koma
að útför.“
Íslensk hönnun og handverk
Útfararþjónusta Rúnars Geir
mundssonar leggur mikið upp
úr því að vera með fallegar
kistur á góðu verði sem stand
ast ströngustu kröfur um
umhverfisvernd. Algengastar
eru hinar hefðbundnu hvítu
kistur en alltaf er eitthvað um
að fólk vilji harðviðar kistur,
til dæmis eik eða mahóní.
Val á kistum getur vafist fyrir
aðstandendum enda úrvalið
nokkuð. „Við eigum umhverfis
vænar og fallegar hefð
bundnar hvítar kistur, sem
eru algengastar, en einnig
töluvert úrval af viðarkistum.“
Í fyrsta sinn á Íslandi hefur
Útfararþjónusta Rúnars Geir
mundssonar nú látið hanna
og smíða íslenskar kistur úr
íslenskum við í samstarfi við
Þorstein B. Jónmundsson tré
smið. „Við höfum hannað sér
staka kistu og duftker út frá
hugmyndinni um íslenska kistu
úr alíslenskum við til brennslu
og jarðsetningar,“ útskýrir
Rúnar. Kisturnar eru úr við
sem er unninn og þurrkaður
í Hallormsstaðarskógi. „Þessi
kista er mjög falleg, úr grófum
við og ólökkuð eða máluð á
náttúrulegan máta.“
Nánari upplýsingar er að
finna á utfarir.is eða í síma
567-9110 allan sólarhringinn,
alla daga ársins.
Fjölskyldufyrirtæki í áratugi
ÚTFARARÞJóNuSTA RÚNARS GEiRmuNdSSONAR