Dagblaðið Vísir - DV - 01.09.2017, Blaðsíða 37
Hvíl í friði 3Helgarblað 1. september 2017 KYNNINGARBLAÐ
Inger Steinsson er fyrsta konan sem fékk útfarar-leyfi á Íslandi en það var
fyrir 19 árum. Í fyrstu starfaði
hún hjá annarri útfarar-
stofu við þessa viðkvæmu
og vandasömu þjónustu en
nokkrum árum síðar stofn-
aði hún ásamt eiginmanni
sínum Athöfn útfararþjón-
ustu. Eiginmaður Inger hefur
nú látið af störfum vegna
heilsubrests en dóttir hennar,
Inger Rós, og elstu barna-
börn hjálpa til þegar mikið
liggur við. Þetta er því sann-
kallað fjölskyldufyrirtæki.
Inger hefur alltaf haft það
að leiðarljósi að kenna sínum
börnum að vera ekki hrædd
við dauðann. Frá því að þau
voru lítil hafa þau tekið þátt í
umræðum um lífslokin og oft-
ar en einu sinni setið í líkbíln-
um og ekkert fundið að því.
„Ég legg mikið upp úr
persónulegri og vandaðri
þjónustu. Ég held ég hafi
verið sú fyrsta sem fór heim
til aðstandenda til að skipu-
leggja útfarir. Fólki fannst
notalegt að geta verið bara
heima við og talað um þessi
viðkvæmu mál. Ýmist heim-
sæki ég fólk eða býð því heim
í stofuna til mín í kaffi. Fólk
kann afar vel að meta þetta.
Heimilið mitt er líka minn
vinnustaður og yfirbyggingin
lítil og gefur mér kost á að
bjóða hagstæð kjör,“ segir
Inger.
Þó að útfararstofan sé
skráð í Hafnarfirði starfar
Inger á öllu Stór-Reykjavíkur-
svæðinu. Þjónusta hennar er
hagstæð fyrir aðstandendur:
„Ég kappkosta að hafa
allan kostnað uppi á borðinu
og hér tíðkast engir bakreikn-
ingar. Útförin getur verið
jafnfalleg þó að hún kosti
minna. Fólk er líka ófeimið við
að hringja í útfararstofur og
bera saman kostnað. Ég tel
mig bjóða hagstæð kjör en
er ekki tilbúin að bjóða verð
undir öllu velsæmi því ég
þarf að lifa líka. En þegar fólk
hefur samband legg ég þetta
á borðið og það veit hvað
hlutirnir kosta hjá mér.“
Sem fyrr segir kappkostar
Inger að veita persónulega
þjónustu: „Ég veiti persónu-
lega þjónustu frá a til ö. Það
þýðir að ég er með alla leið,
ég sæki hinn látna, geng frá
í kistu, hitti aðstandendur og
er með í jarðarförinni. Það er
enginn annar sem kemur að
þessu,“ segir hún.
Nánari upplýsingar eru
veittar um þjónustuna í
símum 551-7080 og 691-
0919 og í gegnum netfangið
athofn@athofn.is.
Persónuleg
þjónusta frá A til Ö
AtHöFn ÚtFARARÞjónuStA
Borgartúni 23 Reykjavík / Sími 5611300 / www.reykjavikurblom.is
Opnunartími: mánudaga–föstudaga 10–18 & laugardaga 11–18 / Heimsendingarþjónusta
Við tökum vel á móti þér
og útfærum skreytingar eftir
þínum persónulegu óskum
skírn / ferming / afmæli
brúðkaup / útfarir
blóm og
gjafavara við
öll tækifæri