Dagblaðið Vísir - DV - 01.09.2017, Blaðsíða 70

Dagblaðið Vísir - DV - 01.09.2017, Blaðsíða 70
46 fólk Helgarblað 1. september 2017 Ekki sátt við mömmu eða pabba n Því miður semur ekki öllum vel við foreldra sína, heldur ekki stórstjörnum Brie Larson Foreldrar Larson skildu þegar hún var tíu ára gömul. Þegar hún var tuttugu og sex ára gömul hafði hún hvorki séð né talað við föður sinn í tíu ár. „Þegar ég var barn reyndi ég að skilja hann og átta mig á aðstæðum. En hann gerði sjálfum sér aldrei neinn greiða. Ég held að hann hafi í rauninni aldrei viljað verða foreldri.“ Adele Faðir söngkonunnar yfirgaf móður hennar þegar dóttir þeirra var tveggja ára gömul. Adele hefur aldrei fyrirgefið honum að hafa farið frá fjölskyldu sinni. Fyrr á þessu ári, þegar hún tók við Grammy- verðlaunum, þakkaði hún umboðsmanni sínum og sagði: „Við höfum verið saman í tíu ár og ég elska þig eins og þú værir pabbi minn. Ég elska þig svo mikið. Ég elska ekki pabba minn.“ Drew Barrymore Leikkonan hefur ekki átt mikil samskipti við móður sína á seinni árum. „Þetta er það erfiðasta í lífi mínu. Við getum ekki bara ekki átt samleið,“ segir leikkonan sem hefur þó veitt móður sinni ríkulega fjárhagsaðstoð. Kate Hudson Foreldrar leikkonunnar, Goldie Hawn og Bill Hudson, skildu þegar hún var tæplega tveggja ára. Samskipti hennar við föður sinn eru lítil sem engin og hún lítur á sambýlismann móður sinnar til áratuga, Kurt Russell, sem hinn raunverulega föður sinn. Jennifer Aniston Aniston fokreiddist þegar móðir hennar skrifaði bók um samband þeirra. Samband þeirra var mjög stirt en þrátt fyrir það studdi leikkonan móður sína fjárhagslega síðustu árin sem hún lifði. Þegar móðir hennar lést árið 2016 kom í ljós að hún hafði breytt erfðaskrá sinni og ekki arfleitt hina frægu dóttur sína að neinu. Maculay Culkin Foreldrar barnastjörnunnar úr Home Alone skildu þegar hann var fjórtán ára gamall. Hann fór í mál við foreldrana til að koma í veg fyrir að þeir gætu ráðstafað þeim auði sem hann hafði fengið fyrir leik sinn. Culkin hefur ekki haft samband við föður sinn síðan. Á síðasta ári sagðist faðir hans ekki lengur líta á hann sem son sinn. Meg Ryan Meg Ryan lokaði á öll samskipti við móður sína þegar móðirin gagnrýndi þáverandi eiginmann hennar, leikarann Dennis Quaid. Í endurminningabók sinni segir móðirin að leikkonan sé alls ólík þeirri geðugu konu sem sjáist á hvíta tjaldinu. „Í raunveruleikanum er hún kaldlyndur og grimmur yfirgangsseggur,“ sagði móðir Meg Ryan.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.