Dagblaðið Vísir - DV - 01.09.2017, Blaðsíða 70
46 fólk Helgarblað 1. september 2017
Ekki sátt við
mömmu eða
pabba
n Því miður semur ekki öllum vel við
foreldra sína, heldur ekki stórstjörnum
Brie Larson
Foreldrar Larson skildu þegar hún
var tíu ára gömul. Þegar hún var
tuttugu og sex ára gömul hafði hún
hvorki séð né talað við föður sinn
í tíu ár. „Þegar ég var barn reyndi
ég að skilja hann og átta mig á
aðstæðum.
En hann gerði sjálfum sér aldrei
neinn greiða. Ég held að hann
hafi í rauninni aldrei viljað verða
foreldri.“
Adele
Faðir söngkonunnar yfirgaf móður hennar þegar dóttir þeirra var
tveggja ára gömul. Adele hefur aldrei fyrirgefið honum að hafa farið frá
fjölskyldu sinni. Fyrr á þessu ári, þegar hún tók við Grammy-
verðlaunum, þakkaði hún umboðsmanni sínum og sagði: „Við höfum
verið saman í tíu ár og ég elska þig eins og þú værir pabbi minn. Ég elska
þig svo mikið. Ég elska ekki pabba minn.“
Drew Barrymore
Leikkonan hefur ekki átt mikil samskipti við móður sína á seinni
árum. „Þetta er það erfiðasta í lífi mínu. Við getum ekki bara
ekki átt samleið,“ segir leikkonan sem hefur þó veitt móður sinni
ríkulega fjárhagsaðstoð.
Kate Hudson
Foreldrar leikkonunnar, Goldie Hawn og Bill Hudson, skildu þegar
hún var tæplega tveggja ára. Samskipti hennar við föður sinn
eru lítil sem engin og hún lítur á sambýlismann móður sinnar til
áratuga, Kurt Russell, sem hinn raunverulega föður sinn.
Jennifer Aniston
Aniston fokreiddist þegar móðir hennar skrifaði bók um samband
þeirra. Samband þeirra var mjög stirt en þrátt fyrir það studdi
leikkonan móður sína fjárhagslega síðustu árin sem hún lifði. Þegar
móðir hennar lést árið 2016 kom í ljós að hún hafði breytt erfðaskrá
sinni og ekki arfleitt hina frægu dóttur sína að neinu.
Maculay Culkin
Foreldrar barnastjörnunnar úr Home Alone skildu þegar hann var
fjórtán ára gamall. Hann fór í mál við foreldrana til að koma í veg fyrir
að þeir gætu ráðstafað þeim auði sem hann hafði fengið fyrir leik sinn.
Culkin hefur ekki haft samband við föður sinn síðan. Á síðasta ári
sagðist faðir hans ekki lengur líta á hann sem son sinn.
Meg Ryan
Meg Ryan lokaði á öll samskipti við móður sína þegar móðirin gagnrýndi
þáverandi eiginmann hennar, leikarann Dennis Quaid.
Í endurminningabók sinni segir móðirin að leikkonan sé alls ólík þeirri
geðugu konu sem sjáist á hvíta tjaldinu. „Í raunveruleikanum er hún
kaldlyndur og grimmur yfirgangsseggur,“ sagði móðir Meg Ryan.