Dagblaðið Vísir - DV - 01.09.2017, Síða 18

Dagblaðið Vísir - DV - 01.09.2017, Síða 18
18 sport Helgarblað 1. september 2017 „Við erum Víkingar“ L okakeppni Evrópumótsins í körfuknattleik, hófst í gær og léku strákarnir okkar sinn fyrsta leik gegn sterku liði Grikkja í Helsinki. Þegar DV fór í prentun var leiknum ekki lokið og ekki hægt að greina frá úrslitum hér en vafalítið hafa íslensku vík- ingarnir staðið sig með miklum sóma. En þótt allra augu hafi undanfarið beinst að leikmönnun- um þá myndi fátt gerast ef ekki væri fyrir þann öfluga hóp sem stendur að baki liðinu og gerir því kleift að einbeita sér að verkefn- inu, að gjörsigra andstæðinga sína á vellinum. DV hafði samband við hluta hópsins sem stýrir málum úti í Finnlandi og spurði hann spjörun- um úr um hvað helst þyrfti að fást við á meðan þessi körfuboltaveisla stendur yfir. n n Fólkið á bak við landsliðið í körfuknattleik n Arnar aðstoðarþjálfari tuðar mest Freyr Rögnvaldsson freyr@dv.is Fórst þú út með liðinu á Eurobasket 2015 í Þýskalandi? „Já, ég fór út til Berlínar 2015 og var þar sem áhorfandi og stjórnarmaður KKÍ en hafði ekki neitt hlutverk í kringum liðið.“ Hvernig kom það til að þú tókst að þér fararstjórnina? „Sumarið 2016 var ég beðinn um að fara með liðinu í æfinga- ferð til Austurríkis þar sem fararstjórinn forfallaðist. Ég hafði fyrr um sumarið farið með U15 ára liðunum til Kaupmannahafnar og haft gaman af. Ég sagði já við ferðinni og það gekk vel. Þá kom upp sú hugmynd að ég færi með á EuroBasket 2017 og það er erfitt að segja nei við því að fá að fara sem hluti af hópnum á stórmót.“ Stundaðir þú körfubolta og hvernig var þá ferillinn? „Minn körfuboltagrunn má rekja til skólaáranna í Varmahlíð, þar sem körfuboltinn var aðalíþróttagreinin, jafnvel þótt spilað væri í félagsheimilinu í Miðgarði og völlurinn eins og jólatré í laginu. Seinna varð ég dómari og hef lengi verið viðloðandi það hlutverk. Ég hef setið í stjórn KKÍ í sex ár og nýjasti titillinn sem ég hef bætt á mig er að ég er orðinn alþjóðlegur eftirlitsmaður á vegum FIBA, Evrópska körfuknattleikssambandsins.“ Horfir þú öðruvísi á leikina en venjulegur áhorfandi, það er í ljósi hlutverks þíns með liðinu? „Sem fararstjóri hef ég fundið nýjan vinkil til að horfa á leikinn, ég er sífellt að fylgjast með hvort einhvern vanti eitthvað, vatn, hand- klæði eða eitthvað annað. Það má segja að maður sé í þjónustuhlutverki og tilbúinn að bregðast við þeim aðstæðum sem koma upp hverju sinni.“ Hvernig undirbjóstu þig fyrir þitt hlutverk með liðinu? „Til að undirbúa sig í fararstjórahlutverkið þarf að huga að ýmsu, spyrja reynslumeira fólk og læra af því. Ég les allar handbækur og upplýsingar sem koma frá mótshöldurum. Svo þarf ég auðvitað að kynna mér áfanga- staðina og helstu atriði sem snúa að þeim. Eitt sem getur líka verið mikilvægt í þessu hlutverki er að kunna að brjóta saman þvott. Svo þarf ég auðvitað að vera tilbúinn að svara öllum þeim spurningum sem koma upp og þær geta verið af öllum toga. Þetta snýst um að búa sig undir það óvænta og vera skipulagður.“ Er einhver leikmaður sem alltaf er seinn? „Það er vissu- lega á ábyrgð fararstjóra að skila öllum heilum á höldnu á leiðar- enda. Í sumar hefur verið mikið um ferðalög og rútuferðir og ýmislegt komið upp. Menn næstum misst af flugvélum, gleymt mikilvægum hlutum til að nota í leik heima á hóteli þegar komið er í leik og ýmis- legt fleira. Það þarf ekkert að draga fram nöfnin en þetta eru allt sögur sem hópurinn hlær að eftir á, allt hefur blessast og allir eru komnir til Helsinki.“ Hver tuðar mest í hópnum? „Líklega er mesti tuðarinn í hópnum Borgfirðingur- inn Arnar Guðjónsson [aðstoðarþjálfari], stundum kallaður Skakki, suma daga hefur hann allt á hornum sér. Hann má þó eiga það að með fleiri árum og fleiri börnum þá hefur hann mildast, þótt gamli Arnar komi fram annað slagið.“ Þarf að kunna að brjóta saman þvott Rúnar Birgir Gíslason fararstjóri Tilbúinn til að koma inn á ef kallið kemur Gunnar Einarsson styrktarþjálfari Varstu í Þýskalandi á Eurobasket 2015? „Já, ég var þar og hef unnið sem styrktarþjálfari landsliðsins síðan 2015.“ Áttu körfuboltaferil að baki? „Já, ég er fyrrverandi landsliðsmaður í körfuknattleik. Margfaldur bikar- og Ís- landsmeistari í körfuknattleik með Keflavík, þess má geta að ég spilaði síðast í úrslita- keppninni 2017 með Keflavík gegn KR.“ Hvernig lentir þú í þessu hlut- verki? „KKÍ leitaði eftir mínum starfskröftum og líklega hefur það hjálpað til að vera fyrrverandi leikmað- ur og þekkja leikinn, aðstæðurnar og geta metið æfingaálag frá reynslu sem fyrrverandi leikmaður. Eftir að ég hætti að spila þá lagði ég stund á ÍAK, einkaþjálf- aranámið hjá Keili, og hef sótt fjölda endurmenntunarnámskeiða til þess að halda mér eins framarlega, uppfærðum og hægt er. Ég setti mér það markmið að ég ætlaði mér alltaf að vinna með atvinnumannaliði sem styrkarþjálfari og ætli þetta sé ekki næst því markmiði sem er völ á Íslandi.“ Horfir þú öðruvísi á leikinn en aðrir, þá t.d. með tilliti til meiðsla leikmanna? „Ég er nú ennþá bara að reyna að venjast því þegar þjálfarinn horfir eftir bekknum og er að fara skipta inn á, að ég er ekki með í myndinni – en ég er engu að síður klár ef kallið kemur!“ Hvernig undirbýrð þú þig fyrir mótið? „Ég æfi vel og passa upp á að vera í góðu formi og reyni einnig að fá staffið til þess að vera duglegt að æfa í ferðunum svo að menn séu vel upplagðir.“ Ertu að missa af einhverju veru- lega mikilvægu af því þú ert þarna úti? „Ég hef misst af afmæli sonar míns undanfarin tvö ár en náði að halda upp á það með honum fyrir þessa ferð því það hitti þannig á.“ Hver er alltaf óstundvís? „Hörður Axel, hann tekur sinn tíma til að koma sér út úr húsi þegar við Suðurnesja- mennirnir erum að keyra saman á æfingar.“ Hver er óánægðastur með matinn? „Arnar Guðjóns er sá sem tuðar manna mest yfir matnum en hann er jafnframt sá sem borðar mest af eftirréttunum og hef- ur meðal annars komið upp einkunnakerfi og skikkar hann menn til þess að gefa eftirréttinum einkunn frá 1–5. Bannað er að gefa einkunn nema hún sé í heilum tölum. Ekkert 2,5 rugl.“ Hefði tekið landsliðið fram yfir allt annað Kristinn Geir Pálsson, umsjónarmaður landsliðsmála KKÍ Varstu í Þýskalandi á Eurobasket 2015? „Heldur betur, ég var í teymi KKÍ þá líka og sá um samskipti við fjölmiðla og fréttir í hlutverki fjölmiðlafulltrúa Íslands á mótinu.“ Hvernig lentir þú í þessu hlut- verki? „Ég hef unnið hjá KKÍ í rúm níu ár og sinni ýmsum verkum. Árið 2015 hent- aði best að ég myndi sinna fréttahlutan- um en í ár í Finnlandi er ég liðsstjóri, sem er hlutverk sem ég hef einnig sinnt í liðinu á liðnum árum.“ Áttu körfuboltaferil að baki? „Ég byrjaði að æfa 11 ára og er ennþá að. Eftir að hafa leikið með Breiðabliki fyrst og svo ÍR sem unglingur, þá lék ég í 2. deild og 1. deild með Ármanni í nokkur ár. Síðan hef ég spilað með B-liði Hauka í Hafnarf- irði undanfarin ár, enda alltaf jafn gaman að æfa og keppa í körfubolta.“ Horfir þú öðruvísi á leikinn en aðrir vegna hlutverks þíns með liðinu? „Ég fylgist með ýmsum hlutum eins og framlagi í vörn og baráttu, og hvað menn gera fyrir samherja sína, hluti sem sjást oft ekki á tölfræði en skipta miklu máli. Síðan finnst mér líka gaman að horfa á dómarana og sjá hvernig þeir dæma og hvað ég hefði gert í þeirra aðstæðum.“ Hvernig undirbýrð þú þig fyrir mótið? „Sem liðsstjóri sé ég til þess að allur búnaður sé til staðar, eins og bún- ingar, fatnaður, fæðubótarefni og annað slíkt sem þarf að hafa, sem og ýmis gögn og slíkt sem þarf að hafa meðferðis.“ Ertu að missa af einhverju verulega mikilvægu af því að þú ert þarna úti? „Ég er ekki að missa af neinu mikilvægu í ár en það hefði líklega verið alveg sama hvað það væri, ég hefði sleppt því og kosið að vera hér með liðinu hvort eð er.“ Hver er alltaf óstundvís? „Hinn magnaði Kristófer Acox er alltaf síðastur. Mikil list sem felst í því að ná því.“ Hver tuðar mest og yfir hverju? „Það er stundum stutt í sveitamanninn í honum Arnari aðstoðarþjálfara, sem var örugglega rússneskur í fyrra lífi, en það gengur fljótt yfir og leysist yfirleitt ef eitthvað er vandamálið.“ Hver borðar alltaf allt? „Allir strák- arnir eru duglegir að borða og borða vel, en það er einn leikmaður sem borðar yf- irleitt tvisvar til þrisvar sinnum meira en aðrir og það er hann Tryggvi Snær, hann þarf víst mikla orku til halda þessum 216 sentimetrum við.“

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.