Dagblaðið Vísir - DV - 01.09.2017, Blaðsíða 58

Dagblaðið Vísir - DV - 01.09.2017, Blaðsíða 58
34 lífsstíll Helgarblað 1. september 2017 á djamminu og hún hafði enga stjórn á áfengisneyslu sinni. „Ég hugsaði oft með mér að það væri best að hætta að drekka en ég taldi mér alltaf trú um að ég myndi hafa stjórn á því næst. Ég áttaði mig á því að þetta var vandamál en viðurkenndi það aldrei. Það var bara of gott að djamma.“ Djammið tók ekki enda fyrr en Signa Hrönn áttaði sig á því að hún var orðin ólétt en þá hafði hún enga löngun í áfengi. Þegar hún var gengin tíu vikur veikist Signa Hrönn alvarlega og þurfti stanslaust að vera undir læknishendi og þegar hún var gengin 27 vikur var ákveðið að opna hana þar sem hún átti ekki mikið eftir og í raun vissi enginn hvað olli þessum miklu kvölum því ekkert sást á neinum mynd- um. Ákvörðun var tekin um að setja líf móður í forgang og var hjónunum sagt að líf hennar væri í forgangi en þeir gerðu hvað þeir gætu til að bjarga barninu. „Þeir voru hræddir um að barnið myndi fæðast og þá væru ekki neinar lífslíkur fyrir það þar sem við vorum á Akureyri og ekki var hægt að fljúga með okkur suður vegna veðurs. Tækin og tólin til að halda lífi í svona fyrirburum eru bara til staðar í Reykjavík. Það var ekki möguleiki fyrir þá að lifa af hérna á Akureyri en dóttir okk- ar er svo þrjósk að hún beið bara þæg og góð í móðurkviði meðan læknarnir athöfnuðu sig og færðu barnið á milli staða inni í mér.“ Barði ókunnuga konu Í ljós kom að Signa Hrönn var komin með hrikalega garnaflækju þar sem smágirnið og allar garn- irnar voru búnar að troða sér í gegnum lítið gat sem var eftir hjáveituna. Ekki var búist við því að Signa Hrönn gæti gengið heila meðgöngu eftir slíka aðgerð, hvað þá átt barnið á eðlilegan hátt þar sem hún var með skurð frá brjóst- um niður að nafla og öll saumuð að innan. Þrjóskan í þeim mæð- gum skilaði sér þó í fullri með- göngu og náttúrulegri fæðingu og eru þær ævinlega þakklátar læknateyminu á Sjúkrahúsinu á Akureyri. Nokkru eftir fæðingu fór Signa Hrönn aftur að fá sér í glas og í þetta skiptið var hún hand- viss um að hún myndi hafa stjórn á drykkjunni. Fljótlega komst hún að því að hún hafði rangt fyrir sér og fór aftur að þjást af minnisleysi. Þann 11. febrúar 2012 hélt maðurinn hennar upp á afmælið sitt. Hún hafði sett sér það mark- mið að ef hún hefði ekki stjórn á drykkju sinni myndi hún hætta. Þetta kvöld hafði hún enga stjórn á drykkjunni og gerði hluti sem hún skammast sín enn fyrir. „Ég barði konu sem var búin að angra mig allt kvöldið. Mér fannst hún ekki eiga neitt skilið nema gott högg. Ég man ekkert eftir þessu og hef ekki hugmynd um hver þessi kona er.“ Morguninn eftir hætti Signa Hrönn að drekka og fannst það töluvert minna mál en hún hafði gert ráð fyrir. Hún fór enn út að skemmta sér en hún var edrú. Signa Hrönn var edrú í þrjú ár og kynntist á þeim tíma nýrri og betri fíkn. Hún segir sjálf að hún funkeri illa ef hún hafi ekki einhverja „fíkn“ og hélt áfengisfíkninni niðri með því sem hún kallar góð fíkn, en það er að æfa á fullu og borða hollan mat. Féll jólin 2015 Árið 2014 eignaðist hún sitt annað barn og fékk í kjölfarið fæðingar- þunglyndi sem hún leyndi svo vel að ekki einu sinni maður- inn hennar sá nokkuð athuga- vert. Þegar Signa Hrönn fór svo að standa sjálfa sig að því að hugsa um það hvernig hún gæti horfið úr lífinu án þess að það hefði áhrif á börnin og mann hennar, sagði hún stopp og leitaði sér hjálpar. Hún var orðin hrædd við sjálfa sig og þessar hugsanir. Hjónin misstu íbúðina sína eftir langa baráttu í maí 2015 og þróaðist fæðingar- þunglyndið þá fljótt yfir í almennt þunglyndi og mikinn kvíða sem Signa er enn þann dag í dag að vinna úr. „Besta geðlyf sem ég hef notað er hreyfing, ég æfi crossfit og geri það af krafti.“ Á jólunum 2015 voru þau hjón á litlu jólunum í vinnu manns henn- ar þegar Signa Hrönn ákvað að detta í það í fyrsta sinn síðan hún hætti að drekka. Hún hafði verið að fá sér einn og einn bjór eða rauðvín heima við og réð vel við það og taldi hún þá að nú gæti hún ráðið við að „detta í það“. Signa Hrönn missti stjórn á drykkjunni og fór í algjört minnisleysi. Hún hélt áfram að skreppa á djammið með vinunum ef eitthvað var um að vera, en eftir hvert skipti lá hún í rúminu daginn eftir þjáð af móral yfir því að hafa drukkið. „Við lifum í hröðu samfélagi þar sem alltof lítill tími gefst með börnum okkar og ég ætla ekki að eyða þeim litla tíma í að vera þunn og ógeðsleg mamma. Ég vil samt taka það fram að dætur mínar hafa aldrei séð mig í glasi og munu alls ekk- ert fá að sjá það. Börn eiga ekki að þurfa að horfa upp á foreldra sína undir áhrifum áfengis eða annarra vímugjafa.“ Ólíkt offitu er hægt að fela alkó- hólisma. Signa Hrönn segir að fyrsta skrefið sé að viðurkenna vandann fyrir sjálfum sér og öðr- um og biðja um hjálp. „Ég hef ótal sinnum sagt sjálfri mér að ég sé enginn alki því ég sé ekki að drekka á hverjum degi. En alki og alki er ekki það sama, það gátu liðið margar vikur jafnvel mánuð- ir á milli þess sem ég fékk mér í glas en um leið og ég byrjaði varð ég hömlulaus og gat ekki hætt. Það er ekkert mál að fela alkóhólisma hann sést ekkert endilega utan á fólki, en offituna gat ég ekki falið með nokkur móti,“ segir Signa Hrönn. Þegar Signa Hrönn tók þá ákvörðun að viðurkenna vandann og opinbera hann gerði hún sér ekki grein fyrir því að hún gæti ver- ið að opna augu fólks sem stæði í sömu sporum og hún, en hún ákvað að tala um þetta á Snapchat, hollari-eg, á dögunum og fékk hún í kjölfarið mjög góð viðbrögð. Signa Hrönn er ákaflega glöð að hafa tekið þá ákvörðun að opin bera vanda sinn og ætlar sér að vera edrú en segir jafnframt að henni finnist í raun gríðarlega erfitt að taka þá stóru ákvörðun að hætta að drekka „forever“ og hefur því tileinkað sér að taka bara einn dag í einu. „Það er mun auðveldara að taka einn dag í einu heldur en að ákveða allt líf- ið svona á einu bretti eins og sagt er.“ Hún hefur lært að til að standa sig þurfi hún að hafa allt í rútínu og skrifað niður á blað. Á næsta mánudag verður hún þrítug og er þakklát fyrir að fá að eldast á heil- brigðan hátt með þeim sem hún elskar. n „Börn eiga ekki að þurfa að horfa upp á foreldra sína undir áhrifum áfengis eða annarra vímugjafa. Berst gegn þunglyndi og kvíða „Besta geðlyf sem ég hef notað er hreyfing.“ Signa Hrönn og eiginmaður hennar Hún var sextán ára þegar þau fóru að búa saman. Fermingarmyndin „Auðvitað var niðrandi að þurfa að láta sérsauma á sig fermingarföt."
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.