Dagblaðið Vísir - DV - 01.09.2017, Blaðsíða 43
Kvef er veirusjúkdómur sem heldur sig aðallega í nefslímhúð. Til eru yfir
100 mismunandi veirur sem valda
kvefi. Aðaleinkennið er nefrennsli.
Sjúkdómurinn er afar algengur á
veturna. Hann kemur verst niður á
börnum og eldra fólki.
Hvenær er smithætta af kvefuðu fólki?
Smithætta er frá því daginn áður en
einkenni koma fram og í 1–3 daga
í viðbót. Smitið berst með loftúða
frá hósta og hnerra. Einnig getur
smit borist með höndum þannig að
veiran berst á þær og þaðan í augu
eða nef.
Hvað er til ráða?
Losið um stíflað nef með nefúða,
sem minnkar bólgu í nefslímhúð.
Sofið með hátt undir höfði. Bætið
e.t.v. kodda við, það minnkar
einnig bólguna í nefinu. Gott er
að hækka höfuðlag ungra barna.
Heitir drykkir draga úr særindum í
hálsi. Forðist reykingar því þær erta
slímhúð í öndunarfærum.
Hvers ber að gæta sérstaklega hvað
varðar kvef?
Kvef er alla jafna góðkynja kvilli
sem stendur yfir 1–2 vikur. Af og
til veldur það sýkingu í augum,
ennisholum, innra eyra, hálsi eða
öndunarfærum. Ef grunur er um
sýkingu er ráðlegt að leita læknis
því ástæða getur verið til að með-
höndla hana sérstaklega.
Getur kvefað fólk stundað vinnu?
Yfirleitt er kvefað fólk vinnufært
þótt það sé slappara en annars. Þó
er viðbúið að það þreytist meira en
venjulega og að það geti ekki unnið
á fullum dampi.
Á að meðhöndla kvef með penisillíni
eða öðrum fúkkalyfjum?
Nei, kvef er veirusýking og fúkkalyf
koma ekki að neinu gagni. Aðeins
ef aukakvillar koma fram er gripið
til slíkra lyfja. Dæmi um slíka auka-
kvilla: augnsýking, ígerð í ennishol-
um, bólgur í innra eyra, hálsbólga
og lungnabólga. Ástæðan getur
verið bakteríusýking.
Frekari fróðleik um kvef og aðra
kvilla má finna á www.doktor.is.
Er hægt að
forðast kvefsmit?
Kvef smitast frá því daginn áður en
einkenni koma fram og því er erfitt
að forðast það. Algengt er að kvef-
ast 2–4 sinnum á ári.
Hægt er að reyna að minnka
smitHættu með því að:
n Forðast kvefaða eins og hægt er.
Algengustu kvefveirur smitast á 1–2
metra færi, þ.e.a.s. úðasmit berst
a.m.k. 2–3 metra. Sá kvefaði þarf að
vera iðinn við að þvo sér um hendur
eftir að hafa snýtt sér.
n Þvo hendur eftir að hafa snert
kvefaðan. Hafa góða loftræstingu.
Hvað er kvef og hvað er til ráða?
Um afneitunina
Manneskjan getur gleymt flestu eða afneitað bara með því að snúa sér
undan, og það er nær alltaf auðveldara að snúa sér undan heldur en
að horfa, því sá sem horfir verður að gangast við því sem hann sér, og
síðan vinna gegn því.
Jón Kalman Stefánsson – Harmur englanna
Þið skiljið að þeir sem halda fram með brenndar brýr að baki, hljóta að
forðast endurmat og byrgja sérhvern glugga og hverja gátt sem íhygl-
innar sjón fær gegnum séð.
William Shakespeare – Hinrik fjórði – þýðing: Helgi Hálfdanarson
Ef þér takið lífslygina frá miðlungsmanni sviptið þér hann
hamingjunni um leið.
Henrik Ibsen – Villiöndin – þýðing: Einar Bragi
Að ljúga að öðrum er ljótur vani.
Að ljúga að sjálfum sér hvers manns bani.
Gamalt heilræði
VEl mælt
Katrín Brynja Hermannsdóttir, flugfreyja og fyrrverandi Lottódíva. Fædd 5. september 1971.
Úlfur Eldjárn, tónskáld og hljóðfæraleikari. Fæddur
3. september 1976.
Elín Hirst, fjölmiðlakona og fyrrverandi alþingis-
kona. Fædd 4. september 1960.
Afmælisbörn vikunnar
Jón kalman
46
ára
57
ára
41
ára