Dagblaðið Vísir - DV - 01.09.2017, Blaðsíða 20
20 sport Helgarblað 1. september 2017
Þ
að er gríðarlega mikilvægur
landsleikur á morgun hjá
karlalandsliðinu í fótbolta
þegar það heimsækir Finn-
land í undankeppni HM. Ísland er
á toppi riðilsins ásamt Króatíu og
er í góðri stöðu til að koma sér á
Heimsmeistaramótið í Rússlandi
þegar fjórir leikir eru eftir í riðlin-
um. Ísland vann nauman sigur á
Finnlandi í heimaleiknum en þar
skoraði Ragnar Sigurðsson sigur-
markið á 96. mínútu leiksins. Leik-
urinn fer fram í borginni Tampere
en íslenska liðið kom saman á
mánudag í Helsinki, liðið keyrði
svo upp til Tampere 30. ágúst eft-
ir að hafa horft á körfuboltalands-
liðið keppa við Grikkland í fyrsta
leiknum á EuroBasket sem haldið
er í Finnlandi.
Ísland vann frábæran sigur á
Króatíu í sumar sem hefur komið
liðinu þessa stöðu. Liðið er mjög
nálægt því að komast inn á sitt
fyrsta heimsmeistaramót. Ljóst er
að baráttan um fyrsta sæti riðils-
ins verður hörð og ekki má mis-
stíga sig mikið, en annað sætið
gefur sæti í umspili um laust sæti
á HM. Íslenska liðið er komið með
reynslu í því að spila stóra leiki og
nú er hver einasti leikur sá mikil-
vægasti.
Hvað gerir Heimir?
Áhugavert verður að sjá hvernig
Heimir Hallgrímsson, þjálfari
liðsins, stillir upp liðinu. Liðið
hefur nánast alltaf spilað leikkerfið
4-4-2 undir hans stjórn en gegn
Króatíu í sumar breytti Heimir í
4-5-1 og gafst það vel. Það er margt
sem bendir til þess að Heimir haldi
sig við það kerfi. Emil Hallfreðsson
kom sterkur inn á miðjuna og Gylfi
Þór Sigurðsson fékk meira frelsi
fram völlinn. Sú staðreynd að
Heimir valdi bara þrjá framherja í
hóp sinn núna gefur líka til kynna
að hann gæti hugsað sér að spila
með aðeins einn framherja í stað
tveggja eins og venjan hefur ver-
ið. Liðið ætti þó að vera hefðbund-
ið, Sverrir Ingi Ingason er að setja
pressu á miðverði liðsins, þá Kára
Árnason og Ragnar Sigurðsson,
með góðri spilamennsku í Rúss-
landi en ekki eru miklar líkur á að
Heimir geri breytingar þar. Hörður
Björgvin Magnússon byrjaði gegn
Króatíu í sumar og ætti að halda
sæti sínu, hann skoraði sigur-
markið þar og auk þess eru Finnar
með stórt og sterkt lið og því er lík-
legra að Hörður byrji frekar en Ari
Freyr Skúlason.
Lyktin af Rússlandi byrjuð að
finnast
Íslenska liðið er komið í ótrúlega
góða stöðu í þessum erfiða riðli og
lyktin af miða á Heimsmeistara-
mótið í Rússlandi er byrjuð að finn-
ast. Liðið er í frábærri stöðu og sig-
ur á morgun gegn Finnlandi væri
stórt skref í átt til Rússlands. Takist
svo liðinu að vinna Úkraínu á
Laugardalsvelli á þriðjudag er ljóst
að það er komið í frábæra stöðu og
um ótrúlegt afrek að ræða. Aldrei
hefur knattspyrnulandsliði tekist
að koma sér á heimsmeistaramót
og væri því um að ræða sögulegt
afrek, íslenska liðið þekkir orðið
þá stöðu að koma sér inn á mót og
sú reynsla gæti reynst mikilvæg.
Einnig er magnað að fylgjast með
því hversu jarðbundnir leikmenn
liðsins eru. Þrátt fyrir afrek síðustu
ár eru menn ekkert að fara fram úr
sér. Þeir muna alltaf að þeir koma
frá Íslandi og sýna því hverjum
andstæðingi mikla virðingu, það
hefur skilað árangri og gæti skilað
liðinu til Rússlands.
Stjarnan líkleg til að stíga upp
Til að Íslandi nái hagstæðum úr-
slitum í næstu leikjum er ljóst að
mikið mun mæða á Gylfa Þór Sig-
urðssyni, sjálfstraustið geislar
af Gylfa þessa dagana og það er
góðs viti. Þegar Ísland komst inn
á Evrópumótið í Frakklandi var
það að mestu vegna þess að Gylfi
steig upp þegar á þurfti. Gylfi var
keyptur til Everton á dögunum
fyrir 45 milljónir punda og er að
verða heimsfrægur leikmaður eft-
ir þau skipti, ljóst er að allir and-
stæðingar Íslands munu leggja
mikið upp úr því að stoppa Gylfa
en honum hefur hingað til tekist
að stíga upp og taka af skarið. n
Hannes Þór
Halldórsson
Ragnar Sigurðsson Kári Árnason
Birkir Már
Sævarsson
Hörður Björgvin
Mangússon
Aron Einar
Gunnarsson
Emil
Hallfreðsson
Gylfi Þór
Sigurðsson
Birkir
Bjarnason
Jóhann Berg
Guðmundsson
Alfreð
Finnbogason
n Íslenska landsliðið er í dauðafæri á að komast á HM n Fjórir mikilvægir leikir framundan
Ferðalagið á HM
hefst í Finnlandi
Hvað segja strákarnir?
Gylfi Þór Sigurðsson
„Það hefur verið mikil bið og eftirvænting eftir þessum leik. Ekki
bara hjá okkur heldur hjá þjóðinni líka. Ef þú lítur á gæðin og
hópinn sem Króatía er með þá held ég að þeir tapi ekki mörgum
stigum. 12 stig út úr næstu fjórum leikjum gætu ekki verið nóg. Við
höfum farið yfir þá, ekki bara fyrir þennan leik heldur síðasta leik
líka. Þeir eru alltaf nálægt því að ná úrslitum. Við stálum þremur
stigum síðast en áttum ekkert skilið úr þeim leik.“
Hörður Björgvin Magnússon
„Þetta leggst bara mjög vel í mig eins og hver annar leikur. Við
vitum að þetta verður mjög erfitt út af heimaleiknum okkar þar
sem þeir stríddu okkur. Við höfum aldrei vanmetið neinn og við
komum sterkir inn og reynum að gera eins og í Króatíuleiknum og
taka það besta úr því og nýta það.“
Ragnar Sigurðsson
„Við erum búnir að koma okkur í frábæra stöðu. Við horfum á þessa
tvo leiki sem leiki sem við eigum að vinna, maður hefur hugsað
mikið um þessa leiki. Maður hefur hugsað rosalega mikið um
þetta. Þeir líta á fyrri leikinn sem stolinn sigur af þeim, ég skil það
alveg. Markmaðurinn hjá þeim átti einn besta leik sem ég hef séð
markvörð spila.“
Heimir Hallgrímsson
„Jóhann Berg sleppti síðustu æfingu, hann fékk spark í lærið og fékk
„dead leg“ eins og sagt er og það tekur 2–3 daga að hrista það úr
mönnum. Ég býst við að hann verði 100 prósent með í dag (gær)
en það væri eðlilegt ef hann þyrfti einn dag í viðbót. Allir eru klárir
og æstir í að fá að spila. Við erum búnir að setja upp leikinn eins
og við höldum að hann spilist og finna leikmenn sem henta best í
þann leik. Við vitum að Finnarnir fara pressulausir í þennan leik. Þeir
eru bara að berjast fyrir heiðrinum.“
Staðan í riðlinum
Félag L U J T Mörk Net Stig
1 Króatía 6 4 1 1 11 - 2 9 13
2 Ísland 6 4 1 1 9 - 6 3 13
3 Tyrkland 6 3 2 1 11 - 6 5 11
4 Úkraína 6 3 2 1 9 - 5 4 11
5 Finnland 6 0 1 5 4 - 10 -6 1
6 Kósóvó 6 0 1 5 3 - 18 -15 1
Hörður Snævar Jónsson
hoddi@433.is
Líklegt byrjunarlið Íslands Svona teljum við að Heimir Hallgrímsson muni stilla upp
liðinu á morgun.