Dagblaðið Vísir - DV - 01.09.2017, Blaðsíða 8

Dagblaðið Vísir - DV - 01.09.2017, Blaðsíða 8
8 Helgarblað 1. september 2017fréttir Eignir í umsjá Ríkiskaupa Fasteignir Sveitarfélag Byggingarhluti Ár Staða Bústaðarvegur 9 Reykjavík Gólf og þak 3. hæð 2015 Lokið Borgartún 7 Reykjavík Þak í viðbyggingu 2014 Lokið Vogabraut 5 Akranes Veggir á 2. hæð 2015 Lokið Stekkar 1 Patreksfirði Stigahúsa 2015 Lokið Tryggvagata 19 Reykjavík Þak á 5. hæð 2015 Lokið FSU - Hamar Árborg Þak 2016 Lokið Gljúfrasteinn Mosfellsbær Allt húsið 2016 Lokið Lækjartorg 1 Reykjavík Útv. 3. og 5. hæð 2016 Í vinnslu Héraðsskólinn Laugavatni Baðherbergi í íbúð 2016 Lokið Ánanaust Reykjavík Veggir og gólf 2016 Í skoðun Sölvhólsgata 13 Reykjavík Gaflar 3 hæð 2017 Í vinnslu Sólvangur Hafnarfirði Þak 2017 Í vinnslu Laugavegur 114 Reykjavík 5. hæð og kjallari 2017 Í vinnslu Miðbæjarskóli Reykjavík Óstaðf. grunur 2017 Í skoðun Digranesvegur Kópavogur Gafl 2017 Í vinnslu Eignir í umsjá Ríkiskaupa frá árinu 2011 þar sem fundist hefur mygla og staðan á þeim verkefnum. Listinn er ekki tæmandi en gefur góða mynd af umfangi vandans. „Erum Ekki Eini vinnustaðurinn sEm glímir við þEtta vandamál“ Þ etta er gamalt hús. Nú standa yfir viðgerðir sem, meðal annars, eiga að uppræta mygluna.“ Þetta segir Soffía Lárusdóttir, forstöðumaður Grein- ingar- og ráðgjafarstöðvar ríkisins sem er til húsa á Digranesvegi 5 í Kópavogi. Hlutverk stöðvarinnar er, meðal annars, að tryggja að börn með alvarlegar þroskaskerðingar sem leitt geta til fötlunar síðar á æv- inni fái greiningu, ráðgjöf og önn- ur úrræði sem efla lífsgæði og bæta framtíð þeirra og fjölskyldna þeirra. Starfsfólk hefur fundið fyrir einkennum Greinst hefur mygla á afmörk- uðum stöðum í húsi stöðvarinn- ar og þá helst niðri við gólf. Ekki fannst myglugró í loftsýnum. Þá eru gluggar á austurhlið hússins ónýt- ir og í þeim hluta hússins finnur starfsfólk og notendur þjónustunn- ar fúkkalykt, þá sérstaklega þegar rignir. Soffía, sem getur ekki tjáð sig um einstaka starfsmenn, bendir á að áhrif myglusvepps á fólk séu mjög misjöfn og einstaklingsbund- in. Algengust eru ofnæmisviðbrögð sem tengjast öndunarfærum og það eigi við einhverja starfsmenn Greiningar- og ráðgjafarstöðvar- innar. Soffía hefur sjálf ekki feng- ið kvartanir frá notendum og ekki greindist mygla í þeim rýmum sem börnin dvelja í þegar þau koma í heimsókn. Starfsmenn hafa fundið fyrir óþægindum og allir eru sam- mála um að loftgæði í húsnæðinu þyrftu að vera betri. Samhliða við- gerðum er unnið að því að bæta loftræstikerfi í húsinu. Vonandi klárast málið fyrir áramót „Viðgerðirnar ættu að klárast fyrir áramót. Það tekur allt tíma. Bæði að fá greiningu á vandamálinu sem og biðin eftir iðnaðarmönnum. Þetta er búin að vera heilmikil vinna en auðvitað þarf húsnæðið að vera þannig að það sé bæði starfsmönn- um og notendum þjónustunnar boðlegt,“ segir Soffía en málið er unnið í samvinnu við Ríkiseignir sem hafa umsjón með fasteignum í eigu ríkisins. „Vonandi verða loftgæðin hér og vinnuaðstæður góðar þegar við- gerðum lýkur. Við erum ekki eini vinnustaðurinn á landinu sem glímir við þetta vandamál en sem betur fer sjáum við, vonandi, fyrir endann á þessu.“ Stefnt er að samflutningi Grein- ingar- og ráðgjafarstöðvar ríkis- ins og Þjónustu- og þekkingarmið- stöðvar fyrir blinda, sjónskerta og daufblinda í eitt húsnæði. Síðustu misseri hefur verið unnið að undir- búningi verkefnisins í samvinnu við velferðarráðuneytið og er nú verið að leita leiða til þess að tryggja fjármögnun verkefnisins. Rakaskemmdir reddast ekki Reglulega berast fregnir af því í fjölmiðlum að mygla hafi fundist í húsnæði þar sem mikill fjöldi fólks hefst við, eða sækir þjónustu í. Þar má til dæmis nefna Land spítalann, Íslandsbanka og Kársnesskóla. Myglusveppur getur ógnað heilsu fólks verulega og því er brýnt að ráðast strax að rótum vandans, þegar hann kemur upp. Sylgja Dögg Sigurjónsdóttir, fagstjóri hjá Eflu verkfræðistofu, segir að vanda- mál sem komi upp samhliða raka- skemmdum í húsum megi fyrst og fremst tengja við skort á viðhaldi. „Það skiptir engu máli hversu gam- alt húsið er heldur hvernig það var byggt og hvernig var gengið frá því.“ Þá segir Sylgja það alltof algengt að viðgerðir séu ekki hugsaðar til enda. „Rakaskemmdir spyrja ekki um stétt, stöðu eða aldur heldur koma þær fram þar sem vatn getur lekið inn.“ Að mati Sylgju þarf að laga þrjá þætti í þessu samhengi svo hægt sé að uppræta myglu í íslenskum hús- um til framtíðar. Það eru fordóm- ar, þekkingarleysi og kæruleysi. „Fordómarnir valda því að við tök- um skemmdum af völdum raka og myglu ekki nógu alvarlega. Ef við tökum þeim ekki nógu alvarlega þá vöndum viðgerðirnar ekki nóg. Kæruleysið er það versta. Það verð- ur að laga, til dæmis með fræðslu og forvörnum.“ Fimmtán tilfelli frá árinu 2011 Í samtali við DV segir Helgi Braga- son, sviðstjóri byggingasviðs Ríkis- eigna sem hafa í sinni umsjá rúm- lega helming af húsnæði ríkisins, að það hafi komið upp 15 myglu- tilfelli í þeim 376 fasteignum, sem Ríkiseignir hafa umsjón með, síð- astliðin fimm ár. Ríkiseignir hafa ekki umsjón með fasteignum sem heyra undir Landspítalann, Há- skóla Íslands og Stjórnarráðs- reitinn. Mörg alvarleg tilfelli hafa sömuleiðis komið upp í eignum á þeirra vegum síðustu ár. n Rakaskemmdir og mygla fundust í húsnæði Greiningar- og ráðgjafarstöðvarinnar í Kópavogi„Fordómarnir valda því að við tökum skemmdum af völdum raka og mylgu ekki nógu alvarlega. Ef við tökum þeim ekki nógu alvarlega þá vöndum viðgerðirn- ar ekki nóg. Kæruleysið er það versta. Það verð- ur að laga, til dæmis með fræðslu og forvörnum. Kristín Clausen kristin@dv.is Húsið var illa farið á nokkrum stöðum Vi ðgerðum á að vera lokið fyrir áramót. Mynd SigtRygguR ARi Viðgerðir standa yfir Starfsfólk og notendur þjónustunnar hafa kvartað yfir fúkkalykt í húsinu. Mynd SigtRygguR ARi digranesvegur 5 Rakaskemmdir og mygla fundust í húsnæðinu. Mynd SigtRygguR ARi
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.