Dagblaðið Vísir - DV - 01.09.2017, Blaðsíða 16
16 umræða
Útgáfufélag: DV ehf. Stjórnarformaður og útgefandi: Björn Ingi Hrafnsson
ritstjórar: Kolbrún Bergþórsdóttir og Sigurvin Ólafsson ritstjóri dv.is: Kristjón Kormákur Guðjónsson
aðstoðarritstjóri dv.is: Einar Þór Sigurðsson umbrot: DV ehf. Prentun: Landsprent Dreifing: Árvakur
DV áskilur sér rétt til að birta aðsent efni blaðsins á stafrænu
formi og í gagnabönkum án endurgjalds. Öll viðtöl blaðsins eru
hljóðrituð. Notkun á efni blaðsins er óheimil án samþykkis.
aðalnúmer: 512 7000
auglýsingar: 512 7050
ritstjórn: 512 7010
fréttaskot
512 70 70
Heimilisfang
Kringlan 4-12, 4. hæð
103 Reykjavík
Sandkorn
Helgarblað 1. september 2017
Ríkisstjórn á réttri leið
Myndin Dyrfjöll Vaskur göngumaður býr sig undir að klífa Dyrfjöll úr Jökuldal á Borgarfirði eystra á dögunum. mynD Sigtryggur Ari
Leynibrall frá
fyrsta degi
Kaupa minna
og ábyrgara
Gjaldmiðill sem leggur fjárhag heimila og
fyrirtækja í rúst á víxl er ekki góður gjaldmiðill
Davíð Oddsson um ástandið á húsi Orkuveitunnar. – Morgunblaðið Drífa Snædal – visir.isBenedikt Jóhannesson – eyjan.is
Lítið mannval
Ljóst er að nýr varaformaður
verður kjörinn á landsfundi
Vinstri grænna í næsta mánuði,
þar eð Björn Valur gíslason
hefur gefið það út að hann
hyggist ekki leita endurkjörs.
Þegar hafa tveir flokksmenn lýst
því yfir að þeir gefi kost á sér,
Óli Halldórsson, sveitarstjórnar
maður í Norðurþingi, og Edward
Huijbens, fyrrverandi bæjarfull
trúi á Akureyri. Vinstri græn eru
næststærsti flokkur landsins og
algjört forystuafl í stjórnarand
stöðunni. Það vekur því athygli
að ekki skuli öflugri kandídatar
gefa kost á sér í embættið.
misskilningur á
boðskap
Frelsisflokkurinn hyggst bjóða
fram í komandi borgarstjórnar
kosningum með margréti Friðriks-
dóttur sem oddvita. Flokkurinn
er hvorki hrifinn af innflytjenda
stefnu stjórnvalda né múslimum.
„Flokkurinn styður kristna trú og
gildi,“ svaraði Margrét þegar dv.is
spurði hana út í þau mál. Kristin
gildi felast ekki síst í náungakær
leik og umburðarlyndi, þannig að
eitthvað hefur flokkurinn misskil
ið kærleiksboðskapinn.
Völd fyrir lítið
Ársfundur Bjartrar framtíðar
fer fram um helgina og meðal
annars verður þar kosið um for
mann. Óttarr Proppé býður sig
fram til áframhaldandi setu og
hefur ekki fengið mótframboð
enn sem komið er. Hins vegar er
þó hægt að bjóða sig fram í upp
hafi fundarins. Miðað við stuðn
ing flokksins í skoðanakönnun
um má gera ráð fyrir að auðvelt
muni reynast að smala í for
mannskosninguna. Hafi einhver
því áhuga á að gerast formaður
stjórnmálaflokks, sem situr í rík
isstjórn, getur viðkomandi mætt
með vini niður í Rúgbrauðsgerð
fyrir klukkan ellefu á laugardags
morguninn næstkomandi.
Þ
að er ekki til siðs í samtíma
okkar, þar sem skammast
er yfir öllu, að hrósa stjórn
málamönnum en ríkis
stjórn Íslands á skilið hrós fyrir
þá ákvörðun að bjóða á sjötta tug
flóttamanna til Íslands á næsta ári.
Til stendur að taka við mun fleiri
flóttamönnum á næstu árum og er
það vel.
Velsæld ríkir í landinu og það er
skylda okkar að rétta hjálparhönd
þeim sem búa við mikla neyð.
Flóttamenn, og þar á meðal eru
fjölmörg börn, búa við óöryggi og
hættur dag hvern. Við Íslendingar
erum hluti af alþjóðasamfélaginu
og eigum ekki að loka okkur af og
láta okkur þjáningar umheimsins
engu varða. Við eigum að sýna sið
ferðiskennd og bjóða fólki í neyð
velkomið hingað til lands. Samúð
með þeim sem þjást, skilningur á
högum þeirra og vilji til að rétta
þeim hjálparhönd eru eiginleikar
sem ættu að prýða hvern einstak
ling.
Því miður er það svo að í hvert
sinn sem fréttir berast af komu
flóttamanna hingað til lands upp
hefst kór sem tónar að það eigi
að forgangsraða rétt og aðstoða
þá Íslendinga sem búa við bág
kjör en ekki taka við einhverjum
útlendingum. Þarna er verið að
etja saman hópum því fullyrt er að
aðstoð við erlent flóttafólk bitni á
þeim Íslendingum sem búa við
erfiða fjárhagsstöðu. Ekki felst
mikill náungakærleikur í slíkum
upphrópunum heldur er beinlín
is verið að ala á útlendingaandúð.
Það að rétta einum hópi hjálp
arhönd jafngildir vitaskuld ekki
því að ómögulegt sé að aðstoða
aðra. Þetta vita allir en sumir kjósa
að láta eins og þeir viti ekki af því.
Þegar rætt er um flóttamenn
og aðstoð við þá byrjar þessi sami
kór síðan að kyrja um hætturnar
sem stafa af múslimum sem hing
að koma. Það er furðulegt hversu
auðvelt þessi hópur á með að
flokka múslima og stimpla sem
hugsanlega hryðjuverkamenn.
Blessunarlega er þessi kór ekki
mjög fjölmennur hér á landi en
hann er þó of hávær. Þar er eins og
þröngsýnin og mannfyrirlitningin
eigi sér engin takmörk. Það furðu
lega er svo að þessi hópur þykist
ansi oft tala í nafni kristinnar trúar.
Biskup landsins hefur sannarlega
staðið í lappirnar og talað máli
flóttamanna og vitnað í orð Krists.
Það hefur ekki áhrif á hópinn sem
ætlar ekki að láta sér segjast og
skammast í biskupi og sömuleiðis
Rauða krossinum sem þykir víst
alltof hallur undir útlendinga.
Það skiptir máli að í landinu
er ríkisstjórn sem setti í stjórnar
sáttmála sinn að tekið yrði á
móti fleiri flóttamönnum og að
innflytjendum yrði auðveldað
að verða fullgildir og virkir þátt
takendur í íslensku samfélagi.
Vitaskuld má ýmislegt mun betur
fara þegar kemur að málefnum
flóttamanna, en ríkisstjórnin er
samt á réttri leið. n
Leiðari
Kolbrún Bergþórsdóttir
kolbrun@dv.is
„Samúð með þeim
sem þjást, skiln-
ingur á högum þeirra
og vilji til að rétta þeim
hjálparhönd eru eigin-
leikar sem ættu að prýða
hvern einstakling.