Dagblaðið Vísir - DV - 01.09.2017, Blaðsíða 21

Dagblaðið Vísir - DV - 01.09.2017, Blaðsíða 21
sport 21Helgarblað 1. september 2017 F reyr Alexandersson, lands­ liðsþjálfari kvenna í knattspyrnu, valdi í vikunni hóp sinn fyrir fyrsta verk­ efnið í undankeppni Heimsmeist­ aramóts kvenna og markar það þáttaskil eftir erfitt sumar. Lands­ liðið fór á Evrópumótið í Hollandi í sumar þar sem það féll á stóra prófinu og tapaði öllum leikjun­ um. Freyr hefur eftir mótið farið yfir það sem vel var gert og það sem illa fór. Hann fer yfir hlutina í ítar­ legu viðtal sem DV tók við hann í vikunni. „Ég þarf að setja einhver þáttaskil í þetta og hætta að ræða þetta núna, ég mun samt halda áfram að vinna í því sem þarf að laga hér innanhúss. Ég verð með erindi á ráðstefnu í kringum bikar­ úrslitaleikinn þar sem ég mun gera þetta upp með þjálfurum og þeim sem vilja í hreyfingunni, ég þarf samt að hætta að hugsa um þetta. Leikmennirnir þurfa líka að ýta þessu frá sér, þetta er búið. Við þurfum að laga það sem þarf að laga en núna þurfum við að einbeita okkur að því að ná í stig í undankeppni HM og vera klár­ ir í það sem fram undan er,“ sagði Freyr þegar við settumst niður með honum í Laugardalnum. Umgjörðin fyrsta flokks Freyr fór yfir það sem vel var gert á Evrópumótinu í sumar og nefnir þar nokkra hluti. „Það eru nokkrir þættir sem voru já­ kvæðir, fyrst og síðast umgjörðin. Gæðin á því sem við vorum að gera í kringum liðið; starfsliðið og knattspyrnusambandið gerðu þetta eins vel og hægt var. Liðið hagaði sér svo líka vel á leið inn í mótið og hvernig það ætlaði sér að vera í standi til að gera þetta almennilega, það var allt faglegt og gott. Áhuginn og umfjöllun fjölmiðla var jákvæð, áhugi fólks­ ins í landinu og fyrirtækja var já­ kvæður. Skoðanir fólks á liðinu; fólki var ekki sama. Þetta eru hlutir sem ekki þekktust í okkar umhverfi, þetta tók líka á, en ég vil miklu frekar hafa það þannig frekar en að öllum sé sama. Það er risastór sigur, við liðið eigum ekki bara heiðurinn af því. Fjölmiðlar eiga stóran þátt í því og fyrirtæk­ in í landinu sem fóru að setja smá pening í þetta og styrkja leikmenn og auglýsa meira. Í mótinu sjálfu sýndum við gegn Frakklandi að við eigum heima þarna, við spil­ uðum taktískt mjög vel og vorum góð í leiknum. Við spiluðum vel í skrýtnum leik gegn Sviss, þar var líklega besta frammistaða sem við höfum sýnt gegn þeim. Frammi­ staðan gegn þeim var góð og ekk­ ert hægt að setja út á það.“ Þetta þarf að vera viðmiðið Ljóst er að KSÍ lagði mikið í mótið og fjölmiðlar settu ný viðmið í um­ fjöllun. „Þetta verður að vera við­ miðið í öllu í kringum þetta mót og það er það sem ég hef rætt um, ég þarf að finna að fólk vilji halda þessu áfram. Annað væri óásættan­ legt, ég geri mér grein fyrir því að það verða ekki sjö þúsund manns á leiknum gegn Færeyjum. Ég vil meina að almennt séu gæðin á öllu hérna í ákveðnum gæðaflokki og að fólki finnist áhugavert að fylgj­ ast með liðinu. Að leikmenn finni kraft innra með sér til að taka þátt í þessu og okkur tókst á þessu móti að setja allt í háan gæðaflokk.“ Gerum barnaleg mistök Freyr segir að hlutir sem hafi far­ ið úrskeiðis hafi verið nokkrir og nefnir þar tæknilega getu leik­ manna sem sást vel á mótinu að vantaði mikið upp á. „Við erum svo úr leik og þá lendum við á vegg andlega, við erum bara hörmuleg í leiknum gegn Austurríki. Við ger­ um barnaleg mistök og erum ekki í neinu standi til að takast á við verk efnið, Austurríki gengur á lag­ ið og var miklu betra. Ég veit síðan ekki ástæðu þess að við virtumst með lélegri boltatækni en hin liðin, það gæti verið að margir leik­ menn spila í Pepsi­deildinni. Það gæti líka verið hversu fá við erum sem þjóð og bestu leikmennirnir geta komist upp með að fara svo­ lítið létt í gegnum hlutina. Auð­ vitað getum við sent og tekið við bolta en á þessu stigi, á þessum hraða og undir þessari pressu, þá eigum við í erfiðleikum. Við erum í erfiðleikum með að taka boltann í rétt svæði, senda boltann á rétt­ an hátt. Við þurfum að laga tækni­ legu færnina, kannski er hættulegt að ég sé að tala um að okkur vanti svona hluti. Ef við tölum ekki um þetta og ætlum ekki að laga þetta að þá verðum við ekki betri, þeir sem ég hef talað við í hreyfingunni sáu þetta eins vel og ég. Við erum aðeins á eftir og verðum að laga það, það gerum við á æfingasvæð­ inu inni í félögunum. Það er risa­ stór þáttur í þessu að komast í betri lið og betri deildir. Fanndís er á leið í það núna og fleiri leikmenn kannski. Þar þarf að hafa fyrir hlutunum á hverri einustu æfingu og í hverjum einasta leik. Fanndís fer í frönsku deildina og þar eru leikmenn jafnvel hraðari en hún og sterkari. Hérna heima er hún bæði fljótust og sterkust, hún get­ ur ekki annað en bætt sig ef hugar­ farið er rétt til að takast á við svona áskorun. Leikmaður eins og hún þarf meira áreiti til að bæta sig og ég held að Breiðablik hafi séð það og leyft henni að fara.“ Nýtt upphaf Freyr þarf að endurstilla liðið og koma því í gírinn fyrir undankeppni HM en þar er Þýskaland líkleg­ ast til að vinna riðilinn og líklegt að Tékkland berjist við Ísland um annað sætið. Fyrsta sætið tryggir öruggt sæti á HM og fjögur af sjö liðum í öðru sæti fara í umspil um sæti á HM í Frakklandi. „Fyrir riðil­ inn þá horfum við á að það er hægt að vinna Þýskaland í einum leik og komast áfram eins og Danir gerðu á EM. Í riðli sem tekur heilt ár þá er það mjög erfitt. Við munum ein­ beita okkur að því að ná öðru sæti og sjá til þess að tryggja okkur um­ spilið. Á sama tíma væri gaman að stríða risanum og kroppa í hann. Við sýndum á EM að það er hægt ef við erum með allt á hreinu. Ef við fáum stig í Þýskalandi og komum svo heim í leik þar sem allt er und­ ir, fullur völlur og stemming, þá get­ ur allt gerst. Það skiptir öllu máli að halda fókus í öllum leikjum í þess­ um riðli, hvert mark getur talið til að fara áfram,“ sagði Freyr að lokum. n Freyr gerir upp erFitt sumar „Þetta verður að vera viðmiðið n Íslenska liðinu gekk ekki vel í sumar n Nú er nýtt upphaf Hörður Snævar Jónsson hoddi@433.is „Áhuginn og um- fjöllun fjölmiðla var jákvæð, áhugi fólksins í landinu og fyrirtækja var jákvæður. Freyr Alexanders- son Búinn að velja hóp fyrir fyrsta verkefnið í undankeppni Heimsmeist- aramóts kvenna. myNd epA
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.