Dagblaðið Vísir - DV - 01.09.2017, Page 21
sport 21Helgarblað 1. september 2017
F
reyr Alexandersson, lands
liðsþjálfari kvenna í
knattspyrnu, valdi í vikunni
hóp sinn fyrir fyrsta verk
efnið í undankeppni Heimsmeist
aramóts kvenna og markar það
þáttaskil eftir erfitt sumar. Lands
liðið fór á Evrópumótið í Hollandi
í sumar þar sem það féll á stóra
prófinu og tapaði öllum leikjun
um.
Freyr hefur eftir mótið farið yfir
það sem vel var gert og það sem
illa fór. Hann fer yfir hlutina í ítar
legu viðtal sem DV tók við hann í
vikunni.
„Ég þarf að setja einhver
þáttaskil í þetta og hætta að ræða
þetta núna, ég mun samt halda
áfram að vinna í því sem þarf að
laga hér innanhúss. Ég verð með
erindi á ráðstefnu í kringum bikar
úrslitaleikinn þar sem ég mun
gera þetta upp með þjálfurum og
þeim sem vilja í hreyfingunni, ég
þarf samt að hætta að hugsa um
þetta. Leikmennirnir þurfa líka
að ýta þessu frá sér, þetta er búið.
Við þurfum að laga það sem þarf
að laga en núna þurfum við að
einbeita okkur að því að ná í stig
í undankeppni HM og vera klár
ir í það sem fram undan er,“ sagði
Freyr þegar við settumst niður
með honum í Laugardalnum.
Umgjörðin fyrsta flokks
Freyr fór yfir það sem vel var
gert á Evrópumótinu í sumar
og nefnir þar nokkra hluti. „Það
eru nokkrir þættir sem voru já
kvæðir, fyrst og síðast umgjörðin.
Gæðin á því sem við vorum að
gera í kringum liðið; starfsliðið
og knattspyrnusambandið gerðu
þetta eins vel og hægt var. Liðið
hagaði sér svo líka vel á leið inn
í mótið og hvernig það ætlaði sér
að vera í standi til að gera þetta
almennilega, það var allt faglegt
og gott. Áhuginn og umfjöllun
fjölmiðla var jákvæð, áhugi fólks
ins í landinu og fyrirtækja var já
kvæður. Skoðanir fólks á liðinu;
fólki var ekki sama. Þetta eru
hlutir sem ekki þekktust í okkar
umhverfi, þetta tók líka á, en ég
vil miklu frekar hafa það þannig
frekar en að öllum sé sama. Það er
risastór sigur, við liðið eigum ekki
bara heiðurinn af því. Fjölmiðlar
eiga stóran þátt í því og fyrirtæk
in í landinu sem fóru að setja smá
pening í þetta og styrkja leikmenn
og auglýsa meira. Í mótinu sjálfu
sýndum við gegn Frakklandi að
við eigum heima þarna, við spil
uðum taktískt mjög vel og vorum
góð í leiknum. Við spiluðum vel í
skrýtnum leik gegn Sviss, þar var
líklega besta frammistaða sem við
höfum sýnt gegn þeim. Frammi
staðan gegn þeim var góð og ekk
ert hægt að setja út á það.“
Þetta þarf að vera viðmiðið
Ljóst er að KSÍ lagði mikið í mótið
og fjölmiðlar settu ný viðmið í um
fjöllun. „Þetta verður að vera við
miðið í öllu í kringum þetta mót
og það er það sem ég hef rætt um,
ég þarf að finna að fólk vilji halda
þessu áfram. Annað væri óásættan
legt, ég geri mér grein fyrir því að
það verða ekki sjö þúsund manns
á leiknum gegn Færeyjum. Ég vil
meina að almennt séu gæðin á öllu
hérna í ákveðnum gæðaflokki og
að fólki finnist áhugavert að fylgj
ast með liðinu. Að leikmenn finni
kraft innra með sér til að taka þátt
í þessu og okkur tókst á þessu móti
að setja allt í háan gæðaflokk.“
Gerum barnaleg mistök
Freyr segir að hlutir sem hafi far
ið úrskeiðis hafi verið nokkrir og
nefnir þar tæknilega getu leik
manna sem sást vel á mótinu að
vantaði mikið upp á. „Við erum
svo úr leik og þá lendum við á vegg
andlega, við erum bara hörmuleg í
leiknum gegn Austurríki. Við ger
um barnaleg mistök og erum ekki
í neinu standi til að takast á við
verk efnið, Austurríki gengur á lag
ið og var miklu betra. Ég veit síðan
ekki ástæðu þess að við virtumst
með lélegri boltatækni en hin
liðin, það gæti verið að margir leik
menn spila í Pepsideildinni. Það
gæti líka verið hversu fá við erum
sem þjóð og bestu leikmennirnir
geta komist upp með að fara svo
lítið létt í gegnum hlutina. Auð
vitað getum við sent og tekið við
bolta en á þessu stigi, á þessum
hraða og undir þessari pressu, þá
eigum við í erfiðleikum. Við erum
í erfiðleikum með að taka boltann
í rétt svæði, senda boltann á rétt
an hátt. Við þurfum að laga tækni
legu færnina, kannski er hættulegt
að ég sé að tala um að okkur vanti
svona hluti. Ef við tölum ekki um
þetta og ætlum ekki að laga þetta
að þá verðum við ekki betri, þeir
sem ég hef talað við í hreyfingunni
sáu þetta eins vel og ég. Við erum
aðeins á eftir og verðum að laga
það, það gerum við á æfingasvæð
inu inni í félögunum. Það er risa
stór þáttur í þessu að komast í betri
lið og betri deildir. Fanndís er á
leið í það núna og fleiri leikmenn
kannski. Þar þarf að hafa fyrir
hlutunum á hverri einustu æfingu
og í hverjum einasta leik. Fanndís
fer í frönsku deildina og þar eru
leikmenn jafnvel hraðari en hún
og sterkari. Hérna heima er hún
bæði fljótust og sterkust, hún get
ur ekki annað en bætt sig ef hugar
farið er rétt til að takast á við svona
áskorun. Leikmaður eins og hún
þarf meira áreiti til að bæta sig og
ég held að Breiðablik hafi séð það
og leyft henni að fara.“
Nýtt upphaf
Freyr þarf að endurstilla liðið og
koma því í gírinn fyrir undankeppni
HM en þar er Þýskaland líkleg
ast til að vinna riðilinn og líklegt
að Tékkland berjist við Ísland um
annað sætið. Fyrsta sætið tryggir
öruggt sæti á HM og fjögur af sjö
liðum í öðru sæti fara í umspil um
sæti á HM í Frakklandi. „Fyrir riðil
inn þá horfum við á að það er hægt
að vinna Þýskaland í einum leik og
komast áfram eins og Danir gerðu
á EM. Í riðli sem tekur heilt ár þá
er það mjög erfitt. Við munum ein
beita okkur að því að ná öðru sæti
og sjá til þess að tryggja okkur um
spilið. Á sama tíma væri gaman að
stríða risanum og kroppa í hann.
Við sýndum á EM að það er hægt
ef við erum með allt á hreinu. Ef við
fáum stig í Þýskalandi og komum
svo heim í leik þar sem allt er und
ir, fullur völlur og stemming, þá get
ur allt gerst. Það skiptir öllu máli að
halda fókus í öllum leikjum í þess
um riðli, hvert mark getur talið til að
fara áfram,“ sagði Freyr að lokum. n
Freyr gerir upp
erFitt sumar
„Þetta verður að
vera viðmiðið
n Íslenska liðinu gekk ekki vel í sumar n Nú er nýtt upphaf
Hörður Snævar Jónsson
hoddi@433.is „Áhuginn og um-
fjöllun fjölmiðla
var jákvæð, áhugi fólksins
í landinu og fyrirtækja var
jákvæður.
Freyr Alexanders-
son Búinn að velja hóp
fyrir fyrsta verkefnið í
undankeppni Heimsmeist-
aramóts kvenna. myNd epA