Dagblaðið Vísir - DV - 01.09.2017, Blaðsíða 38
4 Hvíl í friði Helgarblað 1. september 2017KYNNINGARBLAÐ
Líkkistur, innréttingar,
tréstigar og sumarhús
Trésmiðjan sTígandi
Trésmiðjan stígandi á Blönduósi smíðar vandaðar líkkistur,
bæði hvítar og spónlagðar
með viðartegund að vali
kaupanda. Kisturnar eru
afgreiddar fullbúnar, fóðr-
aðar og með kodda, sæng
og blæju. Líkklæði er einnig
hægt að kaupa sé þess
óskað. Kisturnar eru sendar
daginn eftir pöntun hvert á
land sem er.
að sögn guðmundar
arnar sigurjónssonar, eins
eigenda stíganda, afgreiðir
fyrirtækið um 30 líkkistur
á ári. Flestar eru keyptar í
héraðinu, einhverjar fara
á Blönduós og Hvamms-
tanga, og svo eru nokkrar
afgreiddar vítt og breitt
um landið, meðal annars
til reykjavíkur. segir guð-
mundur að ástæðurnar fyrir
því að líkkisturnar frá þeim
nái svo langt út fyrir hér-
aðið bæði vera gott orðspor
fyrir tækisins í líkkistusmíði
og að verðið á þeim þyki
afar hagstætt miðað við
mikil gæði.
starfsemi Trésmiðjunnar
stíganda hvílir á gömlum og
traustum grunni. Fyrirtækið
var stofnað árið 1947 og
hefur ávallt verið staðsett á
norðurlandi, en stofnendur
þess komu þó úr reykjavík.
í dag eru þrír starfsmenn
fyrirtækisins í eigenda-
hópnum en starfsmenn eru
alls 13, meirihlutinn tré-
smiðir.
að sögn guðmundar er
starfsemin afar fjölbreytt
en þó er sérsmíði á inn-
réttingum mjög stór þáttur
af starfseminni: „Við erum
stærsti aðilinn á svæðinu í
viðhaldi og nýsmíði og því
mikið leitað til okkar varð-
andi alls konar verkefni. Við
erum í raun þjónustufyrir-
tæki á vakt hér og það er
feikilega mikið að gera.“
Trésmiðjan stígandi tekur
að sér allt sem við kemur
byggingum og mannvirkja-
gerð. Á tæknivæddu verk-
stæði smíða starfsmenn
fyrirtækisins nánast hvað
sem er, allt eftir óskum við-
skiptavina. Lögð er áhersla
á vönduð vinnubrögð og
persónulega þjónustu.
Innréttingar, tréstigar og
sumarhús
Á heimasíðu stíganda, stig-
andihf.is, má finna fróð-
legar upplýsingar um ýmsar
vörur fyrirtækisins. Áður eru
líkkisturnar nefndar en auk
þeirra framleiðir stígandi
til dæmis mikið af fallegum
og vönduðum innréttingum
af ýmsu tagi. Þrautreyndir
starfsmenn eru viðskipta-
vinum til ráðgjafar varðandi
efnisval og útfærslu, en
möguleikarnir eru endalausir.
Þá smíðar stígandi
tréstiga af öllum stærðum
og gerðum þar sem nýtt
er í senn nýjasta tækni og
dýrmæt reynsla iðnmeist-
ara fyrirtækisins af gömlu
handbragði.
Enn fremur framleiðir stíg-
andi sumarhús og smáhýsi
til flutnings hvert á land sem
er. meðal annars eru í boði
svokölluð hraðhús, sem eru
55 fermetra, byggð úr tveim-
ur einingum sem eru smíð-
aðar á starfssvæði stíganda
og fluttar á byggingarstaðinn
ásamt forsteyptum undir-
stöðum. auðvelt er að bæta
þriðju einingunni við hvenær
sem er og stækka húsið þar
með upp í 82 fermetra.
Trésmiðjan Stígandi
Húnabraut 29, Blönduósi
Sími: 452-4123
Netfang: gummi@stig-
andihf.is
Heimasíða: www.stig-
andihf.is