Dagblaðið Vísir - DV - 01.09.2017, Síða 38

Dagblaðið Vísir - DV - 01.09.2017, Síða 38
4 Hvíl í friði Helgarblað 1. september 2017KYNNINGARBLAÐ Líkkistur, innréttingar, tréstigar og sumarhús Trésmiðjan sTígandi Trésmiðjan stígandi á Blönduósi smíðar vandaðar líkkistur, bæði hvítar og spónlagðar með viðartegund að vali kaupanda. Kisturnar eru afgreiddar fullbúnar, fóðr- aðar og með kodda, sæng og blæju. Líkklæði er einnig hægt að kaupa sé þess óskað. Kisturnar eru sendar daginn eftir pöntun hvert á land sem er. að sögn guðmundar arnar sigurjónssonar, eins eigenda stíganda, afgreiðir fyrirtækið um 30 líkkistur á ári. Flestar eru keyptar í héraðinu, einhverjar fara á Blönduós og Hvamms- tanga, og svo eru nokkrar afgreiddar vítt og breitt um landið, meðal annars til reykjavíkur. segir guð- mundur að ástæðurnar fyrir því að líkkisturnar frá þeim nái svo langt út fyrir hér- aðið bæði vera gott orðspor fyrir tækisins í líkkistusmíði og að verðið á þeim þyki afar hagstætt miðað við mikil gæði. starfsemi Trésmiðjunnar stíganda hvílir á gömlum og traustum grunni. Fyrirtækið var stofnað árið 1947 og hefur ávallt verið staðsett á norðurlandi, en stofnendur þess komu þó úr reykjavík. í dag eru þrír starfsmenn fyrirtækisins í eigenda- hópnum en starfsmenn eru alls 13, meirihlutinn tré- smiðir. að sögn guðmundar er starfsemin afar fjölbreytt en þó er sérsmíði á inn- réttingum mjög stór þáttur af starfseminni: „Við erum stærsti aðilinn á svæðinu í viðhaldi og nýsmíði og því mikið leitað til okkar varð- andi alls konar verkefni. Við erum í raun þjónustufyrir- tæki á vakt hér og það er feikilega mikið að gera.“ Trésmiðjan stígandi tekur að sér allt sem við kemur byggingum og mannvirkja- gerð. Á tæknivæddu verk- stæði smíða starfsmenn fyrirtækisins nánast hvað sem er, allt eftir óskum við- skiptavina. Lögð er áhersla á vönduð vinnubrögð og persónulega þjónustu. Innréttingar, tréstigar og sumarhús Á heimasíðu stíganda, stig- andihf.is, má finna fróð- legar upplýsingar um ýmsar vörur fyrirtækisins. Áður eru líkkisturnar nefndar en auk þeirra framleiðir stígandi til dæmis mikið af fallegum og vönduðum innréttingum af ýmsu tagi. Þrautreyndir starfsmenn eru viðskipta- vinum til ráðgjafar varðandi efnisval og útfærslu, en möguleikarnir eru endalausir. Þá smíðar stígandi tréstiga af öllum stærðum og gerðum þar sem nýtt er í senn nýjasta tækni og dýrmæt reynsla iðnmeist- ara fyrirtækisins af gömlu handbragði. Enn fremur framleiðir stíg- andi sumarhús og smáhýsi til flutnings hvert á land sem er. meðal annars eru í boði svokölluð hraðhús, sem eru 55 fermetra, byggð úr tveim- ur einingum sem eru smíð- aðar á starfssvæði stíganda og fluttar á byggingarstaðinn ásamt forsteyptum undir- stöðum. auðvelt er að bæta þriðju einingunni við hvenær sem er og stækka húsið þar með upp í 82 fermetra. Trésmiðjan Stígandi Húnabraut 29, Blönduósi Sími: 452-4123 Netfang: gummi@stig- andihf.is Heimasíða: www.stig- andihf.is

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.