Dagblaðið Vísir - DV - 01.09.2017, Blaðsíða 6
6 Helgarblað 1. september 2017fréttir
Grímur Vilhelmsson Myndin var tekin
við opnun veitingastaðar Gríms í Skarsnes
og birtist í Glåmdalen AS.
Slobrua Gjestegård Hér rak Grímur
veitingastað sinn Tvo vita í tæpt ár.
Í
slenskum athafnamanni hefur
á rúmu ári tekist að reka fimm
veitingastaði í þrot í Noregi.
Þetta kemur fram í umfjöllun
héraðsblaðsins Glåmdalen AS.
Umræddur maður, Grímur Vil
helmsson, flúði frá Íslandi eftir
að hafa skilið eftir sig sviðna jörð
í tengslum við veitingarekstur á
Suðurnesjum. Sagan hefur nú
endurtekið sig í Noregi. Grímur
kennir norskum fjölmiðli um
ófarir sínar.
Sviðin jörð á Reykjanesi
Í byrjun október í fyrra fjallaði
DV um opnun Gríms á veitinga
stað í Skarsnes Noregi. Fékk stað
urinn nafnið Tveir vitar sem var
sama nafn og veitingastaður sem
Grímur rak við Garðskagavita bar.
Gríðarleg óregla var á rekstrinum
hér á landi og sveik Grímur marga
starfsmenn um laun og stóð ekki
skil á opinberum gjöldum. Van
efndirnar urðu til þess að verka
lýðsfélag í Reykjanesbæ fór fram
á persónulegt gjaldþrot Gríms.
Það gekk í gegn og í kjölfarið flúði
Grímur til Noregs þar sem hann
hélt veitingarekstrinum áfram.
DV hafði aðeins upplýsingar um
þennan eina veitingastað en í
umfjöllun norsks héraðsblaðs
kemur fram að Grímur hafi ver
ið með puttana í rekstri fjögurra
annarra veitingastaða í bænum
Halden, skammt frá Fredrikstad.
Þeim hefur öllum verið lokað.
Veðjaði á kóreska ferðamenn
Héraðsblaðið Glåmdalen AS,
sem er á Skarsnesi, stutt frá
Kongsvinger, hefur skrifað
nokkrar fréttir um málið. Í þeirri
fyrstu kemur fram að forsvars
menn fyrirtækisins Slomarka
Eiendom AS, sem á fasteign
ina sem Grímur hafði leigt und
ir veitingastaðinn í Skarsnesi,
hafi fengið nóg af af vangoldinni
húsaleigu og því sé áfram
haldandi rekstur Gríms í upp
námi. Fram kemur að vanefnd
irnar hafi hljóðað upp á rúmlega
168 þúsund norskar krónur eða
rúmlega tvær milljónir íslenskra
króna. Grímur hafði gert tíu ára
samning um húsnæðið og því
voru um níu ár eftir af leigutím
anum.
Veitingastaður Gríms er hluti
af stórri ferðaþjónustueiningu
sem heitir Slobrua Gestegård.
Þar er rekið gistiheimili og vin
sæll baðstaður. Í frétti Glåmdalen
AS kemur fram að rekstraraðilar
á svæðinu hafi verið afar ósáttir
við þá stefnu Gríms að einbeita
sér að því að sinna kóreskum
ferðamönnum. Hann hafi tilkynnt
norskum gestum að allt væri full
bókað og að ekki væri pláss fyr
ir þá. Kóresku gestirnir hafi ekki
skilað miklu í kassann fyrir aðra
rekstraraðila á svæðinu. Þá kem
ur fram að Grímur hafi ekki feng
ið vínveitingaleyfi frá sveitarfé
laginu og að umsóknum um það
hafi ítrekað verið hafnað.
Of margir starfsmenn
Í viðtali við Glåmdalen viður
kenndi Grímur að hann skuldaði
húsaleiguna en fullyrti að hún yrði
gerð upp, en þó aðeins að hluta.
Þá viðurkenndi hann rekstrar
erfiðleika og að hann hafi tilkynnt
starfsmönnum að uppsagnir séu
framundan. „Starfsmennirnir
eru of margir til þess að viðskipt
in geti orðið arðbær,“ var haft eft
ir Grími. Hann kvaðst þó bjart
sýnn á að reksturinn myndi halda
áfram í óbreyttri mynd.
Nokkrum dögum síðar birtist
önnur frétt í Glåmdalen AS um
að eigandi húsnæðisins hafi lok
að veitingastað Gríms skyndilega
þann 15. ágúst. Þá hefði blaðið
heimildir fyrir því að kröfuhafar
biðu í röðum eftir greiðslum frá
Grími og að einn hafi farið fram
á gjaldþrot hans ytra. Beiðnin var
lögð fram þann 20. júlí síðastliðinn
og átti að taka hana fyrir í Héraðs
dómi Glåmdal þann 24. ágúst síð
astliðinn. DV hefur ekki fengið
staðfest hvort af því hafi orðið.
Líkti blaðinu við klósettpappír
Í skriflegri kveðju á Facebooksíðu
veitingastaðarins segist Grímur
harma niðurstöðu málsins en að
hann væri feginn að vera „laus við
þetta rugl.“ Sagði hann að ósann
gjörn umfjöllun norska blaðsins
hafi gert það að verkum að
veitingastaðnum hafi verið lokað.
Líkti hann norska blaðinu við kló
settpappír og lýsti því yfir að hann
myndi lögsækja það fyrir frétta
flutning sinn. Í athugasemdum við
færsluna fær Grímur það óþveg
ið frá viðskiptavinum staðarins
sem bera veitingastaðnum ekki
vel söguna. Þá tjáir starfsfólk sig í
þræðinum um vangoldin laun.
Sagan er lyginni líkust
Saga Gríms Vilhelmssonar
er lyginni líkust. Hann komst
fyrst í fréttirnar á haustmánuð
um 1994 þegar DV birti frétt
ir um meintan kynferðisbrota
mann sem framvísaði fölsuðum
prófgráðum þegar hann sótti um
störf hjá menntastofnunum um
allt land. Var maðurinn grunað
ur um brot gegn eigin börnum
og var hann úrskurðaður í gæslu
varðhald í Noregi vegna máls
ins. Grímur svaraði fyrir sig í við
tali skömmu síðar þar sem hann
sagði að fréttaflutningurinn væri
skipulagðar persónulegar of
sóknir gegn sér. Hann hlaut ekki
dóm vegna málsins.
Tæpu ári síðar birti Helgar
pósturinn umfjöllun um Grím
þar sem hann var sagður vera
dæmi um mann sem „lýgur, ein
göngu lyginnar vegna“ og vísaði
í þá staðreynd að Grímur hafði
sprottið fram á sjónarsviðið sem
sérfræðingur í fíkniefnamálum
og slegið um sig með ýmsum
prófgráðum. Í mars 1999 birtir
DV frétt um að Grímur hafi „enn
einu sinni“ verið dreginn fyrir
dómstóla í Noregi. Hafði hann þá
fengið vinnu sem sálfræðingur á
sjúkrahúsi í Kirkenesi í Norður
Noregi án þess að hafa til þess
tilskilin leyfi. Hlaut hann stuttan
dóm fyrir.
Grímur missti bæði handlegg
og fætur eftir alvarlegt slys. Hann
hefur verið nokkuð duglegur að
ræða slysið í sænskum og íslensk
um miðlum en dagsetningarnar
eru mjög á reiki. Í frétt DV frá
1999 kemur fram að Grímur
hafi orðið 100 prósent öryrki
eftir slys í skipasmíðastöð. Það
stangast á við dramatíska frá
sögn Gríms í sænska dagblaðinu
Tidningen Ångermanland þar
sem hann sagði að slysið hefði
átt sér stað árið 2003 um borð í
bát í hans eigu sem var við veiðar
í Norður sjó. Átti hann að hafa
flækst í stálvír með fyrrgreindum
afleiðingum. Þessar tvær sögur
eru síðan í hróplegu ósamræmi
við Mannlífsviðtal árið 2003 þar
sem Grímur segir slysið hafa átt
sér stað í olíubirgðaskipi árið
1998.
Í lok árs 2013 opnaði Grímur
veitingastað í bænum Sollefteå í
Svíþjóð. Hann virðist hafa komið
við kauninn á röngum aðilum því
9. nóvember var kveikt í íbúðar
húsi hans á svæðinu og brann
það til kaldra kola. Blessunar
lega urðu engin slys á fólki. Að
faranótt annars í jólum sama ár
varð Grímur fyrir grófri líkams
árás á veitingastaðnum. Hann
var laminn með hafnaboltakylfu
en árásarmennirnir komust und
an. Málið vakti talsverða athygli
og var fjallað um það þáttunum
„Efterlyst“ á sjónvarpsstöðinni
TV3 þar ytra. Grímur flúði til Ís
lands í kjölfarið.
Við tók veitingarekstur á Ís
landi en hvorki birgjar né starfs
menn staðanna sem Grímur
rak fengu greitt sem skyldi.
Stöðunum, sem voru við Garð
skagavita og síðar í Reykjanesbæ,
var lokað og var fyrir tæki Gríms
og hann persónulega úrskurðuð
gjaldþrota. Í kjölfarið flutti hann
til Noregs ásamt fjölskyldu sinni
þar sem hann hefur nú rekið
fimm veitingastaði í þrot. n
Björn Þorfinnsson
bjornth@dv.is
Grímur rak fimm
veitingastaði í þrot
í Noregi á einu ári
„Líkti hann
norska
blaðinu við
klósettpappír
og lýsti því yfir
að hann myndi
lögsækja það fyrir
fréttaflutning
sinn.
n Kennir norsku dagblaði um ófarirnar og hótar lögsókn