Dagblaðið Vísir - DV - 01.09.2017, Síða 6

Dagblaðið Vísir - DV - 01.09.2017, Síða 6
6 Helgarblað 1. september 2017fréttir Grímur Vilhelmsson Myndin var tekin við opnun veitingastaðar Gríms í Skarsnes og birtist í Glåmdalen AS. Slobrua Gjestegård Hér rak Grímur veitingastað sinn Tvo vita í tæpt ár. Í slenskum athafnamanni hefur á rúmu ári tekist að reka fimm veitingastaði í þrot í Noregi. Þetta kemur fram í umfjöllun héraðsblaðsins Glåmdalen AS. Umræddur maður, Grímur Vil­ helmsson, flúði frá Íslandi eftir að hafa skilið eftir sig sviðna jörð í tengslum við veitingarekstur á Suðurnesjum. Sagan hefur nú endurtekið sig í Noregi. Grímur kennir norskum fjölmiðli um ófarir sínar. Sviðin jörð á Reykjanesi Í byrjun október í fyrra fjallaði DV um opnun Gríms á veitinga­ stað í Skarsnes Noregi. Fékk stað­ urinn nafnið Tveir vitar sem var sama nafn og veitingastaður sem Grímur rak við Garðskagavita bar. Gríðarleg óregla var á rekstrinum hér á landi og sveik Grímur marga starfsmenn um laun og stóð ekki skil á opinberum gjöldum. Van­ efndirnar urðu til þess að verka­ lýðsfélag í Reykjanesbæ fór fram á persónulegt gjaldþrot Gríms. Það gekk í gegn og í kjölfarið flúði Grímur til Noregs þar sem hann hélt veitingarekstrinum áfram. DV hafði aðeins upplýsingar um þennan eina veitingastað en í umfjöllun norsks héraðsblaðs kemur fram að Grímur hafi ver­ ið með puttana í rekstri fjögurra annarra veitingastaða í bænum Halden, skammt frá Fredrikstad. Þeim hefur öllum verið lokað. Veðjaði á kóreska ferðamenn Héraðsblaðið Glåmdalen AS, sem er á Skarsnesi, stutt frá Kongsvinger, hefur skrifað nokkrar fréttir um málið. Í þeirri fyrstu kemur fram að forsvars­ menn fyrirtækisins Slomarka Eiendom AS, sem á fasteign­ ina sem Grímur hafði leigt und­ ir veitingastaðinn í Skarsnesi, hafi fengið nóg af af vangoldinni húsaleigu og því sé áfram­ haldandi rekstur Gríms í upp­ námi. Fram kemur að vanefnd­ irnar hafi hljóðað upp á rúmlega 168 þúsund norskar krónur eða rúmlega tvær milljónir íslenskra króna. Grímur hafði gert tíu ára samning um húsnæðið og því voru um níu ár eftir af leigutím­ anum. Veitingastaður Gríms er hluti af stórri ferðaþjónustueiningu sem heitir Slobrua Gestegård. Þar er rekið gistiheimili og vin­ sæll baðstaður. Í frétti Glåmdalen AS kemur fram að rekstraraðilar á svæðinu hafi verið afar ósáttir við þá stefnu Gríms að einbeita sér að því að sinna kóreskum ferðamönnum. Hann hafi tilkynnt norskum gestum að allt væri full­ bókað og að ekki væri pláss fyr­ ir þá. Kóresku gestirnir hafi ekki skilað miklu í kassann fyrir aðra rekstraraðila á svæðinu. Þá kem­ ur fram að Grímur hafi ekki feng­ ið vínveitingaleyfi frá sveitarfé­ laginu og að umsóknum um það hafi ítrekað verið hafnað. Of margir starfsmenn Í viðtali við Glåmdalen viður­ kenndi Grímur að hann skuldaði húsaleiguna en fullyrti að hún yrði gerð upp, en þó aðeins að hluta. Þá viðurkenndi hann rekstrar­ erfiðleika og að hann hafi tilkynnt starfsmönnum að uppsagnir séu framundan. „Starfsmennirnir eru of margir til þess að viðskipt­ in geti orðið arðbær,“ var haft eft­ ir Grími. Hann kvaðst þó bjart­ sýnn á að reksturinn myndi halda áfram í óbreyttri mynd. Nokkrum dögum síðar birtist önnur frétt í Glåmdalen AS um að eigandi húsnæðisins hafi lok­ að veitingastað Gríms skyndilega þann 15. ágúst. Þá hefði blaðið heimildir fyrir því að kröfuhafar biðu í röðum eftir greiðslum frá Grími og að einn hafi farið fram á gjaldþrot hans ytra. Beiðnin var lögð fram þann 20. júlí síðastliðinn og átti að taka hana fyrir í Héraðs­ dómi Glåmdal þann 24. ágúst síð­ astliðinn. DV hefur ekki fengið staðfest hvort af því hafi orðið. Líkti blaðinu við klósettpappír Í skriflegri kveðju á Facebook­síðu veitingastaðarins segist Grímur harma niðurstöðu málsins en að hann væri feginn að vera „laus við þetta rugl.“ Sagði hann að ósann­ gjörn umfjöllun norska blaðsins hafi gert það að verkum að veitingastaðnum hafi verið lokað. Líkti hann norska blaðinu við kló­ settpappír og lýsti því yfir að hann myndi lögsækja það fyrir frétta­ flutning sinn. Í athugasemdum við færsluna fær Grímur það óþveg­ ið frá viðskiptavinum staðarins sem bera veitingastaðnum ekki vel söguna. Þá tjáir starfsfólk sig í þræðinum um vangoldin laun. Sagan er lyginni líkust Saga Gríms Vilhelmssonar er lyginni líkust. Hann komst fyrst í fréttirnar á haustmánuð­ um 1994 þegar DV birti frétt­ ir um meintan kynferðisbrota­ mann sem framvísaði fölsuðum prófgráðum þegar hann sótti um störf hjá menntastofnunum um allt land. Var maðurinn grunað­ ur um brot gegn eigin börnum og var hann úrskurðaður í gæslu­ varðhald í Noregi vegna máls­ ins. Grímur svaraði fyrir sig í við­ tali skömmu síðar þar sem hann sagði að fréttaflutningurinn væri skipulagðar persónulegar of­ sóknir gegn sér. Hann hlaut ekki dóm vegna málsins. Tæpu ári síðar birti Helgar­ pósturinn umfjöllun um Grím þar sem hann var sagður vera dæmi um mann sem „lýgur, ein­ göngu lyginnar vegna“ og vísaði í þá staðreynd að Grímur hafði sprottið fram á sjónarsviðið sem sérfræðingur í fíkniefnamálum og slegið um sig með ýmsum prófgráðum. Í mars 1999 birtir DV frétt um að Grímur hafi „enn einu sinni“ verið dreginn fyrir dómstóla í Noregi. Hafði hann þá fengið vinnu sem sálfræðingur á sjúkrahúsi í Kirkenesi í Norður­ Noregi án þess að hafa til þess tilskilin leyfi. Hlaut hann stuttan dóm fyrir. Grímur missti bæði handlegg og fætur eftir alvarlegt slys. Hann hefur verið nokkuð duglegur að ræða slysið í sænskum og íslensk­ um miðlum en dagsetningarnar eru mjög á reiki. Í frétt DV frá 1999 kemur fram að Grímur hafi orðið 100 prósent öryrki eftir slys í skipasmíðastöð. Það stangast á við dramatíska frá­ sögn Gríms í sænska dagblaðinu Tidningen Ångermanland þar sem hann sagði að slysið hefði átt sér stað árið 2003 um borð í bát í hans eigu sem var við veiðar í Norður sjó. Átti hann að hafa flækst í stálvír með fyrrgreindum afleiðingum. Þessar tvær sögur eru síðan í hróplegu ósamræmi við Mannlífsviðtal árið 2003 þar sem Grímur segir slysið hafa átt sér stað í olíubirgðaskipi árið 1998. Í lok árs 2013 opnaði Grímur veitingastað í bænum Sollefteå í Svíþjóð. Hann virðist hafa komið við kauninn á röngum aðilum því 9. nóvember var kveikt í íbúðar­ húsi hans á svæðinu og brann það til kaldra kola. Blessunar­ lega urðu engin slys á fólki. Að­ faranótt annars í jólum sama ár varð Grímur fyrir grófri líkams­ árás á veitingastaðnum. Hann var laminn með hafnaboltakylfu en árásarmennirnir komust und­ an. Málið vakti talsverða athygli og var fjallað um það þáttunum „Efterlyst“ á sjónvarpsstöðinni TV3 þar ytra. Grímur flúði til Ís­ lands í kjölfarið. Við tók veitingarekstur á Ís­ landi en hvorki birgjar né starfs­ menn staðanna sem Grímur rak fengu greitt sem skyldi. Stöðunum, sem voru við Garð­ skagavita og síðar í Reykjanesbæ, var lokað og var fyrir tæki Gríms og hann persónulega úrskurðuð gjaldþrota. Í kjölfarið flutti hann til Noregs ásamt fjölskyldu sinni þar sem hann hefur nú rekið fimm veitingastaði í þrot. n Björn Þorfinnsson bjornth@dv.is Grímur rak fimm veitingastaði í þrot í Noregi á einu ári „Líkti hann norska blaðinu við klósettpappír og lýsti því yfir að hann myndi lögsækja það fyrir fréttaflutning sinn. n Kennir norsku dagblaði um ófarirnar og hótar lögsókn

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.