Dagblaðið Vísir - DV - 01.09.2017, Blaðsíða 10
10 Helgarblað 1. september 2017fréttir
„Þetta er tilraun
til manndráps“
A
llt var með kyrrum kjör
um í miðborg Reykja
víkur morguninn 29.
september árið 2016.
En rónni var raskað þegar
byggingarkrani, sem staðsettur
var í Hafnarstræti, hrundi rétt
fyrir hádegi. Timburhlaðinn
kraninn féll á nýbyggingu og
yfir á planið hjá pylsusölunni
Bæjarins bestu. Þeir sem sáu
slysið sögðu hann hafa fall
ið saman og ótrúlegt lán að
fáir hafi verið á ferð á svæð
inu. Vanalega eru tugir í röð hjá
Bæjarins bestu á þessum tíma
en af einhverjum ástæðum var
enginn í röðinni þegar kraninn
féll. Síðan þá hefur lítið frést af
málinu en því er þó ekki lokið.
Yfirlýsing strax eftir fallið
Skömmu eftir að kraninn féll
kom Eyjólfur Sæmundsson, for
stjóri Vinnueftirlitsins, fram í
fjölmiðlum og lýsti því yfir að
grunur léki á að átt hafi verið við
öryggisbúnað kranans til þess
að hægt væri að stafla meiri
byrðum á hann. Hann sagði það
vel þekkt í geiranum að menn
beittu vissum aðferðum til þess.
Ásgeir Arnór Stefánsson,
eigandi byggingarverktakans
Arkar, var með umræddan krana
á leigu. Hann segir: „Mér fannst
flott hjá þeim að gefa út yfirlýs
ingu, hálftíma eftir slys, um að
þetta hefði verið einhverjum
öðrum að kenna en þeim. For
stjórinn mætti ekki einu sinni
á svæðið. Ég var ekki einu sinni
búinn að átta mig á því sjálfur
af hverju hann féll þótt það hafi
verið starfsmaður minn sem
stýrði honum.“
Ásgeir og félagar hjá Örk voru
að vinna fyrir félagið Suðurhús
á svæðinu. Kranann höfðu þeir
á leigu frá verktakafyrirtæk
inu Þarfaþingi og fyrirtækið DS
Lausnir sá um að reisa hann.
Áhyggjur af undirstöðum
Þegar byggingarkranar eru sett
ir upp sér Mannvirkjastofnun
um að framkvæma svokallað
þjöppupróf á undirstöðunum,
það er púðanum sem kraninn
situr á. Ásgeir segir að þetta próf
hafi komið mjög illa út og púð
inn hafi verið of mjúkur, aðeins
um fjórðungur þess þrýstings
sem á að vera. Ástæðuna seg
ir hann hafa verið stórar götu
lagnir sem titri og geri þjöppun
púðans erfiða.
Hann hafði áhyggjur af kran
anum, sem var þar að auki 25
ára gamall og töluvert ryðgaður.
„Vinnueftirlitið kom í fjögur
skipti á svæðið, allan tímann
sem við vorum þarna. Við gerð
um það að gamni okkar, því
að við vissum að það var ekki
búið að tryggja öryggi okkar, að
spyrja um úttektirnar á þessum
krana. Svarið var nei, það var
ekki eftirlit með krananum.“
Oddur R. Ólafsson, hjá vinnu
véladeild Vinnueftirlitsins, kom
á svæðið í þessi fjögur skipti.
Hann segir krana skoðaða þegar
þeir eru settir upp eða færðir til.
„Ef hann er á sama stað er hann
skoðaður einu sinni á ári.“
Tengdir aðilar gefa álit
Í kjölfar slyssins fól rann
sóknarlögreglan Vinnueftir
litinu og Mannvirkjastofnun
að skoða tildrög þess og gera
skýrslu þeim til handa. Um
skoðunina sáu Oddur og Róbert
Árni Róbertsson en skoðun á
brakinu eftir að það var komið
á geymslusvæði var falið starfs
fólki DS Lausna, sem reistu
kranann. Skýrslan, sem ekki
hefur verið gerð opinber, var
fengin lögreglunni í fyrrahaust
að skoðun lokinni. Ásgeir seg
ist hafa beðið um óháða úttekt
á slysinu og honum var tjáð af
lögreglunni að þetta væru óháð
ir aðilar, þó svo að þeir hefðu
komið að því að reisa kranann
og hafa eftirlit með honum.
Í svari við fyrirspurn DV stað
festir Eyjólfur Sæmundsson að
Vinnueftirlitið telji að átt hafi
verið við öryggisbúnað kranans,
svokallaða fleygun. Þá er notað
ur tréfleygur til að fleyga í sund
ur járnfjaðrir kranans. Ásgeir
sagðist ekki hafa þekkt þessa
aðferð og að í yfirheyrslunni
hafi menn frá Vinnueftirlitinu
sýnt þeim hvað þeir áttu að
hafa gert. Þá bað lögfræðingur
hans um að fá að sjá ljósmynd
ir af öryggisbúnaðinum eftir
að kraninn féll, ljósmyndir af
þjöppumælingunni og gegn
umlýsingar vegna ryðs. Ekkert
af þessu fengu þeir að sjá.
Jóhann Karl Þórisson hjá
rannsóknarlögreglunni sagðist
ekki vilja tjá sig um þetta mál en
sagði því ekki lokið. Hann vildi
heldur ekki svara því hvort það
væri óeðlilegt að aðilar tengdir
málinu kæmu að álitsgerð. Odd
ur, hjá Vinnueftirlitinu, segist
hins vegar fullviss um að málið
verði kært. Hann segir: „Það er
alveg á kristaltæru. Þetta er til
raun til manndráps.“
Þrátt fyrir að málið hafi ekki
komið fyrir dómstóla var Örk
byggingafélagi gert að greiða
um ellefu milljónir króna vegna
eyðileggingar kranans, kvists
sem kýldist niður í húsið og
upphífingar á brakinu. Ásgeir
segir: „Ellefu milljónir er mikið
fyrir lítið fyrirtæki. Ég hef hugs
að um að kæra, en ég hef ekki
gert það því að dómsmál geta
farið á hvorn veginn sem er. Ég
var alltaf mjög ósáttur við þetta.“
Hjálpað í gegnum prófið
Ásgeir segir ástæðu slyssins
fyrst og fremst hafa verið vegna
vandamála í búnaðinum. „Það
breytir því ekki að ef krana
maðurinn okkar hefði brugð
ist einhvern veginn öðruvísi við
þegar kraninn fór á fleygiferð
þá hefði hann hugsanlega geta
bjargað því.“ Kranamaðurinn
umræddi er pólskur og var svipt
ur réttindum sínum eftir slysið.
Hann vinnur nú að öðrum verk
efnum hjá Örk.
„Ég sendi mína pólsku stráka
á krananámskeið hjá Vinnu
eftirlitinu. Hans mannlegu mis
tök hefðu sennilega ekki orðið
svona stór ef honum hefði verið
kennt almennilega á kranann.“
Oddur kennir krananámskeiðin
og hefur umsjón með skriflegu
prófi en verkleg kennsla er engin,
heldur eru menn í skamma
stund undir handleiðslu vinnu
vélstjóra hjá einkaaðilum.
Ásgeir segir: „Í prófinu fór
kennarinn út og pólskur túlkur
hjálpaði öllum í gegn.“ Annar við
mælandi DV, ótengdur Örk, segir
nákvæmlega sömu sögu. „Túlk
urinn gefur þeim svörin á krana
prófinu.“ Oddur hafnar því að
framkvæmd prófana séu á þessa
vegu og segist sitja allan tím
ann. „Þetta eru stíf námskeið og
stífar spurningar. Spurningarn
ar eru á pólsku. Það verður að
vera pólskur aðili þarna inni til
að spyrja og hann spyr þá mig en
menn verða að svara sjálfir sín
um spurningum.“ Hann viður
kennir þó að það sé mjög óæski
legt að engin verkleg kennsla fari
fram á námskeiðinu. „Það er ít
rekað búið að ganga á yfirmenn
Vinnueftirlitsins og óska eftir því
að keyptir séu ákveðnir hlutir til
þess að gera þetta. Það hefur ekki
gengið eftir.“
Að mati Ásgeirs geta starfs
menn Vinnueftirlitsins verið
smásmugulegir um ýmsa hluti en
sinnulausir um atriði sem virki
lega skipta máli. „Þeir koma sjald
an inn á vinnusvæði en þegar þeir
koma þá finnst mér þeir meira
vera að tryggja sig heldur en
okkur.“ n
n Höfðu áhyggjur af undirstöðunum n Túlkur sagður gefa svör í prófi„Mér fannst flott
hjá þeim að gefa
út yfirlýsingu, hálftíma
eftir slys, að þetta hefði
verið einhverjum öðrum
að kenna en þeim.
„Hans mannlegu
mistök hefðu
sennilega ekki orðið
svona stór ef honum
hefði verið kennt al-
mennilega á kranann.
Bæjarins bestu
Lán að engin biðröð
var. MYnd SigTrYggur Ari
Kristinn Haukur guðnason
kristinn@dv.is