Dagblaðið Vísir - DV - 01.09.2017, Blaðsíða 18
18 sport Helgarblað 1. september 2017
„Við erum Víkingar“
L
okakeppni Evrópumótsins
í körfuknattleik, hófst í gær
og léku strákarnir okkar sinn
fyrsta leik gegn sterku liði
Grikkja í Helsinki. Þegar DV fór í
prentun var leiknum ekki lokið og
ekki hægt að greina frá úrslitum
hér en vafalítið hafa íslensku vík-
ingarnir staðið sig með miklum
sóma. En þótt allra augu hafi
undanfarið beinst að leikmönnun-
um þá myndi fátt gerast ef ekki
væri fyrir þann öfluga hóp sem
stendur að baki liðinu og gerir því
kleift að einbeita sér að verkefn-
inu, að gjörsigra andstæðinga sína
á vellinum.
DV hafði samband við hluta
hópsins sem stýrir málum úti í
Finnlandi og spurði hann spjörun-
um úr um hvað helst þyrfti að fást
við á meðan þessi körfuboltaveisla
stendur yfir. n
n Fólkið á bak við landsliðið í körfuknattleik n Arnar aðstoðarþjálfari tuðar mest
Freyr Rögnvaldsson
freyr@dv.is
Fórst þú út með liðinu á Eurobasket
2015 í Þýskalandi? „Já, ég fór út til
Berlínar 2015 og var þar sem áhorfandi
og stjórnarmaður KKÍ en hafði ekki neitt
hlutverk í kringum liðið.“
Hvernig kom það til að þú tókst að
þér fararstjórnina? „Sumarið 2016 var
ég beðinn um að fara með liðinu í æfinga-
ferð til Austurríkis þar sem fararstjórinn
forfallaðist. Ég hafði fyrr um sumarið farið
með U15 ára liðunum til Kaupmannahafnar
og haft gaman af. Ég sagði já við ferðinni
og það gekk vel. Þá kom upp sú hugmynd
að ég færi með á EuroBasket 2017 og það
er erfitt að segja nei við því að fá að fara
sem hluti af hópnum á stórmót.“
Stundaðir þú körfubolta og hvernig
var þá ferillinn? „Minn körfuboltagrunn
má rekja til skólaáranna í Varmahlíð, þar
sem körfuboltinn var aðalíþróttagreinin,
jafnvel þótt spilað væri í félagsheimilinu í
Miðgarði og völlurinn eins og jólatré í laginu.
Seinna varð ég dómari og hef lengi verið
viðloðandi það hlutverk. Ég hef setið í stjórn
KKÍ í sex ár og nýjasti titillinn sem ég hef
bætt á mig er að ég er orðinn alþjóðlegur
eftirlitsmaður á vegum FIBA, Evrópska
körfuknattleikssambandsins.“
Horfir þú öðruvísi á leikina en
venjulegur áhorfandi, það er í ljósi
hlutverks þíns með liðinu? „Sem
fararstjóri hef ég fundið nýjan vinkil til að
horfa á leikinn, ég er sífellt að fylgjast með
hvort einhvern vanti eitthvað, vatn, hand-
klæði eða eitthvað annað. Það má segja að
maður sé í þjónustuhlutverki og tilbúinn að
bregðast við þeim aðstæðum sem koma
upp hverju sinni.“
Hvernig undirbjóstu þig fyrir þitt
hlutverk með liðinu? „Til að undirbúa
sig í fararstjórahlutverkið þarf að huga að
ýmsu, spyrja reynslumeira fólk og læra af
því. Ég les allar handbækur og upplýsingar
sem koma frá mótshöldurum. Svo þarf ég
auðvitað að kynna mér áfanga-
staðina og helstu atriði sem snúa
að þeim. Eitt sem getur líka verið
mikilvægt í þessu hlutverki er að
kunna að brjóta saman þvott. Svo
þarf ég auðvitað að vera tilbúinn
að svara öllum þeim spurningum
sem koma upp og þær geta verið
af öllum toga. Þetta snýst um að
búa sig undir það óvænta og vera
skipulagður.“
Er einhver leikmaður sem
alltaf er seinn? „Það er vissu-
lega á ábyrgð fararstjóra að skila
öllum heilum á höldnu á leiðar-
enda. Í sumar hefur verið mikið um
ferðalög og rútuferðir og ýmislegt
komið upp. Menn næstum misst
af flugvélum, gleymt mikilvægum
hlutum til að nota í leik heima á
hóteli þegar komið er í leik og ýmis-
legt fleira. Það þarf ekkert að draga
fram nöfnin en þetta eru allt sögur
sem hópurinn hlær að eftir á, allt hefur
blessast og allir eru komnir til Helsinki.“
Hver tuðar mest í hópnum? „Líklega
er mesti tuðarinn í hópnum Borgfirðingur-
inn Arnar Guðjónsson [aðstoðarþjálfari],
stundum kallaður Skakki, suma daga hefur
hann allt á hornum sér. Hann má þó eiga
það að með fleiri árum og fleiri börnum þá
hefur hann mildast, þótt gamli Arnar komi
fram annað slagið.“
Þarf að kunna að brjóta saman þvott
Rúnar Birgir Gíslason fararstjóri
Tilbúinn til að koma inn á ef kallið kemur
Gunnar Einarsson styrktarþjálfari
Varstu í Þýskalandi á Eurobasket
2015? „Já, ég var þar og hef unnið sem
styrktarþjálfari landsliðsins síðan 2015.“
Áttu körfuboltaferil að baki?
„Já, ég er fyrrverandi landsliðsmaður í
körfuknattleik. Margfaldur bikar- og Ís-
landsmeistari í körfuknattleik með Keflavík,
þess má geta að ég spilaði síðast í úrslita-
keppninni 2017 með Keflavík gegn KR.“
Hvernig lentir þú í þessu hlut-
verki? „KKÍ leitaði eftir mínum
starfskröftum og líklega hefur það
hjálpað til að vera fyrrverandi leikmað-
ur og þekkja leikinn, aðstæðurnar og
geta metið æfingaálag frá reynslu sem
fyrrverandi leikmaður. Eftir að ég hætti að
spila þá lagði ég stund á ÍAK, einkaþjálf-
aranámið hjá Keili, og hef sótt fjölda
endurmenntunarnámskeiða til þess að
halda mér eins framarlega, uppfærðum
og hægt er. Ég setti mér það markmið
að ég ætlaði mér alltaf að vinna með
atvinnumannaliði sem styrkarþjálfari og
ætli þetta sé ekki næst því markmiði sem
er völ á Íslandi.“
Horfir þú öðruvísi á leikinn en
aðrir, þá t.d. með tilliti til meiðsla
leikmanna? „Ég er nú ennþá bara að
reyna að venjast því þegar þjálfarinn
horfir eftir bekknum og er að fara skipta
inn á, að ég er ekki með í myndinni – en ég
er engu að síður klár ef kallið kemur!“
Hvernig undirbýrð þú þig fyrir
mótið? „Ég æfi vel og passa upp á að
vera í góðu formi og reyni einnig að fá
staffið til þess að vera duglegt að æfa í
ferðunum svo að menn séu vel upplagðir.“
Ertu að missa af einhverju veru-
lega mikilvægu af því þú ert þarna
úti? „Ég hef misst af afmæli sonar míns
undanfarin tvö ár en náði að halda upp á
það með honum fyrir þessa ferð því það
hitti þannig á.“
Hver er alltaf óstundvís?
„Hörður Axel, hann tekur sinn tíma til að
koma sér út úr húsi þegar við Suðurnesja-
mennirnir erum að keyra saman á æfingar.“
Hver er óánægðastur með matinn?
„Arnar Guðjóns er sá sem tuðar manna
mest yfir matnum en hann er jafnframt sá
sem borðar mest af eftirréttunum og hef-
ur meðal annars komið upp einkunnakerfi
og skikkar hann menn til þess að gefa
eftirréttinum einkunn frá 1–5. Bannað
er að gefa einkunn nema hún sé í heilum
tölum. Ekkert 2,5 rugl.“
Hefði tekið landsliðið
fram yfir allt annað
Kristinn Geir Pálsson, umsjónarmaður landsliðsmála KKÍ
Varstu í Þýskalandi á Eurobasket
2015? „Heldur betur, ég var í teymi KKÍ
þá líka og sá um samskipti við fjölmiðla
og fréttir í hlutverki fjölmiðlafulltrúa
Íslands á mótinu.“
Hvernig lentir þú í þessu hlut-
verki? „Ég hef unnið hjá KKÍ í rúm níu ár
og sinni ýmsum verkum. Árið 2015 hent-
aði best að ég myndi sinna fréttahlutan-
um en í ár í Finnlandi er ég liðsstjóri, sem
er hlutverk sem ég hef einnig sinnt í liðinu
á liðnum árum.“
Áttu körfuboltaferil að baki? „Ég
byrjaði að æfa 11 ára og er ennþá að. Eftir
að hafa leikið með Breiðabliki fyrst og
svo ÍR sem unglingur, þá lék ég í 2. deild
og 1. deild með Ármanni í nokkur ár. Síðan
hef ég spilað með B-liði Hauka í Hafnarf-
irði undanfarin ár, enda alltaf jafn gaman
að æfa og keppa í körfubolta.“
Horfir þú öðruvísi á leikinn en
aðrir vegna hlutverks þíns með
liðinu? „Ég fylgist með ýmsum hlutum
eins og framlagi í vörn og baráttu, og
hvað menn gera fyrir samherja sína, hluti
sem sjást oft ekki á tölfræði en skipta
miklu máli. Síðan finnst mér líka gaman
að horfa á dómarana og sjá hvernig þeir
dæma og hvað ég hefði gert í þeirra
aðstæðum.“
Hvernig undirbýrð þú þig fyrir
mótið? „Sem liðsstjóri sé ég til þess að
allur búnaður sé til staðar, eins og bún-
ingar, fatnaður, fæðubótarefni og annað
slíkt sem þarf að hafa, sem og ýmis gögn
og slíkt sem þarf að hafa meðferðis.“
Ertu að missa af einhverju
verulega mikilvægu af því að þú
ert þarna úti? „Ég er ekki að missa af
neinu mikilvægu í ár en það hefði líklega
verið alveg sama hvað það væri, ég hefði
sleppt því og kosið að vera hér með liðinu
hvort eð er.“
Hver er alltaf óstundvís? „Hinn
magnaði Kristófer Acox er alltaf síðastur.
Mikil list sem felst í því að ná því.“
Hver tuðar mest og yfir hverju?
„Það er stundum stutt í sveitamanninn
í honum Arnari aðstoðarþjálfara, sem
var örugglega rússneskur í fyrra lífi, en
það gengur fljótt yfir og leysist yfirleitt ef
eitthvað er vandamálið.“
Hver borðar alltaf allt? „Allir strák-
arnir eru duglegir að borða og borða vel,
en það er einn leikmaður sem borðar yf-
irleitt tvisvar til þrisvar sinnum meira en
aðrir og það er hann Tryggvi Snær, hann
þarf víst mikla orku til halda þessum 216
sentimetrum við.“