Morgunblaðið - 20.04.2017, Blaðsíða 11

Morgunblaðið - 20.04.2017, Blaðsíða 11
FRÉTTIR 11Innlent MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 20. APRÍL 2017 Eikjuvogur 29 Opnunartími: 104 Reykjavík - S:781-5100 Mán-fim: 12-18 - fös: 12-16 TOSCA BLU - ítalskir skór og töskur kr. 24.900.-kr. 23.900.- kr. 44.900.- kr. 39.800.- kr. 32.900.- kr. 24.900.- kr. 24.900.- kr. 23.900.- kr. 23.900.- Við erum á Facebook Laugavegi 82 | 101 Reykjavík Sími 551 4473 Sundfatnaður og sólkjólar í úrvali DIMMALIMMDimmalimmReykjavik.is Kjólar Peysur Buxur Sumarjakkar Skírnagjafir Skírnaföt Afmælisgjafir Páskagjafir Sumargjafir Laugavegi 53 | Sími 552 3737 | Opið mán.-fös. 10-18, lau. 10-17 Gleðilegt sumar Friðfinnur Her- mannsson viðskipta- fræðingur lést á líkn- ardeild Landspítalans síðastliðinn mánudag, 53 ára að aldri. Friðfinnur fæddist í Reykjavík 4. júní 1963, sonur Guðríðar S. Frið- finnsdóttur og Her- manns Árnasonar. Hann varð stúdent frá Menntaskólanum á Ak- ureyri 1983 og lauk prófi í viðskiptafræði við Háskóla Íslands ár- ið 1989. Þá stundaði hann frönskunám í Lyon í Frakk- landi veturinn 1989-90. Friðfinnur gengdi ýmsum störf- um í atvinnulífinu, m.a. á Akureyri, en lengst starfaði hann sem fram- kvæmdastjóri Heilbrigðisstofnunar Þingeyinga á Húsavík. Síðustu árin var hann stjórnunarráðgjafi hjá ráð- gjafarfyrirtækinu Nolta en hann var einn stofnenda og eigenda þess fyrirtækis. Hann vann með stjórnendum í nánast öllum atvinnu- greinum við stefnu- mótun, liðsheild og umbótastarf. Friðfinnur starfaði að félagsmálum. Sat m.a. í menningar- málanefnd Húsavíkur og stjórn Knatt- spyrnufélags Akureyr- ar. Hann lék með meistaraflokki KA í knattspyrnu um nokkurra ára skeið, þar af 55 leiki í úrvalsdeildinni. Eiginkona Friðfinns, Berglind Svavarsdóttir, lifir mann sinn ásamt þremur börnum þeirra. Útför Friðfinns verður gerð frá Lindakirkju í Kópavogi föstudaginn 28. apríl nk. klukkan 13. Andlát Friðfinnur Hermannsson Ómar Friðriksson omfr@mbl.is Þrátt fyrir að hámarksgreiðslur í fæðingarorlofi hafi hækkað um miðjan október sl. hefur feðrum sem fara í fæðingarorlof enn ekki fjölgað umtalsvert. Fram kemur á nýju yfirliti Vinnu- málastofnunar að feðrum í fæðing- arorlofi fækkaði í febrúar, en alla jafna fækkar feðrum í fæðingar- orlofi milli janúar og febrúar. Meiri fækkun en búist var við ,,Fækkunin var þó meiri en búist var við og fengu færri feður greitt úr Fæðingarorlofssjóði í febrúar en samsvarandi mánuði síðustu 2 árin á undan,“ segir í umfjölluninni. Fram kemur að feður í fæðing- arorlofi í mars voru 995 sem er fjölgun um 55 milli ára en þó 69 feðrum færra en samsvarandi mán- uð 2015. Hæst hlutfall í júlí 2015 Hámarksgreiðsla fæðingarorlofs var hækkuð úr 370.000 kr. á mánuði í 500.000 kr. í október en þeirri hækkun var m.a. ætlað að stemma stigu við þeirri þróun að hlutfall feðra sem fóru í fæðingarorlof hafði minnkað nokkuð eftir að hámarks- fjárhæð fæðingarorlofs var lækkuð á sínum tíma í kjölfar efnahags- kreppunnar sem hófst 2008. Yfirlit Vinnumálastofnunar leiðir í ljós að í kjölfar hækkunar hámarksgreiðsl- unnar fækkaði feðrum sem fengu greitt úr Fæðingarorlofssjóði í nóv- ember en þeim fjölgaði hins vegar nokkuð í desember og janúar. Í jan- úar fengu t.a.m. 1.265 feður greitt orlof og voru þeir tæplega 200 fleiri en í sama mánuði í fyrra. Sé litið yfir lengra tímabil kemur í ljós að síðastliðin tvö ár hefur hlut- fall feðra verið að meðaltali 29% þeirra sem fengu greitt úr Fæðing- arorlofssjóði og var hlutfallið hæst í júlí 2015 þegar feður voru 39% en lægst 24% í nóvember sl. Hlutfall feðra af heildarfjölda í fæðingar- orlofi var 26% í seinasta mánuði, sem er nánast sama hlutfall og í mars 2016. Talsverðar árstíðasveiflur Á umliðnum árum hafa verið tals- verðar árstíðasveiflur á fjölda þeirra feðra sem fara í fæðing- arorlof. Flestir fara í fæðingarorlof yfir sumarmánuðina og nær sá fjöldi yfirleitt hámarki í júlí. „At- hygli vekur að eftir hækkun há- marksgreiðslu fæðingarorlofs fjölg- ar feðrum í fæðingarorlofi milli ára í mánuðum sem eru alla jafna háir meðal feðra, en hefur minni áhrif þá mánuði sem eru yfirleitt lágir,“ seg- ir í umfjöllun Vinnumálastofnunar um þessa þróun. 800 milljónir til 3.760 foreldra Alls greiddi Fæðingarorlofs- sjóður rúmar 800 milljónir kr. til 3.760 foreldra í fæðingarorlofi í seinasta mánuði, 2.765 konum og 995 körlum. Færri en þúsund feður í orlofi  Umtalsverðar sveiflur eru í fjölda feðra sem fara í fæðingarorlof  Ekki hef- ur átt sér stað mikil fjölgun þrátt fyrir hækkun hámarksgreiðslna frá í október Fjöldi feðra í fæðingarorlofi 1. 26 5 96 8 91 299 5 1. 23 0 (Fjöldatölur sýna mánuði eftir hækkun hámarksgreiðslu.) JAN. FEB. MARS APR. MAÍ JÚNÍ JÚLÍ ÁGÚ. SEPT. OKT. NÓV. DES. Heimild: Yfirlit Vinnumálastofnunar 2.000 1.500 1.000 500 0 2015 2016 2017 Skráð atvinnuleysi var 2,4% í sein- asta mánuði og minnkaði um 0,5 pró- sentustig frá febrúar samkvæmt yfirliti Vinnumálastofnunar. Bent er á að eftir að áhrifa sjómannaverk- falls hætti að gæta í marsmánuði hefur atvinnuleysi minnkað hratt, auk þess sem áhrifa árstíðasveiflu fer að gæta. 24% fleiri í mars en í september En þrátt fyrir minnkandi atvinnu- leysi þá var fjöldi atvinnulausra um 24% meiri í mars en í september á síðasta ári. „Er þetta mun meiri aukning frá september til mars held- ur en verið hefur síðustu ár. Aukn- ingin er einkum meðal fólks með grunnskólamenntun og styttra starfsnám að baki. Þá er þetta frekar bundið við landsbyggðina en höfuð- borgarsvæðið,“ segir í umfjöllun um þróunina á vinnumarkaði. Atvinnuleysi minnkar jafnan milli mars og apríl og gera sérfræðingar Vinnumálastofnunar ráð fyrir að svo verði einnig í ár og að atvinnuleysi verði á bilinu 2,1-2,3% í apríl. Þá er gert ráð fyrir að atvinnuleysið minnki áfram fram á sumar í takt við hefðbundna árstíðasveiflu og fari nið- ur undir 1,7% yfir sumarmánuðina. Margir farnir af at- vinnuleysisskránni  Gæti farið niður undir 1,7% í sumar Veðurfar í vetur hefur verið Lands- virkjun hagstætt og er staðan í miðl- unum mjög góð, að því er fram kem- ur í frétt á heimasíðu fyrirtækisins. Snjóalög eru í meðallagi á Þjórsár- og Tungnaársvæði, sem og á Blöndu- svæði en vel undir meðallagi á vatna- sviði Fljótsdalsstöðvar. Heildar-miðlunarforðinn er nú um 60% en var á sama tíma í fyrra um 45%, að því er fram kemur í fréttinni. Sem dæmi um góða stöðu má nefna að vatnshæð í Hálslóni, sem er miðl- unarlón Fljótsdalsstöðvar, er nú um 12 metrum hærra en áætlað meðaltal. Í Þórisvatni, miðlunarlóni virkjana á Þjórsársvæðinu, er vatnshæðin tæp- lega þremur metrum hærri en áætlað meðaltal. sisi@mbl.is Staða miðlunarlóna er óvenju góð

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.