Víkurfréttir


Víkurfréttir - 22.12.2003, Page 38

Víkurfréttir - 22.12.2003, Page 38
VÍKURFRÉTTIR - JÓLABLAÐ II VÍKURFRÉTTIR Á NETINU I www.vf.is I LESTU NÝJUSTU FRÉTTIR DAGLEGA!38 G le ð il e g a h á tí ð ! Geðveikt blogg* Félagsfælni einkennist fyrst og fremst af miklum og stöðugum ótta við félagslegar kringumstæður af einhverju tagi eða við að verða veginn og metinn af öðru fólki. Ótt- inn stafar af því sem einstaklingurinn held- ur að gæti hugsanlega gerst, að hann hegði sér með þeim hætti að hann verði að at- hlægi eða verði sér til minnkunar. Þunglyndi kemur oft sem afleiðing félags- fælni og það birtist oft og tíðum samhliða öðrum geðrænum vandamálum. Algengt er að kvíði sé til staðar hjá þeim sem eru þunglyndir. Lundin er þung, áhugi lítill eða enginn og getan til að gleðjast minnkar greinilega eða hverfur. Þreyta og framtaks- leysi verður ráðandi. Sjálfsmat lækkar, svartsýni eða vonleysi einkennir gjarna hugsanir. Matarlyst og svefn breytast gjarnan. Sektarkennd verður oft áberandi. Einkenni þunglyndis koma fram í því að fólki finnst það vera úrvinda, einskis virði, hjálparvana og vonlaust. Það er ekki skrítið að þunglyndum sé á stundum skapi næst að gefast upp. Mikilvægt er að átta sig á því að þessi hugsanagangur og líðan er hluti af þunglyndinu. SUNNUDAGUR, 24. ÁGÚST, 2003 Finn hvernig geðveikin er að ná tökum smátt og smátt. Ég legg eflaust aðra merkingu í orðið geðveiki heldur en margur annar, ég er veik á geði en ekki þannig að ég ætti að vera lokuð inn á stofnun.... þó svo að ég hafi stundum óskað þess að það væri hægt... og helst að henda lyklinum. Fyrir rúmu tveimur og hálfu ári var ég greind, hjá geðlækni, með þunglyndi, kvíða og félags- fælni. Þess vegna segi ég að ég sé geðveik, þ.e. veik á geði. Það er alveg skelfilegt að vera með svona ósýnilega sjúkdóma, sjúkdómar hugans. Ég er ekki með gipsi, ekki í hjólastól og hef ekki misst hárið vegna lyfjameð- ferðar enn engu að síður geng ég með sjúkdóma sem leiða til dauða... og þetta eru krónískir sjúkdómar, þ.e. það er ekki til lækning við þeim en aftur á móti eru til ýmsar aðferði til að halda þeim niðri eins og geðlyf, samtalsmeðferð o.þ.h. Þegar ég byrjaði að nota geðlyf þá sagði læknirinn minn mér að þau væru eins og hækjur... þau ættu að aðstoða mig við að komast yfir ákveðinn hjalla og svo ætti ég að geta losað mig við hækjurnar (lyfin) og reyna að spreyta mig sjálf. Þegar sjálfsmyndin er mikið brotinn þá eru margir hlutir sem maður einfaldlega treystir sér ekki til að framkvæma, lyfin áttu að hjálpa mér til að fá þetta sjálfstraust til að að geta æft mig í að framkvæma hluti sem ég hafði ekki haft getu til að framkvæma. Eftir að hafa æft mig í tvö og hálft ár þá var komin tími til að sleppa hækjunum og standa alveg sjálf og óstudd fram- mi fyrir lífinu. Á þeim tímapunkti stend ég nákvæmlega núna, þess vegna byrja ég þessi skrif á því að segja „Finn hvernig geðveikin er að ná tökum smátt og smátt“. Hún er skrýtin þessi geðveiki, hvernig hugurinn getur leikið mann grátt... hugsanir koma upp í hugann og maður er svo fljótur að kaupa þær. Það er enginn lygi þetta með engilinn og púkann á sitt hvorri öxlinni... það er nákvæmlega þannig sem þetta er, nema hvað púkinn hefur alltaf vinninginn. það er til dæmis eitt sem ég hef lært á þessum tíma, það er að ég má helst ekki vera mikið ein... ein með mínum hugsunum, vá þá fá þær að blómstra! Eins og núna um helgina er ég búin að vera mikið ein. Þegar ég er svona mikið ein þá fer ég að einangra mig, dreg mig meir og meir inn í skelina og hætti að svara í símann og svoleiðis. Þegar ég er ein með mínum hugs- unum þá græt ég, dett niðrí sjálfsvorkunn og það grípur mig mikill vanmáttur/framkvæmdaleysi. ÞRIÐJUDAGUR, 2. SEPTEMBER, 2003 Þar sem ég geng um lífsins dali kem ég að lítilli þúfu... og ég kemst ekki yfir hana. Vá, nú er ég skáldleg... en hvort sem ég er skáldleg eða ekki þá líður mér nákvæmlega svona. Það er einhvern vegin allt mér ofviða, mér finnst ég ekki ráða við nein verkefni hversu lítil sem þau eru. Enda vill geðlæknirinn setja mig aftur á geðlyfin. Það hefur sem sagt komið í ljós á þessum tíma sem ég er búin að vera lyfjalaus að ég er með krónískt þunglyndi og kem til með að þurfa meðhöndlun það sem eftir er ævi minnar, ekki ósvipað og sykursjúklingur. Hef verið að átta mig á þessu og er í sjálfu sér ekkert voðalega ósátt, ég veit það fyrir víst að ég vil ekki líða svona eins og ég geri núna. ÞRIÐJUDAGUR, 9. SEPTEMBER, 2003 „Svo er komið kvöld, suma langar til að sofa heila öld, er þá virkilega allt eins og það á að vera“ Baráttu viljinn fer dvínandi... núna er tekin bara hálfur dagur í einu... vakna á morgnana og hugsa „ég þarf bara að meika það fram yfir hádegi“ Kannski ætti ég að skammast mín fyrir aumingjaskap- inn, sérstaklega þegar svo margir eru að kljást við sorg- ina þessa daganna. En í rauninni má segja að ég sjálf sé að kljást við sorgina eftir síðustu greiningu frá geðlækn- inum... Guð! Gefðu mér æðruleysi til þess að sætta mig við það sem ég fæ ekki breytt... Ég get víst ekki breytt því að heilinn í mér framleiðir ekki boðefni í réttu magni til þess að ég geti funkerað rétt í þessu lífi... án hjálpar frá geðlyfjum. „All your friends think your satisfied, but they cant see your soul“ LAUGARDAGUR, 13. SEPTEMBER, 2003 Baráttuþrekið er mjög lítið þessa dagana, kannski er viljinn ekki alveg jafn mikill og hann hefur verið. Ég hef svo sem áður verið á þessum stað sem ég er á núna og alltaf komist upp aftur... en það sem hræðir mig eru þessar hugsanir um að skaða sjálfa mig. Ég veit alveg af hverju ég vil skaða mig... það er bara til að kalla á hjálp og reyna að gera andlega vanlíðan mína sýnilega. En af hverju þarf maður að skaða sig til þess að fólk geri sér grein fyrir líðan minni, er ekki nóg að öskra HJÁLP SUNNUDAGUR, 28. SEPTEMBER, 2003 Það er svolítið gott að hafa svona mikið að gera, þá hef ég ekki tíma til að vera ein með hugsunum mínum... Ég er byrjuð aftur á geðlyfjunum, en þau byrja ekkert að virka strax. Það tekur svona 2 - 3 vikur en á þeim tíma er hætta á að líðanin versni áður en hún batnar. Mér finnst ég vera svolítið komin aftur á byrjunarreit, var komin í svo góðan gír áður en ég hætt á lyfjunum í sum- ar en hef tekið stórt skref aftur á bak í mínum bata síðan þá. En þetta er vonandi allt í rétta átt núna... ÞRIÐJUDAGUR, 21. OKTÓBER, 2003 Svei mér þá ef lyfin eru ekki farin að virka. Mér er alla veganna farið að líða betur, útlitið er ekki jafn svart og það var. Finn hvernig sjálfstraustið og gleðin vex um leið og kvíðinn minnkar. Það er frábært að fólk eins og ég skuli geta fengið svona hjálp! *dagbókin Í síðasta tölublaði Víkurfrétta var viðtal við konu sem greindist með þunglyndi, kvíða og félagsfælni fyrir 3 árum síð- an. Konan hefur sótt samtalsmeðferð til Reykjavíkur frá þessum tíma og einnig hefur hún verið á geðlyfjum. Síðasta sumar ákvað konan að hætta á lyfjunum, í fullu samráði við geðlæknirinn sinn og athuga hvernig henni myndi takast að höndla lífið án þeirra. Hvernig líður fólki sem er veikt á geði? Hvaða hugsanir hrærast í höfði þeirra? Á þessum tíma skrifaði hún dagbók þar sem hún lýsir hugsunum sínum í stuttu máli. Hún kallar skrif sín Geðveikt blogg. Jolablad II - 64 sidur pdf 20.12.2003 1:50 Page 38

x

Víkurfréttir

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Víkurfréttir
https://timarit.is/publication/1102

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.