Dagblaðið Vísir - DV - 01.12.2017, Blaðsíða 7

Dagblaðið Vísir - DV - 01.12.2017, Blaðsíða 7
Helgarblað 1. desember 2017 fréttir 7 Góðar sængur sem má þvo við 95° hita Teygjulök, í öllum stærðum á góðu verði. 100% cotton satin með 300TH. 60/60µ. Dýnuhlífar, rakaheldnar, þola þvott við 95° Rúmfatnaður, vandaður, 100% cotton satin með 300TH. 60/60µ. Handklæði, gæðavara, 500 gsm. 100% cotton. Frábærar vörur fyrir hótel, og bændagistingu og sjúkrastofnanir Stórhöfði 17 • 110 Reykjavík • Sími 5877685 • Netfang: elias@egheild.is • www.egheild.is HEILD EHF Opið frá kl. 13 til 18 virka daga. Vinsamlegast sendið net- skilaboð. ónir í vaxtagjöld. Niðurstaðan var því að félagið hagnaðist aðeins um 345 þúsund krónur árið 2016 og greiddi 90 þúsund krónur í skatta. D-13 ehf. hlaut 18 milljónir króna í húsaleigu en þökk sé 12,7 milljóna króna afskriftum tapaði fyrirtæki 2,6 milljónum króna árið 2016. Mannekla og fjárskortur hamla eftirliti Það sem er athyglisverðast við húsnæðið sem Leiguherbergi ehf. leigir út er sú staðreynd að það er allt skráð sem iðnaðar- eða skrif- stofuhúsnæði. Það er því strangt tiltekið ólöglegt að reka gististarf- semi til einstaklinga í húsnæðinu. Kjærnested-feðgar hafa hins vegar fundið grátt svæði í kerfinu og komast upp með reksturinn því eftirlitskerfi sveitarfélaganna er lamað sökum fjárskorts og manneklu. DV hefur heimildir fyrir því að húsnæði Leiguherbergja sé á lista yfir „óleyfishúsnæði“ hjá bruna- eftirliti höfuðborgarinnar, það er atvinnuhúsnæði sem er leigt út til einstaklinga til að búa í. Það sem gerir yfirvaldinu erfitt fyrir er að rúmlega 200 slíkar fasteign- ir eru á skrá og því þröngur stakk- ur er sniðinn með eftirlitsmenn. Samkvæmt nýrri reglugerð á að vera einn brunaeftirlitsmaður á hverja 10 þúsund íbúa á höfuð- borgarsvæðinu. Mið- að við mannfjölda ættu því 22 bruna- eftirlitsmenn að vera starfandi á höfuð- borgarsvæðinu en í raunveruleikinn er allt annar. Bruna- eftirlitsmenn á höfuð- borgarsvæðinu eru fjórir talsins en á næstunni mun þeim fjölga upp í sex. Brunaeftirlit fer því fram að þannig að farið er í óvænt- ar heimsóknir endrum og eins, en eftirlitið kemst aðeins yfir ör- fáar eignir á hverju ári. Þá herma heimildir DV að ef að kröfum eft- irlitsins sé fullnægt þá sé gististöð- um ekki lokað þrátt fyrir að þeir séu reknir án leyfis í atvinnuhús- næði. Lokun stórra gististaða eins og þeirra sem Leiguherbergi ehf. rekur myndi einfaldlega þýða mun erfiðari samfélagsleg vanda- mál. „Starfsemin er orðin venjuhelguð“ DV óskaði eftir upplýsingum frá forsvarsmönnum Leiguher- bergja ehf. um hvernig bruna- vörnum væri háttað í fasteign- um félagsins. Ekki tókst að ná sambandi í síma við fram- kvæmdastjóra félagsins, Stef- án Kjærnested, en spurningum blaðamanns í tölvupósti var svar- að samdægurs. Í svarinu kom fram að félagið leigði vissulega út herbergi og að réttindi og skuldir leigusala og leigutaka tækju mið af núgildandi húsaleigulögum. „Leiguhergbergi ehf. kappkosta að hafa allan aðbúnað eins og best verður á kosið, meðal annars með tilliti til brunavarna. Hefur Securitas séð um árlegar úttektir á húsnæðinu að því leyti til,“ segir í tölvupóstinum. Þá er því haldið fram að þar sem ekki hafi verið amast við starf- seminni í nærri tvo áratugi sé starf- semin orðin „venjuhelguð“. „Ríkir um hana hefð og góð samfélags- leg sátt. Hafa eignir félagsins verið í leigu með þessum hætti frá átta til tæplega átján ára. Aldrei hafa verið gerðar neinar athugasemdir við starfsemina frá yfirvöldum og hafa leigurýmin til að mynda verið nýtt á sviði félagslegrar þjónustu í allmörgum tilvikum.“ Skeytinu lýkur svo með bestu kveðjur frá starfsfólki Leiguherbergja. n Veggjatítlurnar verstar DV fór og heimsótti einn pólskan viðskiptavin félagsins. Sá býr í mjög litlu herbergi, líklega um 6–7 fermetrar, í einu af húsunum við Smiðjuvegi Hann vildi ekki koma fram undir réttu nafni og þá aðallega af ótta við að honum yrði hent út úr húsnæðinu. „Það er mjög erfitt að finna herbergi eða leiguíbúðir á höfuðborgarsvæð- inu. Þetta er skárra en það sem aðrir þurfa að sætta sig við. Ég er í slæmri stöðu ef ég missi þetta húsnæði,“ segir maðurinn, sem við skulum kalla Andrzej. Það verður þó seint sagt að Andrzej líði vel að Smiðjustíg. Her- bergi hans er agnarsmátt og þar er með herkjum hægt að koma fyrir litlu rúmi, fataskáp og skrifborði. Ýmsir munir Andrzej eru á gólfinu sem þýðir að varla er hægt að stíga til jarðar inni í her- berginu. Andrzej vildi ekki heimila myndatökur í herberginu af ótta við að upp um hann kæmist. Nokkur klósett eru aðgengileg í húsinu sem og þvottaherbergi og sérstök sturtuherbergi. Þessi herbergi eru mörg hver ekki með gluggum og því er loftræstingu ábótavant. Vond lykt, mygla og óþrifnaður er því nánast óhjákvæmilegur enda eru margir íbúar um hituna. Verst þykir Andrzej þó að hann er með lítil bit víða um líkamann, sem að öllum líkindum eru af völdum veggjalúsa (e. bed bugs). „Þetta byrjaði þegar ég flutti hingað inn. Þetta ansi óþægi- legt en ég veit ekki almennilega hvernig ég á að bregðast við þessu,“ segir Andrzej. Hann gengur með okkur um húsið og sýnir okkur króka og kima. Mesta athygli vekur gríðarlegur fjöldi eftirlitsmyndavéla sem eru um allt í húsinu. „Þeir fylgjast vel með,“ segir Andrzej áður en blaðamaður og ljósmyndari DV kveðja. „Ríkir um hana hefð og góð samfé- lagsleg sátt Nýr verðlisti Auglýsingin um hækkun á húsaleigunni frá því í sumar hangir enn uppi. Ekki kemur fram hver leigan var fyrir. Ranghalar Alls eru um 60 herbergi til útleigu í fasteignunum þremur við Smiðjuveg. Eldhúsið Tvær eldavélar eru til taks fyrir leigjen dur en hvorki vaskur né kæliskápar.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.