Dagblaðið Vísir - DV - 01.12.2017, Blaðsíða 34

Dagblaðið Vísir - DV - 01.12.2017, Blaðsíða 34
34 fólk - viðtal Helgarblað 1. desember 2017 með börn og þótt við yrðum strax ástfangin fluttum við ekki saman fyrr en 2014 hér fyrir norðan. Vinskapur leiddi okkur saman en ég heillaðist af því hversu opin hún er,“ segir hann og bæt- ir við að fjölskyldunni hafi tekist vel að koma undir sig fótunum á Akureyri. „Mér líður eins og ég hafi farið í einn sólarhring. Ég er kominn heim. Akureyri er góður staður fyrir fólk sem vill standa í framkvæmdum. Miðbærinn á þriðjudagsmorgni í febrúar er kannski ekki upp á marga fiska en þá er það spurningin hvað þú ert að gera. Það er það sem skiptir öllu máli. Ég hafði gleymt hversu stuttar vegalengdirnar hér eru. Fyrir sunnan bjó ég lengst af í Mosfellsbæ og var kannski 45 mínútur að koma börnunum á leikskóla og í vinnuna. Maður eyddi allt upp í þremur tímum í bíl á dag.“ Þrífættur köttur og hundur Axel á tvö uppkomin börn af fyrra sambandi. Frumburðurinn, Jakob Axel, 23 ára, býr hjá ömmu sinni í Mosfellsbæ en dóttirin, Steinunn Halldóra, er nýútskrifuð úr Menntaskólanum á Akureyri. Bergrún á 11 ára skíðastúlku, Eyrúnu Erlu, sem er alsæl með að búa svona stutt frá skíðasvæðinu og svo er það sonur þeirra, Frank Bergur, sem er að verða tveggja ára. Aðspurður segir Axel samein- ingu fjölskyldnanna hafa gengið vel. „Það hefur ekkert flækst fyrir okkur. Um tíma vorum við sex í heimili auk þrífætts kattar og eins hunds. Það var líf og fjör en hef- ur nú róast þótt sá minnsti haldi okkur á tánum.“ Föðurhlutverkið göfugast Hann viðurkennir að það hafi mótað hann sem föður að vera ekki í daglegum samskiptum við sinn eigin föður. „Ég held að allir strákar, sem alast þannig upp, leiti meðvitað eða ómeðvitað að föðurímynd. Ég var mikið með móðurafa mínum í sveitinni. Ein- hverra hluta vegna vissi ég alltaf að ég myndi eignast börn ungur, sem stóðst því ég var 22 ára þegar sonur minn fæddist og stelpan kom þremur árum síðar. Vegna reynslu minnar lofaði ég sjálf- um mér að skilja aldrei, en ég og mamma þeirra vorum ung og tókum ákvarðanir eftir því. Eftir að við skildum var ég í hlutverki helgarpabba og flutti til Ítalíu í eitt ár en svo veiktist barnsmóðir mín alvarlega og þá komu börnin til mín og ólust upp hjá mér eftir það. Þetta var mjög erfitt tímabil fyrir okkur öll en hún var í dái svo vikum skipti og fór í endurhæf- ingu í nokkur ár. Það tók auðvit- að heilmikið á þau en okkur tókst öllum að komast í gegnum þetta,“ segir hann og bætir við að hann hafi alltaf fundið sig í föðurhlut- verkinu. „Að vera faðir er göfug- asta hlutverk sem ég hef tekist á við um ævina, það hlutverk sem felur í sér mestar áskoranir en er einnig mest gefandi. Mig hef- ur alltaf langað að vera til staðar fyrir börn mín, að vera alltaf og í alvöru til staðar fyrir þau.“ Meiri verndartilfinning Hann segist hafa fundið mun á því að eignast barn 22 eða 44 ára. „Til- finningin er alltaf jafn guðdóm- leg en með auknum þroska átt- ar maður sig á því að það er ekki sjálfsagt að eignast fullfrískan og hressan strák. Í dag er ég, held ég, ábyrgðarfyllri og pössunarsam- ari pabbi. Þegar maður er ungur treystir maður meira á lífið, en í dag veit maður að lífið getur verið alls konar. Maður horfir á barnið og hugsar með sér hvernig því eigi eftir að reiða af, það á svo mikið eftir. Ég hef fundið fyrir meiri verndartilfinningu.“ Áfram á hnefanum Hann segir föðurmissinn hafa haft mikil áhrif á sig. „Ég held að fólki hafi ekki fundist að ég þyrfti að syrgja hann neitt sérstaklega þar sem ég ólst ekki upp hjá hon- um. Það held ég að sé kolröng nálgun. Ef samskiptin hafa ekki verið með þeim hætti sem mað- ur helst vildi getur ástvinamiss- ir verið enn flóknari. Ég fór þetta áfram á hnefanum og án þess að gera upp mínar tilfinningar. Ætli ég verði ekki út ævina að vinna úr þessu. Þetta hefur haft miklu meiri áhrif á líf mitt en ég gerði mér nokkurn tíma grein fyrir.“ Engin umræða um geðsjúkdóma Hann segir föður sinn hafa verið mjög veikan undir það síðasta. „Ég vissi í hvað stefndi. Pabbi glímdi við margs konar geðsjúk- dóma og alkóhólisma sem höfðu gert hann viðkvæman og í raun varnarlausan á ótrúlega stuttum tíma. Það var engin umræða um geðsjúkdóma á þessum tíma. Slíkt var ekkert rætt og það þótti eðli- legt. Hann lést þegar kviknaði í húsi hans út frá gassprengingu en andlát hans var úrskurðað sjálfs- víg. Pabbi hafði alltaf sagt mér að hann myndi fara með hvelli en ég held að hann hafi ekki meint það svona bókstaflega.“ Trump og grunngildin Eitt af því sem Axel erfði frá föður sínum er hrifning á Bandaríkj- unum. „Það er grunnhugmyndin um frelsi einstaklingins, tækifær- in og að allir geti náð langt, burt- séð frá uppruna, sem heillar mig.“ En hvað með Donald Trump, ert þú einnig hrifinn af honum? „Ég var sannspár og spáði Trump sigri þótt enginn annar hafi búist við því. Trump er ekki gallalaus maður og ég er enginn sérstakur aðdáandi hans en samt sem áður held ég að það hafi ver- ið nauðsynlegt að fá mann eins og hann til valda – mann sem heldur í grunngildin. Ég vona allavega að hann eigi eftir að koma á óvart en kannski er hann bara sá gallagrip- ur sem margir segja,“ segir hann og viðurkennir að hann gæti vel hugsað sér að búa í Bandaríkjun- um. „Kannski endar maður þar. Hins vegar erum við komin til Akureyrar til að vera. Það er ekk- ert fararsnið á okkur enda tjaldar maður ekki til einnar nætur þegar maður standsetur fjölmiðil.“ Fljótfær og stundum óöruggur Aðspurður segist hann ekki óttast Gróu á Leiti. „Kjaftasögurnar eru partur af Akureyri en ég læt slíkt ekki bíta á mig. Sögurnar geta orðið svæsnar en þá eru þær bara meira spennandi. Ef ekki eru sagðar um mann sögur er maður ekki að gera neitt sem skiptir máli,“ segir hann brosandi og játar því aðspurður að hann sé mögu- lega það sem kallast frumkvöð- ull. „Ég á auðvelt með að hrífa fólk með og vera í því hlutverki að leiða fólk áfram að ákveðinni sýn. Aðgerðaleysi er það versta sem ég veit. Ég verð helst að vera á undan öðrum og jafnvel á undan sjálfum mér. Ég get nefnilega verið fljót- fær og er líka stundum óörugg- ur þótt ég láti ekki bera á því. Það er þessi efi um hvort ég sé að gera rétt. En það er kannski líka kostur – að efast stundum um það sem maður er að gera.“ Lífið býr mann til Axel er 45 ára og segist nýlega hafa lært að fagna því að fá að eld- ast. „Einhvern tímann sagðist ég alltaf ætla að vera 18 ára. Þetta vita vinir mínir. Ég er ekki lengur viss um að það sé besti aldur til að velja. Í dag vil ég njóta þess að eldast og hugsa um það sem skref áfram en ekki aftur á bak. Hins vegar ég á unga konu og lítið barn og hvort tveggja heldur mér ung- um. Þótt kjarninn sé sá sami er ég ekki lengur sama manneskjan og ég var þegar ég bjó hér síðast. Það er svo margt sem mótar mann. Lífið býr mann til.“ n „Pabbi hafði alltaf sagt mér að hann myndi fara með hvelli en ég held að hann hafi ekki meint það svona bókstaflega Aldurinn „Hins vegar ég á unga konu og lítið barn og hvort tveggja heldur mér ungum.“ Mynd guðrún Þórs
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.