Dagblaðið Vísir - DV - 01.12.2017, Blaðsíða 66

Dagblaðið Vísir - DV - 01.12.2017, Blaðsíða 66
2 Betri pizzur Helgarblað 1. desember 2017KYNNINGARBLAÐ Gallery Pizza, HvolsveGi 29, Hvolsvelli Gallery Pizza er gamal­gróinn veitingastaður í hjarta Hvolsvallar, stofnaður upp úr 1990, af þeim Þorsteini Jónssyni og ingólfi ingólfssyni. Núverandi eigendur staðarins, hjónin sigurður B. Guðmundsson og Jaroon Nuamnui, keyptu reksturinn árið 2012 og hafa kappkostað að halda í þær venjur sem fært hafa staðn­ um vinsældir í gegnum tíðina, ásamt því að byggja hann upp og þróa áfram. „Hér eru margir fastir viðskiptavinir, t.d. fólk úr sveitinni, og heimamenn eru afskaplega duglegir að stunda þennan stað. Þess vegna hefur verið hægt að hafa hann opinn allt árið um kring í gegnum árin. erlendir ferðamenn eru síðan mikil viðbót. en fólk kann vel að meta að hér sé haldið í hefð­ irnar sem sköpuðust fyrstu árin, sem lýsir sér meðal annars í kjörorðinu „matar­ mikið og vel útilátið“. svona í bændastíl,“ segir sigurður B. Guðmundsson, en Gallery Pizza er þekktur fyrir í senn fjölbreyttan, vel útilátinn og bragðgóðan mat. „en um leið og við höldum í hefðirnar þá byggjum við líka upp og mætum auk­ inni aðsókn sem hefur verið undanfarin ár enda mikil uppbygging og gróska í hér­ aðinu sem við njótum góðs af. Til dæmis byggðum við hér huggulega útiaðstöðu sem er mikið notuð á sumrin,“ segir sigurður. Á Gallery Pizza eru yfir 20 tegundir af pizzum í boði. „síðan velur fólk sér líka oft það sem það vill á sína pizzu og setur hana þannig saman sjálft. en það má nefna til sögunnar þrjár pizzur sem hafa notið gífurlegra vin­ sælda í gegnum tíðina og heita allar dálítið sérstökum annar eigandinn, Jaroon Nuamnui frá sukhothai í Taílandi, sker pizzurnar. Gallery Pizza byggir á gömlum grunni „Þetta eru alvörupizzur nöfnum. ein sú frægasta er Hraun – lava, sem er afskap­ lega vinsæl, en á henni er pepperóní, sveppir, hvítlauk­ ur, jalapeno, rjómaostur og grænar ólífur. Gallery Djúsí er önnur fræg, hún er með pepperóní, sveppum, lauk, ananas og piparosti. síðan er hér fornfræg pizza sem heitir Fjallamjólk og er mjög vinsæl í sveitinni. Hún er með pepper­ óní, ananas, beikoni og chili­ kryddi. sjávarrétta pizzan er líka afar vinsæl,“ segir sigurð­ ur. Pizzurnar á Gallery Pizza hafa sín sérkenni sem finnast ekki annars staðar: „Þetta eru alvöru pizzur. við gerum allt frá grunni og samkvæmt uppskriftunum sem voru hér í upphafi. Botninn er milli­ þykkur og eins og karlarnir segja oft þegar þeir hringja og panta: „Hafðu þetta vel útilátið á köntunum.“ Pizz­ urnar okkar eru bragðmiklar og matarmiklar og Jaroon handsker allt grænmetið til að ferskleikinn haldi sér sem best.“ Margvíslegir aðrir réttir eru á boðstólum hjá Gallery Pizza, til dæmis kjúklinga­ salat, sjávarréttasalat, ham­ borgarar, lambakótelettur og sub­samlokur. Þá eru fiskréttir vinsælir á staðnum. Í hádeginu á virkum dög­ um eru alltaf tilboð og en fast hádegisverðartilboð á föstudögum er pizza­hlað­ borð á 1.600 krónur. „Það er líf og fjör í hádeginu hér á föstudögum. Hér hittist margt fólk úr sveitinni, bænd­ ur og hestamenn, því hér eru hestabúgarðar í kring. stemningin er afskapleg góð. einnig er vinsælt hjá hópum að hringja, panta sér pizza­hlaðborð og koma hér saman,“ segir sigurður. Það er mikið að gera á Gallery Pizza allan ársins hring en á vorin mætti segja að allt verði brjálað að gera. „Þetta er mikil vertíð sem verður þá en bara gaman. við njótum líka góðs af ára­ tuga farsælli rekstrarsögu og margt fólk á ferðalögum, t.d. þeir sem eru á leiðinni til eyja, víkur eða Hafnar koma alltaf við hér og fá sér í svanginn. Það eru svo margir sem hafa haldið tryggð við staðinn í gegnum tíðina.“ sigurður viðurkennir að það sé mikil vinna að halda svo vinsælum veitingastað gangandi en mikilvægt sé að sýna þessu alúð. „Ég og kon­ an mín, Jaroon, vinnum hér langa daga og svo erum við með tvo fasta starfsmenn. Á næstunni bætist síðan sonur okkar, Guðmundur Borgar sigurðsson, í hópinn.“ Þess má geta að veitinga- staðurinn Gallery Pizza er kominn í jólaskap og þess vegna verður 20 prósenta afsláttur af öllum veiting- um á staðnum í desember. „Með þessu langar okkur til að þakka okkar traustu viðskiptavinum fyrir frábæra aðsókn á árinu sem er að líða um leið og við bjóðum nýja gesti velkomna. Þetta er kjörinn áningarstaður fyrir þá sem eiga ferð um Suðurland,“ segir Sigurður að lokum. Út veitingasalnum: Húsið reis í fyrstu götu bæjarins og var rafmagns­ verkstæði Kaupfélags rangæinga. veitingastaðurinn hefur verið þarna frá því upp úr 1990.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.