Dagblaðið Vísir - DV - 01.12.2017, Side 66
2 Betri pizzur Helgarblað 1. desember 2017KYNNINGARBLAÐ
Gallery Pizza, HvolsveGi 29, Hvolsvelli
Gallery Pizza er gamalgróinn veitingastaður í hjarta Hvolsvallar,
stofnaður upp úr 1990, af
þeim Þorsteini Jónssyni og
ingólfi ingólfssyni. Núverandi
eigendur staðarins, hjónin
sigurður B. Guðmundsson
og Jaroon Nuamnui, keyptu
reksturinn árið 2012 og hafa
kappkostað að halda í þær
venjur sem fært hafa staðn
um vinsældir í gegnum tíðina,
ásamt því að byggja hann
upp og þróa áfram.
„Hér eru margir fastir
viðskiptavinir, t.d. fólk úr
sveitinni, og heimamenn
eru afskaplega duglegir að
stunda þennan stað. Þess
vegna hefur verið hægt að
hafa hann opinn allt árið um
kring í gegnum árin. erlendir
ferðamenn eru síðan mikil
viðbót. en fólk kann vel að
meta að hér sé haldið í hefð
irnar sem sköpuðust fyrstu
árin, sem lýsir sér meðal
annars í kjörorðinu „matar
mikið og vel útilátið“. svona
í bændastíl,“ segir sigurður
B. Guðmundsson, en Gallery
Pizza er þekktur fyrir í senn
fjölbreyttan, vel útilátinn og
bragðgóðan mat.
„en um leið og við höldum
í hefðirnar þá byggjum við
líka upp og mætum auk
inni aðsókn sem hefur verið
undanfarin ár enda mikil
uppbygging og gróska í hér
aðinu sem við njótum góðs af.
Til dæmis byggðum við hér
huggulega útiaðstöðu sem er
mikið notuð á sumrin,“ segir
sigurður.
Á Gallery Pizza eru yfir 20
tegundir af pizzum í boði.
„síðan velur fólk sér líka oft
það sem það vill á sína pizzu
og setur hana þannig saman
sjálft. en það má nefna til
sögunnar þrjár pizzur sem
hafa notið gífurlegra vin
sælda í gegnum tíðina og
heita allar dálítið sérstökum
annar eigandinn, Jaroon Nuamnui frá sukhothai
í Taílandi, sker pizzurnar.
Gallery Pizza
byggir á
gömlum
grunni
„Þetta eru
alvörupizzur
nöfnum. ein sú frægasta er
Hraun – lava, sem er afskap
lega vinsæl, en á henni er
pepperóní, sveppir, hvítlauk
ur, jalapeno, rjómaostur og
grænar ólífur. Gallery Djúsí
er önnur fræg, hún er með
pepperóní, sveppum, lauk,
ananas og piparosti. síðan er
hér fornfræg pizza sem heitir
Fjallamjólk og er mjög vinsæl í
sveitinni. Hún er með pepper
óní, ananas, beikoni og chili
kryddi. sjávarrétta pizzan er
líka afar vinsæl,“ segir sigurð
ur. Pizzurnar á Gallery Pizza
hafa sín sérkenni sem finnast
ekki annars staðar: „Þetta
eru alvöru pizzur. við gerum
allt frá grunni og samkvæmt
uppskriftunum sem voru hér
í upphafi. Botninn er milli
þykkur og eins og karlarnir
segja oft þegar þeir hringja
og panta: „Hafðu þetta vel
útilátið á köntunum.“ Pizz
urnar okkar eru bragðmiklar
og matarmiklar og Jaroon
handsker allt grænmetið til
að ferskleikinn haldi sér sem
best.“
Margvíslegir aðrir réttir
eru á boðstólum hjá Gallery
Pizza, til dæmis kjúklinga
salat, sjávarréttasalat, ham
borgarar, lambakótelettur
og subsamlokur. Þá eru
fiskréttir vinsælir á staðnum.
Í hádeginu á virkum dög
um eru alltaf tilboð og en
fast hádegisverðartilboð á
föstudögum er pizzahlað
borð á 1.600 krónur. „Það
er líf og fjör í hádeginu hér
á föstudögum. Hér hittist
margt fólk úr sveitinni, bænd
ur og hestamenn, því hér
eru hestabúgarðar í kring.
stemningin er afskapleg
góð. einnig er vinsælt hjá
hópum að hringja, panta sér
pizzahlaðborð og koma hér
saman,“ segir sigurður.
Það er mikið að gera á
Gallery Pizza allan ársins
hring en á vorin mætti segja
að allt verði brjálað að gera.
„Þetta er mikil vertíð sem
verður þá en bara gaman.
við njótum líka góðs af ára
tuga farsælli rekstrarsögu og
margt fólk á ferðalögum, t.d.
þeir sem eru á leiðinni til eyja,
víkur eða Hafnar koma alltaf
við hér og fá sér í svanginn.
Það eru svo margir sem hafa
haldið tryggð við staðinn í
gegnum tíðina.“
sigurður viðurkennir að
það sé mikil vinna að halda
svo vinsælum veitingastað
gangandi en mikilvægt sé að
sýna þessu alúð. „Ég og kon
an mín, Jaroon, vinnum hér
langa daga og svo erum við
með tvo fasta starfsmenn. Á
næstunni bætist síðan sonur
okkar, Guðmundur Borgar
sigurðsson, í hópinn.“
Þess má geta að veitinga-
staðurinn Gallery Pizza er
kominn í jólaskap og þess
vegna verður 20 prósenta
afsláttur af öllum veiting-
um á staðnum í desember.
„Með þessu langar okkur
til að þakka okkar traustu
viðskiptavinum fyrir frábæra
aðsókn á árinu sem er að
líða um leið og við bjóðum
nýja gesti velkomna. Þetta er
kjörinn áningarstaður fyrir þá
sem eiga ferð um Suðurland,“
segir Sigurður að lokum.
Út veitingasalnum: Húsið reis í fyrstu
götu bæjarins og var rafmagns
verkstæði Kaupfélags rangæinga.
veitingastaðurinn hefur verið þarna
frá því upp úr 1990.