Dagblaðið Vísir - DV - 01.12.2017, Blaðsíða 2
2 Helgarblað 1. desember 2017fréttir
Þetta helst
Þessar fréttir bar hæst í vikunni
Typpamyndir urðu Þóri Sæm að falli
Stórleikarinn Þórir Sæmundsson steig fram í viðtali við DV í vikunni
og viðurkenndi að hafa gerst sekur um ósæmilega hegðun og áreitni.
Gekkst hann við því að hafa sent unglingsstúlku myndir af getnað
arlim sínum fyrir mistök. Orðrómur um að slík háttsemi hafi orðið til
þess að Þórir fékk ekki fleiri verkefni hjá leikhúsinu hefur verið hávær
undanfarin misseri. Kvaðst Þórir hafa leitað sér hjálpar fagaðila.
Andri heyrði mjálm innan úr bílnum
Ótrúlega björgun kattar átti sér
stað á Aðalverkstæðinu í vik
unni. Bíleigandinn Andri Már
Reynisson heyrði mjálm innan
úr bíl sínum að kvöldi til. Í ljós
kom að köttur hafði troðið sér
inn í vélarrúm bílsins og ekki
var unnt að ná honum út með
góðu móti. Starfsmenn Aðal
verkstæðisins brugðust skjótt við og að
stoðuðu Andra Má við að frelsa kött
inn, þrátt fyrir að komið væri fram yfir
venjulegan opnunartíma. Andri Már
náði björguninni á myndband sem naut mikilla vinsælda á sam
félagsmiðlum.
Páll Magnússon æfur
Strax og ráðherra
listi nýrrar ríkisstjórn
ar var afhjúpaður birti
Páll Magnússon, odd
viti Sjálfstæðisflokksins
í Suðurkjördæmi, yfir
lýsingu á Facebooksíðu
sinni. „Í annað sinn á
innan við ári hefur for
maður Sjálfstæðisflokks
ins nú gengið fram hjá
Suðurkjördæmi þegar
kemur að ráðherra
skipan í ríkisstjórn sem
flokkurinn á aðild að.
Þetta gerist þrátt fyrir
að kjördæmið sé ann
að höfuðvígi Sjálfstæð
isflokksins á landinu,“
sagði Páll og bæti því við að hann hefði mót
mælt ákvörðun Bjarna Benediktssonar harð
lega.
Spurning vikunnar Langar þig til að fylgja knattspyrnulandsliðinu til rússlands?
Já, ég væri til, en hef ekki ákveðið hvort ég geri það.
Rebekka Gunnlaugsdóttir
Já, en ég get það ekki, því miður.
Þorsteinn Scheving Sigurjónsson
Já, ekki spurning, en ég hugsa að ég geri það ekki.
Guðný Hrönn Sigmarsdóttir
Nei, aldrei.
Dagur Jónsson
Gunnar og Ásgerður Jóna
Í vikunni afhenti Gunnar formanni
Fjölskylduhjálpar Íslands gjöfina. Mynd BrynJa
Þ
að á enginn að líða skort á
Íslandi. Við erum í gríðar
legri uppsveiflu í atvinnu
lífinu og rekstur margra
fyrir tækja gengur afar vel. Ég ætla
að skora á önnur fyrirtæki að sýna
samfélagslega ábyrgð og hjálpa
þeim sem minnst mega sín,“ segir
Gunnar Einarsson, eigandi GE
verktaka. Hann tók sig til og fjár
festi í 100 inneignarkortum hjá
verslunarrisanum Bónus að upp
hæð 10.000 krónur hvert. Gjöfina,
sem var að andvirði einnar millj
ónar króna, afhenti hann Fjöl
skylduhjálp Íslands. „Ég og eig
inkona mín fórum með nokkra
pakka til Fjölskylduhjálparinnar
um daginn. Á leiðinni heim fór
um við að hugsa um að við gætum
gert svo miklu betur og þá kvikn
aði þessi hugmynd,“ segir Gunnar
í samtali við DV.
Upplifði sjálfur erfið jól
Að sögn Gunnars þekkir hann það
sjálfur hvernig tilfinning það er að
hafa lítið milli handanna fyrir jólin.
„Ég var einn þeirra iðnaðarmanna
sem fóru til Noregs í kjölfar efna
hagshrunsins. Ég hafði vinnu hér
heima en andrúmsloftið á Íslandi
var svo þrúgandi á þessum árum að
ég vildi komast frá því,“ segir hann.
Hann bjó og starfaði í Ósló en alls
var hann sex ár í Noregi. Í kjölfar
skilnaðar eftirlét Gunnar fyrrver
andi eiginkonu sinni hús þeirra til
þess að börn þeirra þyrftu ekki að
vera á vergangi.
„Jólin 2013 voru mér afar minn
isstæð því þá átti ég aðeins 60 þús
und krónur til þess að lifa af desem
bermánuð. Það var mjög erfitt en ég
efast ekki um að margir þeirra sem
eru verst staddir hafi mun minna
milli handanna,“ segir Gunnar.
Bara fjallað um skemmdu eplin
Í mars 2014, flutti hann síðan
aftur heim til Íslands, með sama
sem ekkert milli handanna, og
rekstur GE verktaka hófst. „Það
tók tíma að koma undir sig fótun
um en undanfarið hefur rekstur
inn gengið vel. Ég er með frábæra
starfsmenn og er heppinn með
þau fyrirtæki sem ég er í samstarfi
við, til dæmis HB innréttingar og
Munck,“ segir Gunnar. Í dag starfa
hjá GE verktökum um tuttugu
einstaklingar. „Við erum aðallega
í innréttingum og komum meðal
annars að verkefnum fyrir Zöru og
Hard Rock,“ segir Gunnar.
Að hans sögn hefur verið mikið
góðæri í verktakabransanum
undanfarin ár og því sé sjálfsagt að
gefa til baka til samfélagsins. „Það
eru margir sem eru að standa sig
mjög vel en yfirleitt rata bara fréttir
af skemmdu eplunum í fjölmiðla.
Ég vil endilega hvetja öll fyrirtæki
sem vettlingi geta valdið að hugsa
til þeirra sem minnst mega sín
þessi jól,“ segir Gunnar. n
„Skora á
önnur fyrirtæki“
Gunnar Einarsson, eigandi Ge verktaka, gaf fjölskylduhjálp
gjafabréf í bónus að andvirði einnar milljónar króna
Björn Þorfinnsson
bjornth@dv.is