Dagblaðið Vísir - DV - 01.12.2017, Blaðsíða 68
KYNNINGARBLAÐ4 Betri pizzur
EssENsIA, HvERfIsGötu 4–6
Veitingastaðurinn Essensia var opnaður fyrir rétt rúmu ári og
er hugarfóstur Hákonar Más
örvarssonar sem vildi opna
ekta ítalskan veitingastað
í fínni kantinum. fyrir utan
hágæða matreiðslu hefur
verið lögð mikil vinna í að
hafa umhverfið sem fallegast
og í ósviknum ítölskum anda:
„við fengum til okkar ítalska
arkitekta til að hanna staðinn
og allar innréttingar og smíði
– stólar, borð og barinn, öll
ásýnd staðarins er flutt inn
frá Ítalíu,“ segir Hákon.
Það sama má segja um
matseldina, þar á meðal
pizzugerðina, þetta er allt
ekta ítalskt: „við gerum pizzur
í þessum Napolitana-stíl sem
fer þannig fram að pizzan er
aldrei mikið lengur en eina
og hálfa til tvær mínútur í
320°C heitum eldofninum.
Það fer hins vegar meiri tími
í að undirbúa hana, fletja
út deigið og setja ofan á
hana. Pizzurnar eru lagaðar
aðeins minni en gengur og
gerist en hráefnið er það sem
gerir gæfumuninn varðandi
gæðin.“
vinsælasta pizzan á
Essensia er humarpizzan og
hefur hún slegið svo rækilega
í gegn að hún er orðin eitt
af helstu einkennismerkjum
staðarins: „við notum ítalska
san Marsano-tómata sem
eru mikilvægt hráefni í þess-
um Napolitana- pizzum. við
gerum okkar eigin Ricotta-ost
og notum einnig mascarpone
sem grunn með tómötun-
um, síðan, að sjálfsögðu,
humarinn okkar góða. við
þetta bætist síðan smá chili,
hvítlauksolía og sjávarsalt,“
segir Hákon, en aðrar pizzur á
matseðlinum eru líka vin-
sælar og vandað er til verka
við gerð þeirra í hvívetna, til
dæmis við hina hefðbundnu
Margarita-pizzu, og einnig
óvenjulegri pizzur, eins og
kartöflupizzu með pancetta-
beikoni, rósmaríni og brieosti.
Í rauninni er engin sérlöguð
pizzasósa á pizzunum okkar
heldur notum við san Marsa-
no-tómatana beint og byggj-
um þetta síðan á deiginu
sem er alltaf lagað daglega
á staðnum, en þó ekki bak-
að fyrr en 1–2 dögum síðar;
þetta meðal annars er það
sem gerir pizzurnar bragð-
góðar og einstakar.“
fyrir utan pizzurnar er
matseðillinn á Essensia nokk-
uð fjölbreyttur. Boðið er upp
á afbragðsgóða pastarétti,
steikur, fiskrétti og fleira. Og
sem fyrr segir er umhverfið
fallegt og þægilegt. „Þetta
er í fínni kantinum, þú situr
vel í gæðastólum og það
eru tauservíettur á borð-
um. Útsýnið er að Hörpu og
nágrenni og fólk nýtur þess
virkilega að slaka hér á yfir
góðum mat,“ segir Hákon,
en mjög stórir gluggar prýða
staðinn og veita frábært
útsýni.
„Það er mjög vinsælt að
koma hingað áður en farið
er í leikhús eða Hörpu,“ segir
Hákon og kemur ekki á óvart
enda bara nokkur skref frá
staðnum yfir í Þjóðleikhús-
ið og örstuttur gangur að
tónlistarhúsinu. staðurinn er
vinsæll en að sögn Hákonar
eru Íslendingar í meirihluta
þó að erlendir ferðamenn
sæki staðinn líka nokkuð vel.
Essensia tekur 60 manns í
sæti í einu.
Nánari upplýsingar eru á
vefsíðunni essensia.is.
Ekta ítalskur andi og
pizzur af betri gerðinni
Humarpizzan fræga Myndir © Karl Petersson 2017Hákon Már örvarsson
Helgarblað 1. desember 2017