Dagblaðið Vísir - DV - 15.12.2017, Page 2
2 Helgarblað 15. desember 2017fréttir
Þessar fréttir bar hæst í vikunni
Vinsæl
ummæli
við fréttir DV í vikunni
spjöld sem auglýstu starfsem-
ina og var ætlunin að dreifa þeim
sem víðast meðal þeirra sem
hafa áhuga á að nota slíka þjón-
ustu. Samkvæmt heimildum DV
hefur lögregla það til rannsókn-
ar að fleiri en Alexander tengist
skipulagningu vændisstarfsem-
innar og beinist sú rannsókn út
fyrir landsteinana.
Alexander gerðist sekur um
alvarleg trúnaðarbrot í starfi
sínu fyrir Barnavernd Reykjavík-
ur. Herma heimildir DV að hann
hafi reynt að koma sér í mjúkinn
hjá hjónum sem þekkja vel til í ís-
lenska vændisheiminum. Hjónin
voru undir smásjá barnaverndar-
yfirvalda.
DV hefur heimildir fyrir því að
Alexander hafi látið hjónin vita um
óboðaðar eftirlitsferðir stofnunar-
innar á heimili þeirra sem og upp-
lýst þau um hverjir hefðu tilkynnt
þau til Barnaverndar. Blaðamað-
ur DV hafði samband við umrædd
hjón en neituðu þau því staðfast-
lega að slík atburðarás hefði átt sér
stað. Því næst slitu þau samtalinu.
Neyddist til að hætta
Eins og kom fram í fyrri frétt DV
af málinu var Alexander vel liðinn
meðal samstarfsmanna sinna hjá
Barnavernd og var starfsfólk í upp-
námi yfir meintri aðkomu hans
að vændisstarfsemi. Í umfjöllun
Ríkisútvarpsins um málið fullyrti
Halldóra Dröfn Gunnarsdóttir,
framkvæmdastjóri Barnaverndar
Reykjavíkur, að Alexander hefði
verið farsæll í starfi.
Í skriflegu svari til DV sagð-
ist Halldóra ekki kannast við að
meinbugir hafi verið á vinnu Al-
exanders hjá Barnavernd Reykja-
víkur. Þá hafi starfslok hans ekki
á neinn hátt tengst meintri
vítaverðri háttsemi. Ann-
að segja
heimildir DV en þær
herma að kvartanir hafi
borist vegna framgöngu
hans sem hafi orðið til þess
að Alexander neyddist til
að láta af störfum. Þá hafði
Barnavernd verið látin vita
af því að Alexander hefði
hlotið dóm sem ungur
maður.
Heillaði húsráðendur
Vændishúsið var staðsett
í Fiskakvísl og tók Alex-
ander hana á leigu í eig-
in nafni. Eins og ástatt er
á íslenskum fasteigna-
markaði var íbúðin um-
setin þegar hún bauðst
til útleigu og voru á ann-
an tug einstaklinga sem
sóttust eftir því að taka
íbúðina á leigu.
Fjölmargir voru boðaðir í við-
töl. Alexander mætti í slíkt viðtal
og heillaði eigendur íbúðarinnar
með persónutöfrum sínum. Hann
varð hlutskarpastur um íbúð-
ina, skrifaði undir leigusamning
og breytti íbúðinni umsvifalaust í
hóruhús. DV hefur heimildir fyrir
því að eigendur íbúðarinnar séu
miður sín vegna málsins og hafi
átt erfitt með svefn fyrstu dagana.
Báðust eigendur íbúðarinnar und-
an viðtali við DV og vilja gleyma
málinu sem fyrst.
Klukkutími á 43 þúsund krónur
Áhugasamir vændiskaupend-
ur gátu pantað tíma hjá perúsku
konunum í gegnum símanúmer
eða á tölvupóstfangi. Með skjótri
leit á netinu koma strax í ljós fjöl-
margar síður þar sem þjónustan er
auglýst, til dæmis á vændissíðunni
alræmdu City of Love. Þá er þjón-
usta þeirra einnig rædd á hinni
viðurstyggilegu vefsíðu chansluts.
Þar ræða sumir viðskipta-
vinirnir þjónustuna, hvort
myndirnar af konunum
séu ekta og hvort verðið sé
sanngjarnt. Kemur fram
að hálftími kosti 250 evrur,
eða 31 þúsund krónur, en
klukkustund kosti 350 evr-
ur, eða 43 þúsund krónur.
Þá var vefsíðan ice6s-
ecret.com sett í loft-
ið á með- an
vændisstarfsemin var í gangi. Með
einfaldri leit má sjá að Alexander
var skráður lénshafi fyrir síðunni
sem var sett í loftið fyrir um 10 vik-
um.
Varaði við lögreglunni
Rúmum mánuði áður en Alexand-
er og eiginkona hans voru hand-
tekin og starfsemin upprætt birti
einn notandi chansluts viðvörun á
síðunni. Segist hann hafa ætlað að
fara að hitta konurnar en tekið þá
eftir óeinkennisklæddum lögreglu-
mönnum sitjandi úti í bíl skammt
frá. Forðaði maðurinn sér á hlaup-
um og vildi meina að annaðhvort
væri lögreglan byrjuð að fylgjast
með konunum eða þá að um gildru
væri að ræða. Aðrir notendur sem
höfðu nýtt sér þjónustuna blésu á
þessi varnaðarorð og sögðu að ekk-
ert væri að óttast. Allt hefði gengið
eins og í sögu hjá þeim.
Líklega fá þessir aðilar makleg
málagjöld því fram hefur komið að
lögreglan lagði hald á skrá yfir við-
skiptavini Alexanders og verða þeir
boðaðir í skýrslutöku á næstunni.
kristjon@dv.is, hjalmar@dv.is, bjornth@dv.is
Hrafnhildur keypti sér köku í Reykjavík
og endaði á bráðamóttökunni: „Ekki í
lagi að þurfa að óttast um líf sitt“
Ranglega merktur vegan matur var mikið í deiglunni
í vikunni. DV.is greindi frá máli Hrafnhildar Jóhann-
esdóttur sem þurfti að leita á bráðamóttöku eftir
að hafa borðað súkkulaðiköku á kaffihúsi sem merkt
var vegan en var það ekki. Hrafnhildur, sem er með
ofnæmi, bólgnaði upp og fékk útbrot skömmu eftir
að hafa innbyrt kökuna. Dv.is fjallaði einnig um mál
Steinunnar Valbjörnsdóttur sem pantaði sér vegan-
pitsu á veitingastaðnum XO en osturinn á pitsunni reyndist innihalda dýraafurðir.
dv.is
Jólakraftaverk fjórða árið í röð: „Alltaf
hellingur af nýjum fjölskyldum sem leita
aðstoðar ár hvert“
Pressan tók viðtal við Öldu Björk Guðmundsdóttur sem stýrir Facebook-síðunni
„Jólakraftaverk“ sem aðstoðar fátækt fólk með jólagjafir, jólamat, skógjafir og fleira.
Fréttin hefur væntanlega yljað mörgum um hjartarætur og hvatt aðra til góðra verka.
Pressan.is
26
„Hvað er að,
Heimir minn? Þú
hefur ekki beðið
um viðtal við mig um þessa
nýju bók. Þú fengir það um
leið, enda góður og vel
menntaður fréttamaður
(fyrrverandi nemandi
minn!) - og raunar í miklu
uppáhaldi hjá mér.“
Stefán Ólafsson, prófessor við
Háskóla Íslands, svaraði Heimi
Má Péturssyni fréttamanni, sem
var ósáttur við að Stefán hafi farið í Silfrið.
Heimir vildi meina að Stefán kæmi aldrei í
viðtöl til sín en væri nú að snobba fyrir RÚV.
40
„Sé að fólk gerir
lítið úr þessu en
kannski snýst
málið um vörusvik. Burt séð
frá vegan ekki vegan. Ef
fyrirtæki gefur sig út fyrir að
vera með vöru en svíkur og
blekkir síðan kaupandann er
það ekki væll kaupandans.
Það eru svik seljandans. Um
það snýst málið.“
Bárður Örn Bárðarson benti á að
þótt fólki þætti ekki mikið koma til
þess að vera vegan þá afsakar það
ekki að blekkja viðskiptavini. Veitingastaður-
inn XO seldi pitsur undir þeim formerkjum að
vera vegan en raunin var önnur.
33
„Aldrei í mannkyns-
sögunni hafa verið
fleiri þrælar í
heiminum en akkúrat núna.
Þrælar nútímans eru um allan
heim, af öllum kynþáttum og
kynjum. Ég á ansi erfitt með
að sjá að svona verkefni geti
verið neikvætt. Get ekki annað
en ímyndað mér að ungmenn-
in sem framkvæmi þetta
verkefni setji sig í spor fólks
sem haldið er sem þrælar og
sjái þannig enn betur hversu
ógeðfellt slíkt er.“
Jóhann Ingi Ólafsson sagði sína
skoðun á verkefni grunnskóla-
barna þar sem þau voru beðin
um að búa til sinn eigin þræl með
bakgrunn, fjölskyldu og drauma. Verkefnið
var gagnrýnt af Fanný Cloé og öðrum.
Skipulagði vændið í
starfi hjá Barnavernd
Alexander lét skjólstæðinga stofnunarinnar vita af óboðuðum heimsóknum
A
lexander Manriqeu Elí-
asson, sem liggur undir
grun um að hafa skipulagt
vændisstarfsemi í íbúð
við Fiskakvísl í Ártúnsholti, hóf
skipulagningu starfseminnar á
meðan hann starfaði hjá Barna-
vernd Reykjavíkur. Þetta herma
öruggar heimildir DV. Alexand-
er hætti störfum hjá hinni opin-
beru stofnun í apríl á þessu ári en
hálfu ári síðar var hann handtek-
inn ásamt eiginkonu sinni í tengsl-
um við rannsókn málsins.
Þá höfðu þrjár stúlkur frá Perú
selt blíðu sína í nokkrar vikur í
íbúðinni sem var leigð á nafni Al-
exanders. Við húsleit var lagt hald
á tölvur, síma og um þrjár milljónir
króna í reiðufé.
Alvarleg trúnaðarbrot í starfi
DV hefur heimildir fyrir því að
Alexander hafi haft uppi háleit-
ar hugmyndir um starfsemina.
Hann ætlaði að leggja undir sig
íslenska vændismarkaðinn. Með-
al annars lét hann búa til nafn-
Ice6secrets Alexander lét framleiða þessi nafnspjöld til
þess að auglýsa starfsemina. Ætlunin var að dreifa þeim
sem víðast.
Fiskakvísl Í Fiskakvísl var vændisstarfsemi rekin.
Alexander Manriqeu Alexander var
handtekinn ásamt eiginkonu sinni, grunaður
um vændisstarfsemi.
Ein af perúsku vændiskonunum Myndunum af konunum var dreift á fjölmargar spjallrásir
ásamt upplýsingum um hvernig hægt væri að panta tíma. Á myndinni sést ein kvennanna
þykjast lesa Fréttablaðið en slíkt er algengt meðal erlendra vændiskvenna til þess að sýna að
þær séu raunverulega staddar á landinu. Engar heimildir eru fyrir því að afburðamiðillinn DV sé
notaður í slíkum tilgangi.