Dagblaðið Vísir - DV - 15.12.2017, Síða 8

Dagblaðið Vísir - DV - 15.12.2017, Síða 8
8 Helgarblað 15. desember 2017fréttir hjálparsíður á Facebook og hefur til að mynda þannig náð að halda afmæli fyrir börnin sín. Vinnufé- lagi barnsföður hennar tók sig til að mynda til og leigði sumarbú- stað fyrir fjölskylduna þar sem þau munu dvelja yfir jól og áramót. Þökk sé hjálpsemi og samúð annarra þá sér Kristín fram á að geta haldið jól í ár. Öðruvísi gæti hún ekki haldið jól með fjölskyldu sinni. „Ég er bara orðlaus af þakklæti. Án þeirra væri þetta ekki hægt.“ Kristín var ein þeirra sem komu að stofnun Facebook-síðunnar Jólakraftaverk fyrir nokkrum miss- erum og átti þá þátt í því að styðja við bakið á öðrum með matargjöf- um og styrkjum. Hún trúir því að hún sé að fá það til baka núna. „Fyrr í haust fékk ég lamba- skrokk á ódýru verði frá vinkonu minni og hugsaði þá með mér að það væru svo margir í sömu stöðu og ég og myndu glaðir vilja fá lambalæri og hrygg um jólin. Þannig að ég gaf nokkrum öðrum af skrokknum og tveimur dögum seinna fékk ég gefins þessa sumar- bústaðarferð. Svona virkar karma. Íslendingar geta verið svo kær- leiksríkir.“ „Ég fékk síðan 50 þúsund króna styrk frá einni konu og get því keypt jólagjafir fyrir börnin. Vinkona mín hefur síðan boðist til að gefa mér 20 þúsund krónur. Ég get ekki ann- að en grátið af gleði. Án þeirra gæti ég ekki haldið jól. Það verða pakkar og jólabíómyndir og kósíkvöld. Þau vita að jólin snúast ekki bara um pakkana heldur það að vera saman og eiga góðar stundir.“ Mörg heimili sem berjast í bökkum „Þetta er auðvitað erfitt fyrir börn- in en þau skilja þetta. Þetta er eig- inlega erfiðast fyrir mig. Þegar þú getur ekki gefið börnunum þínum það sem þau vilja helst í jólagjöf þá líður þér eins og þú sért að bregð- ast þeim. Ég vildi að ég gæti bara sleppt jólunum og þyrfti ekki að pína mig á hverjum degi.“ Sigrún Dóra Jónsdóttir er fjögurra barna einstæð móðir og öryrki sem búsett er á Suðurnesj- um. Hún skildi við eiginmann sinn árið 2016 og hefur undanfarin misseri barist í bökkum fjárhags- lega. Þannig hefur hún nýtt sér öll þau úrræði og aðstoð sem í boði er: félagsþjónustu, barnaverndar- yfirvöld og kirkjuna. Hún flutti nýverið í enn eitt leiguhúsnæðið með börnin eftir mikinn barning á leigumarkaðnum. Kostnaður- inn við flutningana setti stórt strik í reikninginn og sér hún fram á af- skaplega fátækleg jól í ár. Hún býst við því að geta keypt í jólamatinn með gjafakorti hjá Nettó sem hún fær úthlutað frá Hjálpar- stofnun kirkjunnar. Þá styrkti yndis- leg kona Sigrúnu Dóru um 30 þús- und krónur nú á dögunum. „Þannig að ég ætti að geta keypt í matinn og eytt svo þessum örfáu krónum sem eftir eru til að kaupa gjafir. En þá er eftir allt hitt; fatnaður, gjafapapp- ír, skraut. Það er sama hversu ódýrt eða dýrt þú kaupir, þetta eru alltaf svakaleg útgjöld þegar þú þarft að velta fyrir þér hverri einustu krónu sem þú átt.“ Sigrún Dóra bendir jafnframt á að andstætt við það sem margir halda þá er ekki hlaupið að því fyr- ir hvern sem er að „fá bara lánað hjá mömmu og pabba“ eða „redda málunum“ með því að hækka yfir- dráttinn. „Ég get til dæmis ekkert bara keypt allt á Netgíró þegar ég er ekki með lánstraust. Það er fullt af fólki í sömu stöðu og ég. Það eiga ekkert allir ættingja sem geta bara lánað þeim og það er ekk- ert hægt að segja bara að mamma reddi þessu. Þetta er ekki svona einfalt. Tölurnar sem Fjölskylduhjálp gefur út sýna bara lítinn hluta þeirra sem eru í sárri neyð. Það eru miklu fleiri heimili sem eru að ströggla. Ég er búin að segja við börnin mín að það verði ekki gefnar dýr- ar jólagjafir í ár. Þau sætta sig við það en það er svo erfitt andlega að þurfa að segja þeim þetta. Ég svaf ekkert í nótt því það þyrmdi yfir mig út af þessu öllu.“ Hún bætir því við að börn- in hennar skilji aðstæðurnar. „En auðvitað finnst þeim þetta leiðin- legt. Sérstaklega af því að áður fyrr, þegar við höfðum það betra, þá fengu þau dýrar jólagjafir. Ég finn að ég er búin að keyra mig út og er alveg á mörkunum. Ég finn að það er að slökkna á mér, um leið og ég kem inn um dyrnar heima þá er ég hrædd um að ég muni brotna saman. En ég redda mér, ég geri það alltaf. Þessi jól koma, alveg sama hvað. Ég trúi á það góða í fólki og ég vil trúa að það sé til meira af góðu fólki en vondu fólki þarna úti.“ Hún hvetur fólk til þess að hugsa um náungann í jóla- mánuðinum og rétta öðrum hjálp- arhönd. „Það þarf svo lítið. Setja smá mat í poka eða lauma jólapakka undir tréð í Kringlunni. Við búum í stór- kostlegu samfélagi þar sem almenn- ir borgarar eru magnaðir. Með því að standa saman er allt hægt.“ Góðverkið borgaði sig Í tengslum við vinnslu greinar- innar talaði blaðamaður við Jón Heiðar Reynisson sem þekkir það af eigin raun að þurfa að treysta á gjafmildi annarra til að geta dregið fram lífið. Saga Jóns Heiðars end- ar hins vegar vel og er það í fyrsta skipti í ár sem hann sér fram á að geta haldið jól án aðstoðar. Jón Heiðar greindist með floga- veiki árið 1987 og hefur ekki getað haldist á vinnumarkaðnum vegna kastanna sem fylgja sjúkdómn- um. „Fjölskylduhjálpin og mæðra- styrksnefnd héldu hreinlega í mér lífinu í mörg ár. Án þeirra veit ég ekki hvað hefði orðið um mig. Áður en ég fór til þeirra þá lifði ég á tímabili á engu nema kaffi og sykri og var dottinn niður í 45 kíló. Ég hugsaði ekki um þetta sem ölmusu, í mínum augum var þetta það eina sem ég gat gert til að lifa af,“ segir Jón Heiðar, en hann vinn- ur í dag sem sjálfboðaliði hjá Fjöl- skylduhjálpinni. „Ég er að reyna að segja takk fyrir mig. Ég get ekki sagt það á neinn annan hátt.“ Fyrr í haust hafði Jón Heiðar náð að skrapa saman 30 þúsund krónum. Þá fékk hann það sterk- lega á tilfinninguna að þeim pen- ingum væri betur varið í þágu annarrar manneskju. Hann sendi alla peningana til konu í Dan- mörku sem hann vissi að átti ekki til hnífs og skeiðar. „Ég hafði ekki verið í miklum samskiptum við hana áður og ég veit ekki alveg af hverju ég fékk þetta svona á tilf- inninguna. Ég vissi að hún þurfti meira á þessu að halda en ég. Ég gerði þetta ekki með neinni eftirsjá enda er ég er viss um það að ef þú gerir einhverjum gott þá muntu fá það til baka. Nokkrum dögum síðar fékk hann hringingu frá Happdrætti Háskólans og var boðið að taka þátt. Hann var þá nýbúinn að leggja á dóttur sína í Danmörku. „Ég trúi á forlögin og ákvað í hvelli að ef það væri til ákveðið númer þá myndi ég nota það til áramóta. Það númer var ekki til þannig að ég lagði tölurnar saman og fékk þversummuna af því og bætti við aftast. Sú tala var til. Almættið var með Jóni Heiðari; hann vann 160 þúsund krónur út á númerið. Hann sér því fram á að geta haldið jól í ár. „Raunin er sú að þetta kom mér ekki á óvart. Ég trúi ekki á tilviljan- ir í þessu lífi þegar guð er annars vegar.“ n Aleigan er 251 króna „Mér finnst það slæmt að núna er bara ein stór úthlutun 20. des- ember. Sá matur á síðan að dreifast yfir öll jólin. Áður fyrr mátti koma aftur á milli jóla og nýárs og sækja mat. Þetta eru margir frí- dagar í röð þannig að ég skil ekki hvernig fólk á að fara að því að láta þetta endast. Ég er þó heppin og er boðið í mat hjá ættingjum á aðfangadagskvöld og gamlárskvöld. Þannig get ég get nýtt matargjafirnar hina dag- ana,“ segir önnur kona sem DV ræddi við í tengslum við vinnslu greinarinnar. Sú er einstæð móðir tveggja stúlkna en önn- ur þeirra glímir við mikla andlega fötlun og þroskaskerðingu. Konan er öryrki og býr í félagslegu húsnæði með dætrum sínum. „Ég veit ekki hvernig jólin verða núna. Ég á 251 krónu eftir og get ekki einu sinni leyst út nauðsynleg lyf fyrir dóttur mína. Maður reyn- ir það sem maður getur til að redda sér. Ég hef reynt að endurgefa til dæmis afmælisgjafir sem ég hef fengið. Og reynt að dreifa kaupunum, kaupa eina gjöf hér og eina gjöf þar. Svo tek ég þátt í öllum Facebook-leikjum sem ég finn og hef verið það heppin að vinna miða fyrir tvo á jólatónleika. Ég þurfti þá að gera upp á milli barn- anna og gat einungis boðið annarri þeirra með þar sem ég gat ekki keypt aukamiða. Hin fékk þó að fara á jólaball fatlaðra með skammtímavistuninni. Ég gat réttlætt þetta þannig.“ tvö þúsund mAnns þiggjA hjálp í ár „Þeir sem eru með lægstu framfærsluna geta einfald- lega ekki haldið jól nema með aðstoð frá hjálpar- samtökum,“ segir Ásgerður Jóna Flosadóttir, formaður Fjölskylduhjálpar Íslands. Í Reykjavík fer jólaúthlutun til einstaklinga fram þann 18. desember og 20. desember til fjölskyldna. Í Reykjanes- bæ fer úthlutun fram 22. desember. Ásgerður kveðst gera ráð fyrir að rúmlega tvö þúsund einstaklingar muni njóta góðs af jólaúthlutun Fjölskyldu- hjálparinnar í ár. Þar af eru rúmlega þúsund fjölskyldur. Hún segir að um svipaðan fjölda sé að ræða nú í ár og í fyrra. „Ég get ekki séð að þessi tala fari eitthvað lækkandi. Einhverjir detta út og þá koma aðrir í staðinn. Stærsti hópurinn er öryrkjar með fjöl- skyldu. Einstæðir feður og mæður og svo eldri borgarar,“ segir Ás- gerður og bætir við að ungt fólk í lægstu launaflokkunum sæki sér einnig aðstoð í stórum mæli. „Við erum með mat fyrir aðfangadagskvöld. Óreyktan úrbeinað- an svínahnakka. Síðan er það allt meðlæti, sykur, hveiti, sulta, an- anasbitar, gos, kaffi, grænmeti, kartöflur og kex. Síðan erum við með 1.300 miða frá Subway sem við munum gefa fólki á meðan birgðir endast. Við getum ekki verið með mat fyrir ann- an í jólum og gamlárskvöld. Við höfum einfaldlega ekki bolmagn í það.“ Lokað var fyrir umsóknir um jólaúthlutun í lok nóvember en Ásgerður segir að enn sé mikið hringt og spurt. „Okkur finnst leiðinlegt að geta ekki sagt já við alla þá sem ekki sóttu um á rétt- um tíma en við getum ekki annað en bent á að fólki hafði tíu daga til að sækja um. Að sjálfsögðu finnum við til með fólkinu. Við höf- um beðið þessa einstaklinga um að hringja aftur 21. desember og sjá hver staðan er. Við getum því miður ekki lofað því neinu.“ Hún segir marga í uppnámi þegar þeir leita til Fjölskylduhjálp- arinnar og margir gráti af skömm. Það sé þó ómetanlegt að finna fyrir þakklæti skjólstæðinganna. „Við höfum þó einnig upplifað það að einstaklingar sem leita hingað hreyta í okkur ókvæðisorðum, búnir að brynja sig upp og eru þjakaðir af skömm. Við tökum því ekki illa vegna þess að við skiljum þessar aðstæður.“ „Þau sætta sig við það en það er svo erfitt andlega að þurfa að segja þeim þetta. Ég svaf ekkert í nótt því það þyrmdi yfir mig.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.