Dagblaðið Vísir - DV - 15.12.2017, Side 13

Dagblaðið Vísir - DV - 15.12.2017, Side 13
Helgarblað 15. desember 2017 fréttir 13 Dags í samtali við DV fyrir helgi. Aðstandendur vilja ekki fullyrða að Dagur hafi verið að verjast árás en þeim finnst það þó ekki ólík- legt í ljósi sögu hans. Líkt og fyrr segir herma heimildir að Dagur beri fyrir sig sjálfsvörn en hann varð fyrir alvarlegri líkamsárás fyr- ir nokkrum vikum þar sem hóp- ur erlendra manna gekk í skrokk á honum. Í því samhengi er bæði talað um albanska eða pólska menn. Samkvæmt heimildum DV er þessi frásögn Dags einnig til skoðunar hjá lögreglu og ekkert útilokað í þeim efnum. Þá hefur lögreglan legið yfir myndböndum úr eftirlitsmyndavélum sem eru í nágrenni Austurvallar. Fjölskyldan þakkar þjóðinni En ef málið hefur reynt á aðstand- endur Dags, þá hefur það reynt enn meira á aðstandendur Klev- is. Þau hafa þurft að standa straum af miklum útgjöldum á sama tíma og þau glíma við mikla sorg. Um helgina greindi DV frá því að styrktarreikningur hafi verið stofn- aður svo unnt væri að flytja lík- ið til Albaníu og halda jarðarför þar. Klevis hafði dvalið á Íslandi í nokkra mánuði en hann kom frá Barcelona til Íslands í vor. Þá fór hann aftur til Barcelona í haust en kom aftur til landsins í nóvember. Aðstandandi Klevis sagði í samtali við DV í gær að söfnun- inni væri lokið þar sem söfnunin hafi náð markmiði sínu. Fjölskyld- an fór af landinu í gær. Þökkuðu þau fjölmiðlum og þjóðinni fyrir stuðninginn. „Það tókst að safnast bæði fyrir flutningnum til Albaníu og jarðar- förinni. Reikningurinn var einung- is stofnaður til að safna fyrir þessu og eins og áður sagði hefur tak- markinu verið náð. Bæði fjöl- skylda og vinir eru innilega þakk- lát, bæði fyrir umfjöllunina sem og íslensku þjóðinni fyrir hjálpina, þetta hefði aldrei tekist án ykkar,“ sagði aðstandandi Klevis. Minningarathöfn um Klev- is verður haldin þann 17. desem- ber klukkan 17.00 við Reykjavíkur- tjörn. Þar verður kveikt á kertum í minningu hans. n Hvað gerist fyrstu mínúturnar? Rannsókn lögreglu skiptist í tvo hluta, það er hin taktíska rannsókn sem snýst um yfirheyrslur, handtökur og ræða við vitni. Þá er það hlutur tæknideildar sem í árásarmálum snýst um að leita lífsýna. Þeir fram- kvæma réttarlæknisfræðilega skoðun á meintum geranda og þolanda. Þá er óskað eftir áverkavottorði á slysasdeild eða frá lækni. Í morðmáli eða öðrum alvarlegum atburðum eru kallaðir til sérfróðir lögreglumenn. Annars vegar tæknideildarmenn sem rannsaka vettvang og svo rannsóknarlögreglumenn sem vinna ásamt almennum lögreglumönnum að rannsókn málsins. Á meðan beðið er eftir að hinir sérfróðu lögreglumenn mæti á vettvang er það hlutverk almennrar lögreglu að vernda vettvanginn og koma í veg fyrir að sönnunargögn spillist. Í upphafi beinist rannsókn að því að hafa uppi á sakborningi og vitnum og skrá allt niður. Síðan er vettvangurinn verndaður og leitað eftir öllum mögulegum sönnunargögnum sem þar kunna að finnast. Á vettvangi annast tæknideild alla tæknirannsókn, ljósmyndun og sýnaöflun og annað. Öll vett- vangsvinna er í þeirra höndum. Þá er einnig farið yfir upptökuvélar í hverfinu og óskað eftir að fá upptök- ur úr símum frá mögulegum vitnum. Klevis Sula Klevis var aðeins tvítugur þegar hann lést. Dagur Hoe Sigurjónsson Er grunaður um að hafa stungið Klevis Sula í hjartað á Austurvelli. m y n d g a r p u r i. e lí sa b et a r s o n

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.