Dagblaðið Vísir - DV - 15.12.2017, Side 14
14 Helgarblað 15. desember 2017fréttir
R
áðherrar síðustu ríkis-
stjórnar úthlutuðu rúm-
lega 17 milljónum af
skúffufé sínu til ýmissa
mála það sem af er þessu ári.
Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfa-
dóttir ferðamála-, iðnaðar- og
nýsköpunarráðherra, var gjaf-
mildasti ráðherrann, en hún
úthlutaði alls 3,3 milljónum
króna. Guðlaugur Þór Þórðar-
son, Sigríður Á. Andersen og
Jón Gunnarsson úthlutuðu engu
skúffufé og rennur féð því aftur í
ríkissjóð.
Hinsegin dagar 2017 fengu
stuðning frá sex af ellefu ráð-
herrum, nam stuðningur-
inn samtals 1.350.000 krónum,
hæsta upphæðin til Hinsegin
daga kom frá Þorsteini Víglunds-
syni félagsmálaráðherra, eða
350.000 krónur. Bjarni Bene-
diktsson forsætisráðherra gaf
fyrir minnstu upphæðirnar, gaf
hann meðal annars Íþróttasam-
bandi lögregluþjóna og Orator,
félagi laganema við Háskóla Ís-
lands 30 þúsund krónur í styrk.
Þorsteinn Víglundsson var gjaf-
mildastur, en hann gaf Hugarafli
og söfnunarátakinu „Á allra vör-
um“ eina milljón í styrk.
Ríkisstjórn Sjálfstæðisflokks,
Viðreisnar og Bjartrar framtíðar
var slitið kvöldið 14. september
síðastliðinn. Áður en ríkisstjórn-
inni var slitið höfðu ráðherrarn-
ir samanlagt útdeilt rúmlega 8,5
milljónum króna. Nú þegar rík-
isstjórnin hefur lokið störfum og
ný tekin við kemur í ljós að ríkis-
stjórnin notaði alls 17,5 milljón-
ir króna af skúffufénu, eða rúm-
lega 9 milljónum króna eftir að
ríkisstjórninni var slitið.
Björt tæmdi nánast skúffuna
Ríkisstjórnin í ár er ekki jafn gjaf-
mild og ríkisstjórn Sjálfstæðis-
flokks og Framsóknarflokks sem
útdeildi 31 milljón á árinu 2016 og
alls 118 milljónum króna á kjör-
tímabilinu 2013 til 2016. Ráðherr-
ar hafa samanlagt úr 40 milljón-
um króna úr að moða á ári, engar
samræmdar reglur eru í gildi um
hvernig úthluta á þessu fé. Ráð-
herrarnir hafa þó ekki allir sömu
upphæðina til að deila út, Krist-
ján Þór Júlíusson hafði á síðasta
kjörtímabili 6 milljónir króna.
Þórdís Kolbrún R. Gylfadóttir og
Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir
höfðu 4,4 milljónir hvor. Sigríður
Á. Andersen og Jón Gunnarsson
höfðu 3,75 milljónir hvort. Guð-
laugur Þór Þórðarson hafði 3,5
milljónir í utanríkisráðuneytinu.
Óttarr Proppé og Þorsteinn
Víglundsson höfðu 3,4 milljónir
hvor. Björt Ólafsdóttir og Bene-
dikt Jóhannesson höfðu 2,8 millj-
ónir hvort og Bjarni Benedikts-
son 2,5 milljónir. Björt komst
næst því að tæma skúffuna, en
það munaði rétt rúmlega 10 þús-
und krónum. n
n Úthlutuðu 17,5 milljónum á síðasta kjörtímabili n Björt tæmdi næstum skúffuna
Úthlutuðu 9 milljónum af
skúffufé eftir stjórnarslit
Ari Brynjólfsson
ari@pressan.is
Kristján Þór Júlíusson
fyrrverandi mennta- og
menningarmálaráðherra
n Elfar Logi Hannesson, leiklistarhátíðin
Act alone. 200.000 kr.
n Hollvinafélag Húna II, viðhald og varð-
veisla. 500.000 kr.
n Önnur verkefni: kr. 550.000
Fyrir stjórnarslit: kr. 1.200.000
Samtals: kr. 1.250.000
Benedikt Jóhannesson
fyrrverandi fjármála- og efnahagsráðherra
n Reykjavík Runway, kynning á íslenskri
hönnun kr. 100.000
n Vinir Árnastofnunar kr. 500.000
n Á allra vörum, styrktarsjóður. Kvenna-
athvarfið. kr. 500.000
n Önnur verkefni kr. 650.000
Fyrir stjórnarslit: kr. 450.000
Samtals: kr. 1.750.000
Björt Ólafsdóttir
fyrrverandi umhverfis- og auðlindaráðherra
n Kvikmyndahátíð í Reykjavík/Stockfish
Film Festival kr. 350.000
n Ólafur Sveinsson, vegna dagskrár í tilefni
10 ára afmælis Kárahnjúkavirkjunar kr.
300.000
n Reykjavík Runway, kynning á hönnun í
New York kr. 200.000
n Einar Karl Jónsson, samstarfsverkefnið
Jaki kr. 500.000
n Hjartavernd, umhverfisvæn frystitækni
kr. 500.000
n Á allra vörum, gerð auglýsinga um akstur
utan vega kr. 39.400
n Önnur verkefni: kr. 950.000
Fyrir stjórnarslit: kr. 950.000
Samtals: kr. 2.789.400
Bjarni Benediktsson
fyrrverandi forsætisráðherra
n Einstök börn, stuðningsfélag. Styrkur til
að styðja við fjölskyldur barna með sjald-
gæfa sjúkdóma kr. 50.000
n Orator, félag laganema. Styrkur vegna
útgáfu hátíðarrits kr. 30.000
n Íþróttasamband lögreglumanna. Styrkur
átaksins „eftir einn ei aki neinn“ kr. 30.000
n Hjartaheill, landssamtök hjartasjúklinga
kr. 50.000
n Önnur verkefni: kr. 450.000
Samtals: kr. 610.000
Þórdís K. R. Gylfadóttir
ferðamála-, iðnaðar- og nýsköpunarráðherra
n Síðasta haustið. Styrkur vegna heimilar-
myndar kr. 400.000
n Sýsla ehf., útgáfa spilsins My country kr.
300.000
n Ævintýrakistan. Útvarpsleikrit kr. 200.000
n Samtök atvinnulífsins, hvatningarverðlaun
jafnréttismála kr. 200.000
n Tímarit Lögréttu, útgáfa tímarits kr. 100.000
n Orator, félag laganema. Norrænt sam-
starf kr. 100.000
n Önnur verkefni: kr. 1.530.000
Fyrir stjórnarslit: kr. 2.200.000
Samtals: kr. 2.830.000
Þorgerður Katrín
Gunnarsdóttir
fyrrverandi sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra
n Skákfélagið Hrókurinn, Skákhátíð í Árnes-
hreppi kr. 300.000
n Ljósmál. Heimildarmynd kr. 300.000
n Rakel Garðarsdóttir, þátttaka á ráðstefn-
unni World Food Summit í Kaupmannahöfn
kr. 150.000
n Hjólafærni á Íslandi, hjólaviðgerðir með
hælisleitendum kr. 50.000
n Félag heyrnarlausra, vegna starfsemi
félagsins kr. 150.000
n WSI GBP 2200 kr. 301.202
n Önnur verkefni: kr. 1.200.000
Fyrir stjórnarslit: kr. 1.450.000
Samtals: kr. 2.651.202
Þorsteinn Víglundsson
fyrrverandi félags- og jafnréttismálaráðherra
n Á allra vörum kr. 1.000.000
n Hugarafl kr. 1.000.000
n Stígamót kr. 220.000
n Önnur verkefni: kr. 600.000
Fyrir stjórnarslit: kr. 350.000
Samtals: kr. 2.820.000
Óttarr Proppé
fyrrverandi heilbrigðisráðherra
n Félag heyrnarlausra, vegna greiningarvinnu
um geðheilbrigði heyrnarlausra kr. 200.000
n Félag fagfólks um átraskanir v/norrænnar
ráðstefnu á Íslandi kr. 200.000
n Vinaskákfélagið v/starfs í þágu fólks með
geðraskanir kr. 250.000
n Önnur verkefni: kr. 2.105.000
Fyrir stjórnarslit: kr. 1.255.000
Samtals: kr. 2.755.000
Óhressir með fréttaflutning Kastljós tók saman upplýsingar
um ráðstöfunarfé ráðherra sumarið 2007 og fékk á sig nokkra gagn-
rýni. Þar kom fram að ráðherrar hefðu margir hverjir tæmt skúffurnar
í eigin kjördæmum fyrir kosningarnar 2007. Össur Skarphéðinsson
sendi Kastljósi kaldar kveðjur í bloggfærslu seint á laugardagskvöldi í
júlí og sagði fréttamennina „djúpkafara í skandalaleit“. Björn Bjarna-
son var ósáttur við að ráðstöfunarféð væri kallað skúffufé og sagði
þá nafngift gefa til kynna að um eitthvert pukur væri að ræða.“
Dældi úr skúffunni á síðasta deginum í ráðuneytinu
Gunnar Bragi Sveinsson, þáverandi utanríkisráðherra Fram-
sóknarflokksins, úthlutaði 950 þúsund krónum af skúffufé á síð-
asta degi sínum í utanríkisráðuneytinu í apríl 2014. Daginn eftir
tók hann við embætti sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra.
Styrkti hann meðal annars þjóðdansahóp, leikhús á Ísafirði og
Landgræðsluna.
Árni Johnsen fékk fé til kvikmyndagerðar Í byrjun
árs 2016 fékk Árni Johnsen, fyrrverandi þingmaður Sjálf-
stæðisflokksins, styrk frá tveimur ráðherrum Framsóknar-
flokksins vegna kvikmyndaverkefnis á Grænlandi. Árni John-
sen vildi ekki gefa upp hver stæði að þessu verkefni með
honum á sínum tíma. Kvikmynd Árna er ekki komin út.
Ætlaði að geyma skúffufé fyrir næsta ráðherra Sigrún Magn-
úsdóttir, þáverandi umhverfisráðherra Framsóknarflokksins, útdeildi
styrkjum fyrir 350 þúsund krónur á síðustu dögum ársins 2016. Fyrir
áramót hafði hún sagt að hún ætlaði að geyma skúffufé fyrir næsta
ráðherra en þar sem stjórnarmyndunarviðræður drógust á langinn hafi
hún ákveðið að deila út fénu þar sem ný heimild tæki gildi um áramótin.
Umdeilt skúffufé