Dagblaðið Vísir - DV - 15.12.2017, Qupperneq 26
26 sport Helgarblað 15. desember 2017
A
lfreð Finnbogason fram-
herji Augsburg í Þýska-
landi er stutt frá mögn-
uðu afreki. Framherjinn
hefur iðulega raðað inn mörkum
þar sem hann hefur spilað og hjá
Augsburg í Þýskalandi hefur fram-
herjanum gengið vel innan vall-
ar. Alfreð vantar nú aðeins fimm
mörk til að verða markahæsti
leikmaður Augsburg í sögu efstu
deildar í Þýskalandi. Alfreð hefur
skorað 18 mörk fyrir félagið í þýsku
úrvalsdeildinni en Tobias Werner
skoraði 23 mörk en í 127 leikjum.
Alfreð hefur skorað sín 18 mörk í
42 leikjum. Ef fram heldur sem
horfir mun Alfreð bæta þetta met
og þá verður hann markahæsti
leikmaður efstu deildar hjá tveim-
ur félögum. Alfreð varð nefnilega
markahæsti leikmaður í sögu efstu
deildar hjá Heerenveen í Hollandi
þegar hann lék þar, Alfreð raðaði
inn mörkum í Hollandi, þar skor-
aði hann 53 mörk í 62 leikjum í
hollensku úrvalsdeildinni. Afar
ólíklegt er að því meti Alfreðs verði
haggað á næstu árum, hann gæti
því orðið markahæsti leikmaður í
sögu tveggja félaga, þegar kemur
að mörkum í efstu deild.
Fæddur markaskorari
Alfreð hefur alltaf skorað á ferli
sínum, á yngri árum sínum rað-
aði Alfreð inn mörkum fyrir Fjölni
og síðan Breiðablik en þangað fór
hann í 3. flokki. Alfreð fékk tæki-
færi með Breiðabliki þegar hann
var 18 ára gamall og leit nán-
ast aldrei um öxl. Hann skoraði
28 mörk í 43 leikjum fyrir Breiða-
blik í efstu deild. Framherjinn
vakti áhuga margra stærri liða úti í
heimi og að lokum samdi hann við
Lokeren í Belgíu. Þar gekk brös-
uglega og Alfreð hélt til Svíþjóðar
þar sem hann raðaði inn mörkum,
Alfreð var á láni hjá Helsingborg í
nokkra mánuði.
Sló í gegn í Hollandi
Alfreð hélt þaðan til Hollands og
samdi við Heerenveen, strax frá
fyrsta degi raðaði Alfreð inn mörk-
um fyrir Heerenveen og skoraði
hann 0,85 mark að meðaltali í leik.
Þar skrifaði Alfreð sig í sögubæk-
ur Heerenveen, en á tveimur árum
varð hann markahæsti leikmað-
ur félagsins í sögu hollensku úr-
valsdeildarinnar. Alfreð tók skref
til Spánar sem gekk ekki upp og
hjá Olympiakos í Grikklandi fékk
hann fá tækifæri.
Gengur vel í Þýskalandi
Eftir brösuglegan tíma fór Alfreð í
þýsku úrvalsdeildina sem er ein af
þeim sterkari sem hægt er að spila
í, Alfreð hefur staðið sig vel með
Augsburg og væri líklega orðinn
markahæsti leikmaður félagsins í
þýsku úrvalsdeildinni ef ekki væri
fyrir meiðsli, meiðslin settu stórt
strik í reikning Alfreðs á síðustu
leiktíð þar sem hann missti út stór-
an hluta. Framherjinn hefur hins
vegar verið frábær á þessu tímabili
og er á meðal markahæstu leik-
manna í þýsku úrvalsdeildinni
það sem af er tímabilinu.
Sá ekki þennan markahrók
Pétur Pétursson var þjálfari Al-
freðs þegar hann var að stíga upp
hjá Breiðabliki, Pétur, sem gam-
all markaskorari, sá ekki þennan
markaskorara í Alfreð en bjóst við
að hann myndi ná langt. „Fyrsta
sem maður tók eftir með Alfreð
var hversu ótrúlega góður hann
er að lesa leikinn, hann var nán-
ast alltaf á réttum stað, það átti
ekki bara við í færunum held-
ur í öllum leiknum. Hann fer svo
hægt og rólega að verða þessi
markaskorari sem hann er í dag,“
sagði Pétur við DV um þennan
öfluga framherja.
,,Ég ætla ekkert að ljúga því
að maður sá það ekki fyrir sér að
hann yrði þessi markahrókur hvar
sem hann myndi stíga niður fæti,
maður átti frekar von á því að
hann væri leikmaður sem myndi
leggja upp mikið af mörkum. Bæði
hjá Heerenveen og Augsburg hef-
ur hann spilað sem fremsti mað-
ur á vellinum, ég átti alltaf von á
því að hann yrði í því hlutverki að
spila fyrir aftan framherja. Hann er
rosalega rólegur í færunum, hann
er yfirvegaður karakter bæði inn-
an og utan vallar."
Fljótur að aðlagast
Alfreð hefur farið víða á ferli sín-
um, hann hefur vakið athygli fyrir
það hversu fljótur hann er að kom-
ast inn í hlutina. „Það hefur ekki
komið mér á óvart hversu vel hon-
um hefur vegnað, hann hefur verið
að velja rétt lið á sínum ferli. Hann
tók skref til Spánar og Grikklands
sem gengu ekki upp, hann var hins
vegar klókur þegar hann fór til Sví-
þjóðar og Hollands. Ég var svo ekk-
ert viss um að þetta Augsburg-skref
væri rétt fyrir hann, Alfreð er hins
vegar þannig týpa að hann kemur
manni alltaf á óvart. Hann er svo
ótrúlega fljótur að aðlagast nýjum
kúltúr, margir leikmenn lenda í
vandræðum þar en Alfreð er fljótur
að komast inn í hlutina og tungu-
málið. Það hjálpar honum mikið.“
Hvað gerir Alfreð
að góðum framherja?
Launahæstu leikmenn í heimi
eru þeir sem skora mörk, Alfreð
er því dýrmætur leikmaður. Hvað
gerir hann að góðum framherja
að mati Péturs? „Þegar hann er
að spila sem fremsti maður, þá
er hann alltaf á leið að markinu.
Hann finnur réttar staðsetningar,
þegar hann er með leikmönnum
sem þekkja inn á hann þá vita þeir
hvar hann er. Þeir finna sendingar
á hann, Alfreð er ekki að sóla tíu
leikmenn og skora. Hann er að fara
að komast í gegn með sendingum
og klára færin fljótt, hann er ekta
markaskorari. Hann er alltaf með
sjálfstraust í sínum leik, þú verður
að hafa það sem framherji.“
Mikilvægur hlekkur í landsliðinu
Alfreð hefur verið lykilmaður í ís-
lenska landsliðinu síðustu árin en
hlutverk hans hefur orðið stærra eft-
ir að Kolbeinn Sigþórsson meiddist.
Alfreð hefur skorað 11 mörk í 45
landsleikjum en hann var dugleg-
ur að minna á sig í undankeppni
Heimsmeistaramótsins þar sem Ís-
land tryggði sig inn á HM í Rússlandi.
Framherjinn verður í stóru hlutverki
þegar Ísland fer á Heimsmeistara-
mótið, þar sem stáltaugar þarf til að
skora mörk, þær hefur Alfreð. n
Magnaður
Markaskorari
n Alfreð markahæsti leikmaður í sögu Heerenveen
n Nálgast sama afrek með Augsburg í Þýskalandi
Hörður Snævar Jónsson
hoddi@433.is
Mörk Alfreðs
í efstu deild
Leikir Mörk
2007–2010 Breiðablik 43 (28)
2011–2012 Lokeren 22 (4)
2011 Helsingborg (Á láni) 17 (12)
2012–2014 Heerenveen 65 (53)
2014–2016 Real Sociedad 23 (2)
2015–2016 Olympiakos (Á láni) 7 (1)
2016 - FC Augsburg 42 (18)
Öflugur Alfreð
Finnbogason er fæddur
árið 1989 en hann er
mikilvægur hlekkur í
íslenska landsliðinu
sem er á leið á
Heimsmeistaramótið í
Rússlandi. Mynd Getty