Dagblaðið Vísir - DV - 15.12.2017, Síða 36
Helgarblað 15. desember 2017KYNNINGARBLAÐMúlinn
Híbýlaprýði frá
öllum heimshornum
Seimei, Síðumúla 13
Húsgögnin eru flest sérpöntuð. Við erum með mikið úrval af áklæðum og litum, þannig að
hver og einn getur fengið lit og efni
við sitt hæfi og sinn smekk,“ segir
Guðrún Sólonsdóttir, eigandi versl-
unarinnar Seimei sem býður upp
á fallega hluti fyrir heimilið, allt frá
hnífapörum upp í stofusófa. úrvalið
er fjölbreytt en framboðið er í takt við
það vinsælasta núna með áherslu á
gyllt og mjúka liti.
„Þetta er nokkuð klassískt útlit en
um leið í anda þess sem er vinsælt í
dag. Flauel og stungið er vinsælt og
litir eru inni í dag. einnig erum við með
mikið úrval af mottum. allar mottur
sem við flytjum inn eru handgerðar
og meðal annars kaupum við pers-
neskar mottur frá teppasala í Beirút
sem við þekkjum vel og þær eru sér-
valdar fyrir okkur. Flestar persnesku
motturnar eru „vintage“ mottur, þá er
ég ekki að meina að þær séu notaðar
heldur ofnar fyrir allt að 80 árum og
því með náttúrulegum litum, það er
ekki sjálfgefið með mottur sem eru
ofnar í dag. Síðan erum við með tyrk-
neskar „over-dyed“ mottur, þ.e. þetta
eru eldri mottur sem eru steinþvegn-
ar og síðan litaðar sterkum litum,“
segir Guðrún, sem einnig býður upp á
Beni Ourain mottur frá marokkó sem
eru oftast hvítar með svörtu mynstri.
að sögn Guðrúnar eru motturnar
og sófarnir með vinsælustu vörum í
hennar verslun en einnig eru lampar
með fallegri gyllingu afar vinsælir.
„Við erum aðallega með tvo birgja
í húsgögnum. Bólstruðu húsgögnin
koma frá stóru fyrirtæki sem heit-
ir Ndesign. Þeim er mjög annt um
orðspor síns vörumerkis og húsgögnin
eru einstaklega vönduð.“
„Síðan erum við með borðstofu-
borð og sófaborð úr acacia-við frá
Filippseyjum en smávaran okkar kem-
ur víðs vegar að, það eru til dæmis
körfur frá Víetnam og mikið úrval af
vönduðum hnífum frá Japan sem við
erum afskaplega ánægð með.“
Guðrún segir markmiðið ávallt að
velja það besta í hverjum vöruflokki
og hún eyðir miklum tíma í að rækta
upp gott samband við vandaða
birgja.
Seimei var áður vefverslun og er
það enn. Hægt er að kaupa vörur í
gegnum vefsíðuna seimei.is en síðan
er falleg verslun með þessu nafni
að Síðumúla 13. Vefverslunin sendir
hvert á land sem er, líka húsgögn.
„Við opnuðum í október í Síðumúl-
anum og kunnum afar vel við okkur
þar. Ég tel það stóran kost að hér eru
margar verslanir af svipuðum toga.
Það er meiri styrkur í því en að vera
einhvers staðar einn,“ segir Guðrún.
Óhætt er að mæla með heimsókn í
Seimei í Síðumúla 13 eða að skoða
vefsíðuna seimei.is fyrir alla sem hafa
áhuga á að fegra heimilið.