Dagblaðið Vísir - DV - 15.12.2017, Page 43
Helgarblað 15. desember 2017 KYNNINGARBLAÐ Múlinn
Góður í verði, úrvali
og stærðum
Herra Hafnarfjörður og Mind fyrir konur
Gunnar Már Levísson hefur rekið Herra Hafnarfjörð í verslun-armiðstöðinni firði Hafnarfirði
í 23 ár. Verslunin heitir í dag Herra
Hafnarförður og Mind fyrir konur en
seinni hluti nafnsins vísar til öflugrar
dömudeildar sem hefur bæst við.
Margt hefur breyst á 23 árum í fata-
verslun en gunnar Már heldur sínu
striki og verslunin er alltaf jafn vinsæl.
„Vefsala hefur aukist gífurlega og hún
höfðar til unga fólksins. reyndar stíla
ég meira á aldurinn 25 ára og upp
úr, breiðan aldur en kannski ekki á
yngstu aldurshópana,“ segir gunnar.
Breitt úrval af flottum fötum er í
versluninni. „Þetta kemur mikið frá
London, París og danmörku. Menn
eru töluvert að kaupa sér jakkaföt og
staka jakka núna í desember, þetta er
svona allt í bland. rifnar gallabuxur
eru enn inni, þær eru dálítið retro,“
segir gunnar.
kvennadeildin – Mind fyrir konur –
býður upp á mikið úrval af stærðum
og er töluvert af fötum í stærri núm-
erum, sem mælist vel fyrir.
„joggingpeysur og joggingbuxur
eru líka mjög vinsælar hjá strákun-
um. en svo eru líka alltaf einhverjir
sem vilja vera fínir, í jakkafötum með
slaufu og í frakka,“ segir gunnar.
Hann segir að stór hluti viðskiptavina
sinna séu fastakúnnar sem hafi komið
til hans lengi. „en það koma alltaf
nýjar kynslóðir og oft koma feður
og synir saman. Í kvennadeildinni
eru þetta oft ömmur, mömmur og
mæðgur að versla saman.“
gunnari gengur vel í verð-
samkeppninni. „Ég hef alltaf verið
talinn mjög góður í verði. Það geri ég
með því að spara kostnað og yfir-
byggingu. Ég er alltaf í búðinni sjálfur
og ég fer í innkaupaferðir til útlanda
í hverjum mánuði og þá þarf ekki
að borga neinum milliliðum. Þessi
kostnaðarsparnaður skilar sér síðan
beint í lægra verði.“
Sem fyrr segir fer gunnar reglu-
lega til útlanda að kaupa inn því
hann vill ekki panta föt að utan
rafrænt: „Ég vil geta þreifað á efninu.
Mér gengur líka vel að díla um gott
verð hjá birgjunum.“
Það hefur verið feikilega mikið að
gera í versluninni í jólamánuðinum.
frá og með næsta mánudegi hefst
jólaopnunin hjá Herra Hafnarfirði en
frá og með þeim degi verður opið frá
10 til 10 í versluninni. „Það er alltaf
fjör í firði,“ segir gunnar Leví, sem
mun eins og vanalega standa vakt-
ina í Herra Hafnarfirði alveg fram að
jólum.