Dagblaðið Vísir - DV - 15.12.2017, Síða 44
44 Helgarblað 15. desember 2017
Ráðgátan
um fæturna
Yfirvöld í Bresku Kólumbíu
í suðvesturhluta Kanada
klóra sér nú í kollinum eftir
að enn einn mannsfóturinn
skolaði á land þar á dögun
um. Frá árinu 2007 hafa
þrettán fætur, oftar en ekki
klæddir hlaupaskóm, skolað
á land.
Þetta gerðist nú síðast í
vikunni þegar maður var í
göngutúr með hundi sín
um á Vancouver Island.
Snemma árs 2016 fundust
tveir fætur, af sama einstak
lingi, skammt frá.
Lögreglu hefur ekki tekist
að bera kennsl á þá einstak
linga sem um ræðir en í
fyrstu var jafnvel óttast að
raðmorðingi gengi laus.
Lögregla telur að það sé úti
lokað og lætur að því liggja
að umræddir einstaklingar
hafi látist af slysförum eða
svipt sig lífi.
Sonur Sáms á
leið í aðgerð
David Berkowitz, sem hélt
íbúum New York í heljar
greipum á áttunda áratug
liðinnar aldar, þarf að gang
ast undir hjartaaðgerð.
Berkowitz, sem er 64 ára,
var dæmdur í ævilangt fang
elsi fyrir að myrða sex kon
ur og særa sjö manns árið
1976. Fórnarlömb sín valdi
hann af tilviljun en David
gekk undir nafninu Son of
Sam, eða Sonur Sáms.
David dvelur nú á spít
ala en þarf að gangast undir
aðgerð. Hann getur sótt um
reynslulausn næst í maí
mánuði og hefur síðan hann
var dæmdur lýst iðrun á
gjörðum sínum.
28 er sá fjöldi einstaklinga sem bandaríski fjöldamorðinginn Dean Corll var talinn hafa myrt. Dean myrti fórnarlömb sín, yfirleitt unga drengi, á árunum 1970 til 1973. Meðreiðarsveinn hans, Elmer
Henley, skaut Dean til bana árið 1973 og þá komst upp um skuggalega fortíð
þeirra félaga.
L
augardagskvöldið 21. júní
árið 1980 fór hin þrettán ára
gamla Suzanne Bombardier,
alltaf kölluð Suzie, heim til
systur sinnar til að passa frænkur
sínar. Þetta var fallegt sumarkvöld
í borginni Antioch í Kaliforníu
og Suzie var full tilhlökkunar fyr
ir sumrinu; hún hafði nýlokið átt
unda bekk, var vinmörg og með
sína drauma.
Ekki í sófanum
Eldri systir Suzie, Stephanie
Mullen, hafði fengið litlu systur sína
til að passa börnin sín þetta kvöld.
Sjálf var hún á næturvakt og þegar
hún kom heim um fjögurleytið
þessa örlagaríku nótt bjóst hún við
að finna Suzie sofandi í sófanum.
En eitthvað var ekki eins og það átti
að vera og Suzie var ekki í sófan
um eins og hún var vön. Stephanie
yppti öxlum, var þreytt og bjóst ekki
við öðru en að hún væri hjá dætrum
hennar og fór því að sofa.
Horfin
Daginn eftir þegar Stephanie vakn
aði komst hún að því að Suzie var
hvergi sjáanleg í húsinu. Stephanie
taldi að hún hefði vaknað snemma
og farið fótgangandi þá tæpu tvo
kílómetra sem voru að heimili
móður hennar, Catharine og stjúp
föður, James Rotland. En Suzie
hafði ekki skilað sér heim og þegar
Catharine hringdi í Stephanie síð
ar þennan sama dag má segja að
Stephanie hafi brugðið illa; Suzie
hafði ekki sést síðan kvöldið áður
og virtist sem jörðin hafi hreinlega
gleypt hana. Taska, sem Suzie var
alla jafna með meðferðis, var enn á
heimili systur hennar.
Stungin og nauðgað
Lögreglu var strax gert kunnugt um
málið en eins og venja var á þess
um tíma hóf lögregla ekki form
lega leit fyrr en 24 klukkustund
ir voru liðnar frá hvarfinu. Leit bar
engan árangur til að byrja með en
föstudaginn 27. júní, tæpri viku eft
ir hvarfið, dundu ósköpin yfir. Lík
ungrar stúlku fannst í vík skammt
frá og áður en langt um leið fékk
fjölskyldan staðfestingu á því að
þarna væri lík Suzie komið fram.
Hún hafði verið stungin og bar þess
merki að hafa verið nauðgað áður
en henni var ráðinn bani.
Fjarvistarsönnun
Lögregla fór á fullt að rannsaka þetta
óhugnanlega morðmál og ræddi við
vini Suzie. Einn þeirra sem lögregla
beindi spjótum sínum að var ungur
drengur, Terry, að nafni. Terry þessi
var lítið eldri en Suzie og höfðu þau
átt í einhvers konar ástarsambandi,
eða eins langt og það nær hjá ung
mennum á þessum aldri. Terry var
með fjarvistarsönnun sem stóðst
og sömu sögu er að segja af öðr
um sem rætt var við í tengslum við
morðið.
Rannsóknin fjaraði út
Lögregla hafði á litlu að byggja
við rannsókn málsins. Engin aug
ljós ummerki voru um að brotist
hefði verið inn á heimili Stephanie
kvöldið sem Suzie hvarf, en flest
benti þó til þess að hún hefði ver
ið tekin gegn vilja sínum. Á þessum
tíma áttu nokkur ár eftir að líða þar
til lögregla gat farið að beita DNA
prófum við rannsókn sakamála
og þá virtist morðinginn hafa skil
ið eftir sig afar fá sönnunargögn.
Rannsóknin fjaraði hægt og rólega
út en lögregla var þó með augun
opin ef frekari upplýsingar myndu
berast.
Handtekinn 37 árum síðar
Víkur þá sögunni til dagsins í dag
því í vikunni fékk fjölskylda Suzie
þær fréttir sem hún hafði beðið
eftir í tæp 40 ár. Lögregla hand
tók á mánudag 63 ára karlmann,
Mitchell Lynn Bacom, sem grun
aður er um að hafa myrt Suzie.
Það sem kom lögreglu á sporið var
rannsókn á lífsýnum sem fundust
á líki Suzie árið 1980. Erfðaupp
lýsingar Mitchell voru til í gagna
grunni lögreglu og hafði hann
komist í kast við lögin vegna kyn
ferðisbrota og annarra glæpa. Árið
1981 var hann dæmdur í fangelsi
fyrir kynferðisbrot og aftur árið
2002. Áður en Suzie var numin á
brott og myrt, eða árið 1974, hafði
Mitchell verið dæmdur í fangelsi
fyrir nauðgun. Saksóknarar telja
sig hafa sig hafa gott mál í höndun
um og eiga ekki von á öðru en að
Mitchell verði sakfelldur. Lífsýni
sýna að hann var á staðnum þegar
Suzie hvarf og þegar hún var myrt.
Faðir Suzie, Ted, sagði ávallt
að Suzie hefði að líkindum þekkt
banamann sinn. Byggði hann það
á því að maðurinn hafði ekki brot
ist inn í húsið heldur hafi Suzie
opnað fyrir honum og hleypt hon
um inn af fúsum og frjálsum vilja.
Þetta reyndist á rökum reist því
Mitchell var kunnugur Suzie og
fjölskyldu hennar.
Mitchell er í haldi lögreglu
og á hann yfir höfði sér lífstíðar
fangelsisdóm. Lögregla kannar
nú hvort hann beri ábyrgð á fleiri
óupplýstum sakamálum á svæð
inu. n
Suzie passaði börn systur sinnar þegar óboðinn gestur kom í heimsókn
Sakamál
SkRímSLi
bankaR upp á
Handtekinn
37 ár liðu þar til
lögregla handtók
meintan morðingja
Suzie. Það gerðist í
vikunni.
Numin á brott Suzie var á fjórtánda
aldursári þegar hún var numin á brott
og myrt.