Dagblaðið Vísir - DV - 15.12.2017, Side 50

Dagblaðið Vísir - DV - 15.12.2017, Side 50
50 Helgarblað 15. desember 2017 Þeir Albert Eiríksson mat-reiðslumaður og Bergþór Pálsson baritónsöngvari, eru það sem Danir kalla „meget festlige fyrer“ og sem slíkir taka þeir jólahátíðinni fagnandi. Eru að sjálfsögðu búnir að koma upp skreytingum og tóku því vel á móti blaðakonu þegar hún innti þá eftir leiðbeiningum um hvernig mætti skreyta hátíðarborðið af sama list- fengi og þeir spúsar hafa löngum verið þekktir fyrir. „Mér finnst einfaldleikinn mik- ilvægur,“ útskýrir Bergþór. „Stund- um eru til dæmis skreytingar eða há kerti á miðju borði svo stór að fólk sér bara ekki manneskjuna sem situr á móti. Það gengur auð- vitað ekki,“ segir hann og hlær. Sjálfur málaði Bergþór þessa fal- legu jóladiska fyrir nokkrum árum. Hann valdi myndir af jólasveinun- um eftir Halldór Pétursson, en setti þá í gamla íslenska búninga og vandaði mjög til verksins: „Fyrir- myndirnar að klæðnaði jólasvein- anna hef ég frá Þjóðminjasafni Íslands.“ Á borðinu eru spariglös fyrir vín og vatn, eða gos, tvær tegundir af diskum og tvær af hnífapörum. Hnífapörunum er pakkað inn í sætar servíettur. Bergþór bendir á að nú sé nokkuð auðvelt að fá hugmyndir að fallegum servíettu- skreytingum á netinu. Það þurfi bara að „gúggla“ örlítið. Jarðarberin á miðju borðinu eru skemmtilega óvanalegt jólaskraut. Litirnir eru engu að síður mjög jólalegir og berin sjálf algjört hnossgæti en þetta er íslensk fram- leiðsla og uppskeran glæný. „Við fengum þetta hjá Silfur- túni á Flúðum, þar sem við vorum staddir í fyrradag. Nú kaupi ég bara íslenska framleiðslu, enda er hún mikiðm mikið betri,“ segir sælker- inn Albert. Ber í rommi Jólahefðir þeirra hjóna hafa verið breytilegar í þau tuttugu ár sem þeir Bergþór og Albert hafa búið saman en ein er þó alltaf í hávegum höfð: „Á aðfangadags- morgun förum við alltaf með pabba, Páli Bergþórssyni, keyrum út eitthvað lítið matarkyns til vina og ættingja og með fylgir vísa eftir pabba,“ segir Bergþór og lætur vísuna frá í fyrra fylgja með en þá gáfu þeir ber í rommi. Kannski er hægt að hugsa sér, er hækkar blessuð sólin, að ber í rommi bragðist þér bara vel um jólin. Jesús bauð ekki upp á jólasteik Að þessari hefð undanskilnni hafa aðrar hefðir þeirra Bergþórs og Al- berts að mestu ráðist af því hvenær Bergþór er að syngja en í mörg ár hefur hann t.a.m. sungið sama sálminn í danskri messu sem fer fram í Dómkirkj- unni klukkan þrjú á aðfangadag. Upp úr þessu hefur svo skapast spaugileg hefð milli barítónsins og tveggja kvenna sem sækja messuna árlega. „Þegar mér var falið þetta í fyrsta sinn þá vandaði ég mig auð- vitað sérstaklega við að ná danska framburðinum góðum. Fór meira að segja yfir í danska sendiráðið til að fá leiðsögn og lagði mig mikið fram. Einn sálmurinn er á þessa leið: Det kimer nu til julefest, Det kimer for den høje gæst, som steg til lave hytter ned, med nytårsga- ver, fryd og fred. Taldi mig bara nokkuð góðan – eða þar til tvær danskar dömur pikkuðu í mig að lokinni messu og bentu mér á, með sínum fína danska hreim, að vissulega hefði Jesús stigið niður til hinna fátæku en hann hafi þó aldrei boðið upp á steik. Æ síðan hefur það verið árlegur viðburður milli mín og þessara vinkvenna, að við kímum til hvert annars Bergþór Pálsson og Albert Eiríksson segja frá jólahefðum og leiðbeina með fallegar jólaskreytingar. Jesús bauð ekki upp á Jólasteik Margrét H. gústavsdóttir margret@dv.is „FEstligE FyrEr“ Bergþór og Albert eru miklir stemningsmenn og sem slíkir sérfróðir um veisluhöld. Þeir leggja upp úr því að jólaborðið sé snoturt og ekki ofhlaðið enda þurfi fólk að geta átt samskipi yfir borðið án þess að hverfa á bak við jólaskraut. Myndir Sigtryggur Ari grýlA, lEPPAlúði og jólAköttur inn Bergþór valdi myndir af jólasveinunum, Grýlu og Leppalú ða eftir Halldór Pétursson en lét fjölskylduna skipta um föt o g sótti fyrirmyndirn- ar á Þjóðminjasafn Íslands. EinFAldlEikinn stEndur Fyrir sínu Hreinn og fallegur líndúkur, jólasparistell og skemmtilegt brot á servíettum. Þetta dugar til að gefa góða jólastemningu við veisluborðið.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.