Dagblaðið Vísir - DV - 15.12.2017, Page 50
50 Helgarblað 15. desember 2017
Þeir Albert Eiríksson mat-reiðslumaður og Bergþór Pálsson baritónsöngvari,
eru það sem Danir kalla „meget
festlige fyrer“ og sem slíkir taka
þeir jólahátíðinni fagnandi. Eru
að sjálfsögðu búnir að koma upp
skreytingum og tóku því vel á móti
blaðakonu þegar hún innti þá eftir
leiðbeiningum um hvernig mætti
skreyta hátíðarborðið af sama list-
fengi og þeir spúsar hafa löngum
verið þekktir fyrir.
„Mér finnst einfaldleikinn mik-
ilvægur,“ útskýrir Bergþór. „Stund-
um eru til dæmis skreytingar eða
há kerti á miðju borði svo stór að
fólk sér bara ekki manneskjuna
sem situr á móti. Það gengur auð-
vitað ekki,“ segir hann og hlær.
Sjálfur málaði Bergþór þessa fal-
legu jóladiska fyrir nokkrum árum.
Hann valdi myndir af jólasveinun-
um eftir Halldór Pétursson, en setti
þá í gamla íslenska búninga og
vandaði mjög til verksins: „Fyrir-
myndirnar að klæðnaði jólasvein-
anna hef ég frá Þjóðminjasafni
Íslands.“
Á borðinu eru spariglös fyrir
vín og vatn, eða gos, tvær tegundir
af diskum og tvær af hnífapörum.
Hnífapörunum er pakkað inn í
sætar servíettur. Bergþór bendir
á að nú sé nokkuð auðvelt að fá
hugmyndir að fallegum servíettu-
skreytingum á netinu. Það þurfi
bara að „gúggla“ örlítið.
Jarðarberin á miðju borðinu eru
skemmtilega óvanalegt jólaskraut.
Litirnir eru engu að síður mjög
jólalegir og berin sjálf algjört
hnossgæti en þetta er íslensk fram-
leiðsla og uppskeran glæný.
„Við fengum þetta hjá Silfur-
túni á Flúðum, þar sem við vorum
staddir í fyrradag. Nú kaupi ég bara
íslenska framleiðslu, enda er hún
mikiðm mikið betri,“ segir sælker-
inn Albert.
Ber í rommi
Jólahefðir þeirra
hjóna hafa verið
breytilegar í þau
tuttugu ár sem þeir
Bergþór og Albert
hafa búið saman
en ein er þó alltaf
í hávegum höfð:
„Á aðfangadags-
morgun förum við
alltaf með pabba,
Páli Bergþórssyni,
keyrum út eitthvað
lítið matarkyns til
vina og ættingja
og með fylgir vísa
eftir pabba,“ segir
Bergþór og lætur
vísuna frá í fyrra
fylgja með en þá
gáfu þeir ber í
rommi.
Kannski er hægt að hugsa sér,
er hækkar blessuð sólin, að ber í
rommi bragðist þér bara vel um
jólin.
Jesús bauð ekki upp á jólasteik
Að þessari hefð undanskilnni hafa
aðrar hefðir þeirra Bergþórs og Al-
berts að mestu ráðist af því hvenær
Bergþór er að syngja en í mörg ár
hefur hann t.a.m.
sungið sama
sálminn í danskri
messu sem fer fram í Dómkirkj-
unni klukkan þrjú á aðfangadag.
Upp úr þessu hefur svo skapast
spaugileg hefð milli barítónsins og
tveggja kvenna sem sækja messuna
árlega.
„Þegar mér var falið þetta í
fyrsta sinn þá vandaði ég mig auð-
vitað sérstaklega við að ná danska
framburðinum góðum. Fór meira
að segja yfir í danska sendiráðið til
að fá leiðsögn og lagði mig mikið
fram. Einn sálmurinn er á þessa
leið: Det kimer nu til julefest, Det
kimer for den høje gæst, som steg
til lave hytter ned, med nytårsga-
ver, fryd og fred. Taldi mig bara
nokkuð góðan – eða þar til tvær
danskar dömur pikkuðu í mig að
lokinni messu og bentu mér á,
með sínum fína danska hreim, að
vissulega hefði Jesús stigið niður
til hinna fátæku en hann hafi þó
aldrei boðið upp á steik. Æ síðan
hefur það verið árlegur viðburður
milli mín og þessara vinkvenna,
að við kímum til hvert annars
Bergþór Pálsson
og Albert Eiríksson
segja frá jólahefðum og
leiðbeina með fallegar
jólaskreytingar.
Jesús bauð ekki upp á Jólasteik
Margrét H. gústavsdóttir
margret@dv.is
„FEstligE FyrEr“ Bergþór og Albert eru
miklir stemningsmenn og sem slíkir sérfróðir um
veisluhöld. Þeir leggja upp úr því að jólaborðið
sé snoturt og ekki ofhlaðið enda þurfi fólk að
geta átt samskipi yfir borðið án þess að hverfa
á bak við jólaskraut. Myndir Sigtryggur Ari
grýlA, lEPPAlúði og jólAköttur
inn Bergþór valdi
myndir af jólasveinunum, Grýlu og Leppalú
ða eftir Halldór
Pétursson en lét fjölskylduna skipta um föt o
g sótti fyrirmyndirn-
ar á Þjóðminjasafn Íslands.
EinFAldlEikinn
stEndur Fyrir sínu
Hreinn og fallegur
líndúkur, jólasparistell
og skemmtilegt brot á
servíettum. Þetta dugar
til að gefa góða
jólastemningu við
veisluborðið.