Dagblaðið Vísir - DV - 15.12.2017, Side 63
JólinHelgarblað 15. desember 2017 KYNNINGARBLAÐ
Það er búið að vera svo kalt og sannkallaður úlputími. Þá kemur sér vel að við erum með margar
úlpur sem eru frábærar yfir vetrartí-
mann,“ segir Lilja Kristín Birgisdóttir,
markaðsfulltrúi og vefstjóri hjá Cinta-
mani, og tiltekur tvær úlpur sem eru
sérstaklega vinsælar nú í vetur:
„Úlpan Fönn er ný dömudúnkápa
sem er ótrúlega hlý og klæðileg í sniði.
Hún er til í þremur litum og hentar
fyrir alla aldurshópa. Þegar kalt er
á morgnana er dásamlegt að geta
klætt sig í svona fallega dúnkápu
áður en haldið er út í daginn. – Síðan
er það Garri, sem er frábær dúnjakki
fyrir herra. Hann er með háum kraga
og vaxbornum styrkingum á álags-
svæðum. Þetta er skotheld jólagjöf
í ár handa sonum, feðrum og eigin-
mönnum.“
Cintamani er með alls sex verslanir
hér á landi og eru þær allar stútfullar
af hlýjum og fallegum vörum – allt til
alls í jólapakkann. Hægt er að kaupa
gjafakort í öllum verslunum Cinta-
mani fyrir upphæð að eigin vali en
verslanirnar eru á eftirtöldum stöð-
um: Bankastræti 7, Austurhrauni,
Outlet Austurhrauni, Kringlunni,
Smáralind og Skipagötu 5, Akureyri.
Gjafakort til fyrirtækja frá Cintamani
eru líka mjög vinsæll kostur og hafa
verið mikið keypt undanfarin ár.
Cintamani hefur verið starfandi frá
árinu 1989 en hefur orðið sífellt meira
áberandi á markaðnum undanfarin
ár. „Vörurnar okkar eru gríðarlega
vinsælar núna. Við aðgreinum okkur
dálítið með þessari miklu gleði sem
er í kringum vörumerkið okkar. Við
leggjum áherslu á útivist og ævintýri
– við erum aldrei of gömul til að leika
okkur úti og gerum eins mikið af því
og mögulegt er,“ segir Lilja.
Cintamani leggur einnig ávallt
mikla áherslu á gæði: „Við leggjum
mikla vinnu í þróun varanna þar sem
flott teymi af útivistarfólki kemur við
sögu. Við höfum háan gæðastuðul
og öll efni sem við notum eru prófuð
mörgum sinnum.“
Cintamani er komið í jólaskap eins
og sjá má á Facebook-síðu fyrirtæk-
isins en þar er í gangi afskaplega
skemmtilegur jólagjafleikur – Jóla-
FATAtalið. Gefin er jólagjöf á hverjum
degi fram til jóla og birtist nýr gluggi
alla morgna kl. 7. „Það eina sem
fólk þarf að gera er að fylgja okkur
á Instagram og Facebook og skilja
eftir skemmtilega athugasemd undir
glugganum. Við drögum út sigur-
vegara alla virka daga. Vinningarnir
eru fjölbreyttir og henta í úti-ævin-
týrin, til dæmis gefum við dúnúlpur,
regnkápur, peysur og einnig skemmti-
leg ævintýri með vinum okkar frá
Artic Surfers.“
Það gæti margborgað sig að
fylgjast með Cintamani á samfélags-
miðlum núna fyrir jólin og þeir sem
heimsækja eina af sex verslunum
Cintamani finna ábyggilega eitthvað
gott í jólapakkann í ár.
Cintamani.is
facebook.com/cintamani.iceland
Allt til alls í jólapakkann
CInTAmAnI:
Fönn
Garri
Ég er búin að vera í níu ár í faginu. Þetta hefur breyst nokkuð frá því um aldamótin þegar „tribal“-
tákn og kínatákn voru vinsæl, núna
eru þetta oft stærri og íburðarmeiri
myndir og sífellt meira um sérhann-
anir fyrir fólk. Það eru mörg stór
verkefni í gangi, fólk kemur með sínar
eigin hugmyndir sem við útfærum
og oft velur það síðan hugmyndir frá
okkur – og mjög oft ganga hugmynd-
ir á milli okkar og viðskiptavinanna,“
segir Sigrún Rós Sigurðardóttir hjá
Bleksmiðjunni, sem staðsett er í Húsi
verslunarinnar, Kringlunni 7. Sigrún á
þetta fyrirtæki með eiginmanni sínum,
Ingólfi P. Heimissyni, en alls starfa átta
húðflúrarar á stofunni.
„Þetta er krefjandi starf,
bæði tímafrekt og krefst þess
að maður haldi sér alltaf skap-
andi. Fólk er misjafnlega lengi
hverju sinni, sjaldan er þó fólk
hjá okkur skemur en þrjá tíma
í einu. Að jafnaði tekur hver
heimsókn um þrjá til sex tíma.
Hver húðflúrari sinnir yfirleitt
ekki nema einum viðskiptavini
á dag. Svo koma sumir oft út
af sömu myndinni þegar um
stærri verkefni er að ræða.
Svo er líka misjafnt hvað fólk
þolir mikið í einu,“ segir Sig-
rún en hún vill meina að sársaukinn
sem fylgi því að fá húðflúr sé alls ekki
óbærilegur: „Ef svo væri þá væri þetta
ekki svona vinsælt. Líkaminn venst
sársaukanum og deyfir hann. En auð-
vitað tekur þetta dálítið á.“
Sigrún segir að starf húðflúrarans
sé mjög persónulegt og mikilvægt sé
að skapa góða tengingu við við-
skiptavininn. „Traust byggist oft
upp þegar viðskiptavinurinn skoðar
verkin mín en mannleg samskipti
eru alltaf mikilvæg í þessu fagi og
eru grunnurinn að því að eignast
fastakúnna, því ef ekki verður nógu
sterk tenging getur fólk alltaf leitað
eitthvert annað.“
Viðskiptavinahópur Bleksmiðj-
unnar er afar stór. „Við tökum ekki
yngri en 18 ára en aldurbilið er alveg
frá 18 og upp í 70. Stærsti aldurs-
hópurinn er kannski milli tvítugs og
þrítugs en þetta er fólk á öllum aldri
og úr öllum starfsstéttum.“
Þess má geta að líkams-
götun er einnig í boði á
Bleksmiðjunni.
Gjafabréf fyrir húðflúri
er góð jólagjöf sem gleður
marga. Gjafabréf fyrir upp-
hæð að eigin vali eru í boði í
Bleksmiðjunni. Þau er hægt
að sækja á staðinn eða láta senda
sér hvert á land sem er. Gjafabréf er
hægt að panta í gegnum Facebook-
síðu Bleksmiðjunnar eða með því að
hringja í síma 823 57575.
Hágæða húðflúr í jólagjöf
Jo Geirdal, húðflúrari á
Bleksmiðjunni, að störfum.
Ingólfur P.
Heimisson,
annar eigenda
Bleksmiðjunnar,
að störfum.
Sölvi Dúnn húðflúrari að störfum.